15.5.2013 | 18:42
Brall braskaranna
Frjálshyggjan kom því í kring að braskaralýður rændi heiðvirt´og ráðdeildarvert fólk sparnaði sínum. Þeir skildu samfélagið í rúst. Það þurfti aðra en fulltrúa braskaranna að reisa landið og þjóðina úr þeirri niðurlægingu sem braskaralýðurinn leiddi okkur í. Og allt var gert til að gera störf ríkisstjórnar Jóhönnu tortryggileg. Og til þess að ná aftur völdum, var efnt til einhverrar furðulegustu kosningaloforða að önnur eins forða hefur ekki sést lengi norðan Alpafjalla. Fara verður suður til Ítalíu í lýðskrum Silvíó Berlúskóní að finna hliðstæður.
Enda er margt líkt með Sigmundi Davíð og Silvíó Berlúskóní. Báðir eru miklir eignamenn með gríðarleg áhrif í fjölmiðlum sem er lykillinn að velgengni í stjórnmálum.
Nú leitar þessi íslenski tvífari Berlúskónís með leitandi ljósi til að gjaldfella kosningaloforðin. Það var aðalatriðið að ná í atkvæðin, tilgangurinn helgaði meðalið að komast til valda.
Nú blasir við að Íslendingar sitji uppi með einhverja furðulegustu ríkisstjórn frá upphafi vega. Allt er fundið til foráttu og sagt að viðskilnaðurinn sé ómögulegur. Greinilegt á að láta þjóðina gleyma hruninu en margir braskarar og íhaldsmenn vilja ekki viðurkenna neitt hrun. Þeir vilja völdin og fá aftur tækifæri að efna til þeirrar spillingar og brasks sem þeir voru einna kunnugastir af í aðdraganda hrunsins.
Braskarinn hættir ekki sínu eigin fé. Honum er umhugað sérstaklega um fjármuni annarra. Þeir reyna að koma ár sinni þannig fyrir borð að áhætta og ábyrgð sé engin en hagnaður sem mestur.
Mýmörg dæmi er um slíkt. Nefna má þá Bakkabræður sem rændu lífeyrissjóði og litla hluthafa um eignir þeirra í Exista. Þeir efndu til blekkingarleiks þar sem 50 milljarða hlutafjáraukning varð án þess að ein einasata króna ver greidd inn í hlutafélagið. Svo koma menn af fjöllum séu þeir gerðir ábyrgir gerða sinna.
Vandræðalegt fyrir Sigmund Davíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 243409
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fyrir þá sem vilja skoða þetta betur:
Um skattastefnu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins á árunum 1995-2007 má lesa:
Skýrslan „Íslenska skattkerfið: Samkeppnishæfni og skilvirkni" var skilað til Árna Mathiesen fjármálaráðherra og ráðherra Sjálfstæðisflokksins þann 11. september 2008 eða tæpum mánuði fyrir hrun. Í nefndinni voru: Friðrik Már Baldursson formaður, Indriði H. Þorláksson fyrrum ríkisskattstjóri, Maríanna Jónasdóttir tilnefnd af fjármálaráðherra, Vilhjálmur Egilsson frá SA, Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ, Ragnar Ingimundarson hagfræðingur BSRB, Tanya Zharov, Tryggvi Þór Herbertsson nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Þorlákur Björnsson og Sveinn Agnarson ritari.
Ekki var haldinn blaðamannafundur né efni skýrslunnar kynnt almenningi svo ég viti. Undirrituðum tókst með herkjum að finna skýrsluna á vef fjármálaráðuneytisins og koma henni á vef BSRB þar sem hana nálgast.
Á blaðsíðu 90 í skýrslunni er tafla sem segir allt sem segja þarf um þróun skattbyrði hjá hjónum og sambúðarfólki en allan þann tíma var Sjálfstæðisflokkurinn við völd og Framsóknarflokkurinn lengst af. Í aftasta dálki töflunnar kemur fram hver breyting á skattbyrði heildartekna eftir tekjubilum hefur verið. Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður (skattprósentan hefði þurft að lækka mun meira til að þeir stæðu í stað með skattbyrði). Skattbyrðin jókst síðan verulega á alla aðra tekjuhópa allt til tekjuhæstu tíundarinnar en þar kom lækkun og lækkaði skattbyrðin mest hjá þeim tekjuhæstu - 5% þegnanna eða lækkuðu um heil 15,1% á þessu tímabili. Þar hafði afnám hátekjuskattsins mikið að segja; auk þess sem auknar fjármagnstekjur vógu þar mjög hátt og voru skattlagðar lægra en launatekjur almennings. Lækkuð skattprósenta hafði líka mest að segja fyrir þá tekjuhæstu.
Heimild: http://ogmundur.is/frjalsir-pennar/nr/6681/
Guðjón Sigþór Jensson, 15.5.2013 kl. 20:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.