Er undirbúning áfátt?

Nokkrum sinnum hefur boriđ viđ ađ sjórnmálaleg átök hlýst af ákvörđunum sem betur hefđi mátt undirbúa. Ađ fara međ opinbert vald getur veriđ mun vandasamara en ćtla má viđ fyrstu sýn.

Ákvörđun landshöfđinga ađ setja Skúla Thoroddsen af sem sýslumann á Ísafirđi var mjög umdeild og olli miklum róstum vestra.

Suđurgötuslagurinn skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina var vegna umdeildrar ákvörđunar um brottvísun rússnesk drengs varđ átök sem talin er hafa veriđ meira af pólitískum ástćđum en af heilbrigđissjónarmiđum. Kannski ađ menn voru minnugir drepsóttar ţeirrar sem nefnd hefur veriđ Spánska veikin, hafi valdiđ ýmsum áhyggjum af meintum alvarlegum augnsjúkdómi hafi veriđ ástćđan.

Verkfallsátök voru lengi vel mjög alvarleg. Og sennilega markar Góttóslagurinn 7.nóv.1932 einn alvarlegasta atburđinn sem sennilega hefđi mátt afstýra.

Ţá kom til mjög alvarlegra átaka 30. mars 1949 vegna tillögu ríkisstjórnarinnar ađ Íslendingar gengju í Nató. Síđan um miđja 20. öld hefur margsinnis orđiđ átök og oft ţeim sem hlut áttu ađ máli ekki málstađ neins til framdráttar.

Áriđ 1938 voru sett lög um stéttarfélög og vinnudeilur. Ţá var ein merkasta ríkisstjórn landsins, sem nefnd hefur veriđ „Stjórn hinna vinnandi stétta“. Í ţessum lögum er merk lagagrein sem mćtti vera fyrirmynd í flestum málum: Ţar er lögđ sú skylda á deiluađila ađ magna ekki deiluna meir en veriđ hefur. Svo ein falt sem ţađ er, ţá má undirbúa ákvörđun betur. Ef ljóst er ađ framundan sé erfiđ ákvörđun, ţá mćtti hugsa sér ađ kalla saman ţá ađila sem máliđ varđar, ţađ kynnt og reynt ađ finna friđsama lausn á sem breiđustum grunni. En ţetta er ţví miđur ekki alltaf hćgt ţegar ljóst er ađ t.d. hagsmunagćsla gangi ţvert og engan samkomulagsgrunn er ađ finna.

Á Alţingi Íslendinga er vćgast sagt furđulegt ástand. Samkoma ţessi er eins og ţegar grenjandi ljón eru samankomin ţar sem menn steyta hnefana hver móti öđrum. Ţessi átakastjórnmál minna ţví fremur á box en friđsamlega samkomu ţar sem ţingmenn gćtu unniđ sín störf meira í samstarfi en í stöđugum átökum. Ţannig gleymast mörg mál og menn rjúka upp milli handa og fóta eins og Sigmundur Davíđ núna ţegar hann vill bjarga heimilunum, 10 vikum fyrir kosningar! Hvađ var mađurinn ađ ađhafast síđustu 4 árin?

Ef Íslendingar eiga eftir ađ bera ţá gćfu ađ fá viđunandi skilmála viđ inngöngu í Evrópusambandiđ verđur strax grundvöllur ađ fćkka ţingmönnum. Ţurfum viđ alla ţessa öskrandi stríđshjörđ?

Undirbúningur ákvarđana ţarf ađ vinna á mun breiđara sviđi en veriđ hefur. Međ ţví mćtti fćkka tilefnum til átaka.

Góđar stundir!


mbl.is Hlutu varanlega áverka viđ Gúttó
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 242965

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband