Stjórnarskrármálið aftur á byrjendareit?

Frumvarp til nýrrar stjórnarskrár sem stjórnarskrárráð samdi, var illa tekið einkum af hæri mönnum. Margt var gott í þessu frumvarpi þó svo að sitthvað hefði betur mátt fara. Eg hefði viljað sjá betra gegnsæi við góðar fyrirmyndir, stjórnarskrá Suður Afríku sem Nelson Mandela var aðalhöfundar að. Nelson Mandela notaði árin í fangelsinu sem samviskufangi mannréttindabrota að kynna sér í þaula allar stjórnarskrár heims. Þær voru efniviðurinn sem hann notaði. Hann vildi brjóta upp grunnhugsunina, breyta stjórnarskránni frá því að vera skilgreind frá valdinu, hverjum valdsþætti væri skipað o.s.frv. Stjórnarskrá Mandela byggðist á lýðræðinu og mannréttindum, það var sett fremst og síðan var kveðið á um hvernig unnt væri að varðveita þessi réttindi.

Mjög lengi var stjórnarskráin í miklu uppáhaldi hjá ýmsum ráðamönnum Sjálfstæðisflokksins. Gunnar Thoroddssen setti fram mjög góðar tillögur fyrir um 3 áratugum sem að einhverju leyti hafa orðið að veruleika. Síðar var lenska hjá ráðamönnum Sjálfstæðisflokksins að fela þingmönnum sem voru ekki lengur í náðinni að endurskoða stjórnarskrána. Og nú hefur gömlum prófessor verið falið formannshlutverk nýrrar stjórnarskrárnefndar.

Nú er Sigurður Líndal talinn vera með víðlesnari mönnum hvað lög og rétt í samfélaginu að fornu og nýju varðar. Honum verður því varla skotaskuld að sinna vel þessu verkefni og vinnur vonandi bæði hratt og vel.

Þegar litið er til baka síðastliðnar vikur þá finnst mér að mætti setja skýrari ákvæði um mörk hinna þriggja þátta ríkisvaldsins. Framkvæmdarvaldið hefur lengi verið þekkt fyrir að seilast inn á svið löggjafarvaldsins. Nú greip þetta sama framkvæmdarvald fram fyrir hendur dómstóla með því að fela lögreglu að brjóta niður lögleg mótmæli við umdeilda framkvæmd við vegagerð í Garðahrauni. Það á ekki megi beita lögreglu gegn pólitískum andstæðingum. 

Rétt er að óska nýrri stjórnarskrárnefnd alls þess besta og farsældar í vandasömum störfum. 


mbl.is Skipað í stjórnarskrárnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Á byrjunarreit eins og flest annað hjá þessari stjórnarplágu..

hilmar jónsson, 6.11.2013 kl. 19:25

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það hlýtur að vera hægt að nýta eitthvað úr hinni rándýru vinnu verktaka vinstri flokkanna. Reyndar mikið verk að vinsa úr popúlismavitleysuna og vinstri slagsíðuna á þeirri vinnu

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.11.2013 kl. 00:50

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Skil ekki þessi andfélagslegu sjónarmið að kenna tillögur stjórnarskrárnefndar við popúlarisma.

Allir gátu boðið sig fram til stjórnlagaráðs og valið getur því ekki hafa verið lýðræðislegra. Þau sjónarmið sem urðu ofan á hugnaðist ekki hægri mönnum og þeir hafa reynt að skemma eins mikið fyrir og þeir geta.

Það er þó viðurkenning hjá Gunnari að hann telur eitthvað vera nýtanlegt.

Guðjón Sigþór Jensson, 7.11.2013 kl. 11:40

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ef eitthvað popúlarismi var það andstaða Sigmundar Davíðs og Ólafs Ragnars gegn Icesave samningunum. Þar var tilfinningamál dregið niður í einhvern þjóðernislegan táradal.

Hvers vegna er ekkert talað um þá nú? Svarið kom í Mgbl. 6.9. s.l. Útistandandi skuldir þrotabús Landsbankans hafa skilað sér betur en nokkurn óraði og þar með meira en nóg til að reyta í Icesave kröfurnar.

Þessi töf í boði Sigmundar og Ólafs kostuðu okkur a.m.k. 60 milljarða!

Guðjón Sigþór Jensson, 7.11.2013 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband