Brot gegn valdsstjórninni

Brot gegn valdsstjórninni hafa ætíð verið litin alvarlega. Að koma í veg fyrir að lögreglumenn sinni störfum sínum er grafalvarleg afbrot og getur bakað viðkomandi ýtmsum vandræðum. Svona ofbeldisfullur rumpulýður á ekkert gott skilið.

Því miður virðist fara vaxandi brot gegn lögreglumönnum þar sem ofbeldi virðist vera beitt. Eiturlyfin koma þarna að öllum líkindum yfirleitt alltaf við sögu. Hvernig samfélagið getur brugðist best við þessu er ekki gott að segja. Margir ofbeldismenn virðast ekkert geta lært fyrr en þeir eru komnir bak við lás og slá í yfirfullum fangelsum landsins. Því miður eru tiltölulega fáir sem koma þaðan betri menn. Spurning hvort ekki þurfi að grípa til virkari ráða?

Nú er stundum unnt að rekja ofbeldi til ofvirkni og neyslu ýmissa fíkniefna. Spurning hvort læknisfræðin gæti komið þessum einstaklingum að gagni og samfélaginu í leiðinni? Það væri mjög æskilegt út frá mörgum sjónarmiðum að þeir sem haldnir eru ofbeldishneygð, séu ekki látnir bera ábyrgð á gjörðum sínum heldur verði einnig látnir sæta meðferð að draga verulega úr og jafnvel alveg ofbeldinu. Fangelsi geta orðið mikilvægur áfangastaður en því miður fer oft allt í sama horfið eftir afplánun.

Samúð Mosa er mikil með lögreglumönnunum. Þeir eru á tiltölulega lágum launum við mjög erfið störf við að halda uppi lögum og reglu í samfélaginu.

Mosi


mbl.is Ráðist á lögreglumenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ellert Júlíusson

Íslensk fangelsi eru ekki staðir fyrir aðila sem hingað koma til lands nánast gagngert til að brjóta lög. Einnig má spyrja sig að því hvað þeir voru yfir höfuð að gera á götunni (eða landinu) ef þeir hafa áður gerst sekir um að ráðast að lögreglumönnum.

Einhversstaðar virðist þessi alvarleiki sem þú talar um varðandi brot gegn valdsstjórninni hafa gleymst.

Ellert Júlíusson, 11.1.2008 kl. 11:26

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ef þeir erlendu ríkisborgarar sem hafa komist hingað til lands og fremja hér afbrot, ber að refsa þeim áður en þeim er vísað úr landi. Hugsanlega eru þeir eftirlýstir annað hvort í heimalandinu eða af Interpol. Þá er það athugað hvort verða verði við því.

Annars þarf að ræða margfalt meira um þessi mál og hvaða ráð við höfum til að sporna við þessari óheillaþróun.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 11.1.2008 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 242951

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband