Straumhvörf í álvæðingu

Lesendur góðir! 

Þessi skoðanakönnun í Hafnarfirði mun að öllum líkindum vera minnst þegar straumhvörf urðu í íslenskum þjóðmálum. Allt frá aldamótunum hefur verið gjörsamlega blind virkjanastefna í landinu, knúinn af auðmagni og skyndigróða. Jafnvel hefur versti virkjanakosturinn verið valinn af ríkisstjórninni til að afla sér stundarfylgis í kosningum.

Ríkisstjórnin íslenska hefur lagt allt of mikla áherslu á álbræðslur í stað þess að efla smáfyrirtæki, sprotana sem eiga eftir að vaxa og dafna. Athyglisvert er að fyrir um 5 árum var ríkisstjórninni bent á að nauðsynlegt væri að undirbúning að leggja fleiri ljósleiðara til landsins til þess að tölvufyrirtæki gætu vaxið áfram.

Ísland gæti orðið mjög álitlegur kostur fyrir að vera miðstöð upplýsingaflæðis í heiminum. Forseti okkar Ólafur Ragnar Grímsson ræddi fyrir skömmu við Bill Gates sem lagði við hlustir. Öll þessi miðlæga upplýsingastarfsemi með tengingar netþjóna út um allan heim kallar nefnilega einnig á mikla orku. Og ekki skemmir fyrir að hún sé fengin úr iðrum jarðar. Og álbræðslur þurfasamkeppni um orkuverðið, sennilega geta tölvufyrirtækin greitt vel fyrir orkuna sem þeir kynnu að kaupa.

Hvers vegna Bill Gates hlustar fremur á Ólaf Ragnar en ríkisstjórnin? Er það kannski vegna þess að hún er gjörsamlega týnd og tröllum gefin í álkeldunni djúpu og kemst ekki upp úr henni? Mín vegna mætti hún daga þar uppi eins og gömlu draugarnir forðum!

Neinei: allur krafturinn var lagður að fá hingað til landsins fleiri álbræðslur eins og þetta væri það eftirsóknarverðasta fyrir Íslendinga. Vitið þið lesendur góðir hvar verið er aðbyggja álbræðslur í dag og á næstu árum? Á heimasíðu Landsvirkjunar (www.lv.is) má lesa skýrslu um þessi mál og ekkihefur verið að vekja neina athygli á á þeim bæ. Eftirtektarvert er að hvergi í Evrópu er verið að byggja álbræðslu fyrir utan Ísland - nema nema í Rússlandi!!! Er það tilviljun? Svo er auðvitað verið að byggja víða í þróunarríkjunum þar sem auðhringarnir hafa öll örlög heilu þjóðanna í hendi sér. Erþað sem við erum aðsækjast eftir að þurfa að spyrja þá álbræður Alkan og Alkóa hvort við mættum gera e-ð þegar okkur dettur e-ð annað í hug en kemur þeim að gagni?

Þá er verið að byggja álbræðslur í Kína en þar mun álnotkun væntanlga aukast mjög mikið eða verður notað í nágrannalöndunum.

Við Íslendingar þurfum aðra ríkisstjórn sem hefur alla burði til að leggja sig betur fram að fylgjast með straumi tímans. Gamaldags áliðnaður á ekkiað vera sú sýn sem erlendir ferðamenn berja fyrst augum.  Hafnfirðingar sjá fram á að lokast af álbræðslunni í sínum skipulagsmálum ef hún hefði  fengið að stækka mjög verulega eins áætlanir stóðu til.

Ég vil óska Hafnfirðingum til hamingju með ákvörðun sem byggð er bæði á skynsemi og framsýni.

Mosi 


mbl.is Ögmundur: Þáttaskil í deilum um virkjanastefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Ég tek ofan fyrir Hafnfirðingum fyrir að hafa þorað að standa gegn stóriðjustefnunni.  Við íslendingar erum 50 árum á eftir öðrum Evrópu þjóðum með blessaða iðnbyltinguna... við erum alltaf svolítið á eftir öðrum..Stjórnvöld hafa  setið aðgerðarlaus þegar að tölvufyrirtæki flýja land með sína framleiðslu en kaupa svo allt hrátt og eru tilbúnir að gera hvaða ívilnanir sem er fyrir þá sem vilja koma og byggja upp áliðnað hér..Held að það hefði verið nær að standa við bakið á þeim fyrirtækjum sem eru hér fyrir ekki síst í tölvugeiranum en nei.."ál" glýju glampinn skín úr augum allra í ríkisstjórninni... Það er við hæfi að söngur um þá sé sunginn sem hljómar svona:,, Þú hugasar ekki um neitt nema "ál" og aftur "ál"..það kemst ekkert annað að í huga þínum nema "ál" og aftur "ál"Þessi stjórn verður ekki þekkt sem "viðreisnar" heldur  sem "álvers" reisnar....Ef að þessi álæðis stefna fær að halda áfram þá verða það álver sem verða kennileiti landsins úr lofti en ekki jöklarnir.Þá verður við hæfi að kalla landið "Ál" land en ekki "Ís"land.

Agný, 1.4.2007 kl. 12:07

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ef það urðu straum við kosninguna í Hafnarfirði... verða þá ekki aftur strumhvörf við kosningu á Húsavík?

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.4.2007 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband