24.11.2013 | 16:16
Rangfærslur Sigmundar forsætisráðherra
Rétt er hjá Katrínu Jakobsdóttur að niðurskurður hefur verið á rekstrarfé Landspítala allar götur frá tímum ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Það er mjög ósanngjarnt hjá Sigmundi Davíð að kenna síðustu ríkisstjórn um allt sem aflaga fer. Halda mætti að hann hafi síðustu ríkisstjórn á heilanum og hafa eigi hana sem blóraböggul.
Auðmaðurinn Sigmundur er sennilega einn yfirlýsingaglaðasti stjórnmálamaður sem starfað hefur í stjórnmálum á Íslandi. Hann er fyrst og fremst fremur ómerkilegur áróðursmaður en raunsæisstjórnmálamaður. Með andstöðu sinni gegn icesave samningunum á sínum tíma, sýndi hann ekki sérlega raunsæi heldur nýtti sér stöðu mála til að æsa þjóðina upp gegn þáverandi ríkisstjórn sem reyndi að fara skástu leiðina. Nú hefur sýnt sig að við hefðum fyrr komist út úr kreppunni með samningum en að draga þetta einkennilega mál niður í forað tárdal tilfinninga forheimskunnar. Þessi andstöðu sýndarmennska kostaði okkur að lágmarki 60 milljarða. Þeir sem ekki trúa ættu að líta í netútgáfu Morgunblaðsins frá 6. september í haust en þar kemur fram að nægar innistæðúr reyndust vera til greiðslu Icesave skuldarinnar og meira að segja töluvert umfram! Um þett6a vill Sigmundur Davíð ekkert ræða enda veit hann að blekkingaleikur hans er ekki upp á marga fiska þó honum hafi tekist að blekkja stóran hluta þjóðarinnar með yfirlýsingum sem lítið innihald hafa.
Við Íslendingar sitjum uppi með einn einkennilegasta furðufugl stjórnmálanna rétt eins og Ítalir sátu uppi með Silvio Berluskoni á sínum tíma.
Forsætisráðherra í stjórnarandstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.11.2013 kl. 11:52 | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"Skástu leiðina?" Hvernig í veröldinni geturðu haldið slíku fram þegar búið er að dæma hana ólöglega?
Það er eiginlega ekki nokkur leið að taka svona stórfurðulegheit alvarlega.
Guðmundur Ásgeirsson, 24.11.2013 kl. 21:03
Þegar við stóðum frammi fyrir ákvörðun um að semja eða semja ekki þá töldu stórnvöld að hvatningu færustu lögfræðinga að samningaleiðin væri hyggulegri. Við hefðum þá fyrr kimist út úr kreppunni þar sem traust okkar erlendis varð strax meira. Við hefðum fengið hærra lánshæfismat, betri viðskipta- og vaxtakjör og þar með komist fyrr út úr kreppunni. Þessa leið hugnaðist Sigmundi ekki og ákvað með Ólafi Ragnari að draga þetta Icesave mál niður í táradal tilfinninganna á þjóðrembunótum. En hvað gerðist í raun? Mun betri skil urðu í þrotabú Landsbankans af útistandandi lánum og þetta lág alltaf nokkuð ljóst fyrir nema áróðurspésunum. Þessu vildi hvorki auðmaðurinn Sigmundur Davíð né ferðaforsetinn Ólafur Ragnar ekki trúa og sórust í fóstbræðralag að grafa undan ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Þessir tveir fóstbræður vildu ekki trúa og náðu að blekkja heila þjóð. Og þessi hókus pókus meistari Sigmundur Davíð telur sig vera hafinn yfir allar efasemdir. Og hann leyfir sér að boða: Skuldir skulu af yður teknar meðan trú yðar er næg og þú kýst mig sem leiðtoga landsins!
Þessi náungi er formaður Framsóknarflokksins, einhver furðulegasta sending sem Íslendingar hafa fengið frá því að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson drógu sig út úr pólitíkinni.
Guðjón Sigþór Jensson, 24.11.2013 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.