Möguleiki á fjarstýringu þingmanna?

Auðmenn hafa oft komist upp með að kaupa þingmenn og jafnvel heilu stjórnmálaflokkana. Þannig töldu þýskir stóriðjumenn eins og Krupp sig hafa tök á Hitler og nótum hans á sínum tíma þegar leynisamningur var gerður milli þeirra. Á þessum leynifundi voru einnig fulltrúar þýska hersins og júnkaranna, gamla prússneska landeigandaaðalsins.

Margt bendir til að auðmenn hafi íslenska stjórnmálamenn í „vasanum“. Sumarþingið 2007 einkenndist af einu þingmáli þar sem var lögleiðing samnings ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar um ný sjónarmið varðandi skattgreiðslur álbræðslunnar í Straumsvík. Þessi samningur hafði þau áhrif að talið væri að skattur til þeirra álbræðslumanna lækkaði um hálfan milljarð á ári! Sennilegt er að Framsóknarflokkurinn og Sjðálfstæðisflokkurinn hafi fengið einhverjar innspýtingar í kosningasjóði enda þykir það sjálfsagður hlutur að veita þeim stjórnmálamönnum umbun sem hafasýnt vissum hagsmunum skilning.

Þegar þingmenn koma með þessi nýju nýmóðins tæki opnast nýir möguleikar. Þeir geta komið með skilaboð frá hagsmunaaðila sem viðkomandi vilji láta koma fram á Alþingi sem þingmaðurinn sem þeir hafa “í vasanum“lesi fyrir þingheimi. 

Því miður verður að telja að þessi nútíma tækni opni möguleika fyrir aukinni spillingu þar sem það er ekki samviska þingmannsins sem talar heldur boðskapur einhvers hagsmunaaðila sem hann er að tala fyrir.

Venja er að þingmaður í ræðustól þingsins biðji þingforseta leyfis sé lesinn texti úr bók, blaði eða tímariti. Spurning hvort þingmanni beri ekki að spyrja þingforseta leyfis um að lesa boðskiptin sem hann var að fá í tæki sínu.

Spurning hvort þessi nýja tækni opni möguleika fyrir fjarstýringu þingmanna sé leiðin til aukinnar spillingar skal ósagt látið. En sú hætta er fyrir hendi ef ekki eru settar reglur fyrir um þessi mál.

Góðar stundir.

 


mbl.is Las af snjallsíma í ræðustóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Álfheiður Ingadfóttir er með þetta á hreinu og gæti kennt liðinu. Einnig að það sem er reglan í dag og á að standa fast á, var reglaN Í GÆR OG BER AР FORÐAST.

Siggi á Útlátri (IP-tala skráð) 7.3.2013 kl. 18:54

2 identicon

Það gerðist á þinginu í TEherran að það bilaði bílskúrshurðaropnari hjá Jafeti töskubera og sendi hann út alla mögulega koða. Hálfur þingheimur í TEherran fór á klóiið en þar er jafnretti og allir halda sæer vakandi við þingstörf.

Siggi á Útlátri (IP-tala skráð) 7.3.2013 kl. 19:04

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ekki skil eg svo mikið sem bofs í þessu. Á þetta að vera fyndið eða hvað? 

Guðjón Sigþór Jensson, 7.3.2013 kl. 23:14

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Enn ein ástæða til að banna facebook, er það ekki annars örugglega?

Guðmundur Ásgeirsson, 8.3.2013 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 243033

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband