14.12.2012 | 18:24
Skiljanleg afstaða
Lengi vel var landsvæði það sem nú er næstfjölmennasta sveitarfélag landsins, Kópavogur, hluti af Seljarnarneshreppi hinum forna. Sveitarfélagið klofnaði úr Seltjarnarneshreppi og varð sjálfstætt sveitarfélag, Kópavogshreppur, um áramótin 1947-48. Þangað flutti fjöldi fólks, einkum láglaunafólk og iðnaðarmenn sem ekki fengu áheyrn hjá íhaldinu í Reykjavík að fá úthlutun lóða. Það var nefnilega svo, að mjög erfitt var að fá lóð í Reykjavík og fór orð á því að lóðir fengju einungis þeir sem studdu Sjálfstæðisflokkinn að málum.
Þegar íbúum fjölgaði í Kópavogi var ígrundað í hreppsnefndinni hvaða leið væti vænlegust til þess að útvega íbúum sem fyrst þjónustu eins og vatnsveitu, rafmagn, skóla og þar fram eftir götunum. Voru 3 leiðir sem komu til greina:
1. að stofna sjálfstætt sveitarfélag og fá kaupstaðarréttindi. Sú leið var talin langdýrust.
2. að sameinast aftur Seltjarnaneshrepp sem síðar öðlaðist kaupstaðarréttindi 1974. Sú leið var talin lökust enda hreppsstjórnarmenn vart færir að veita sínum íbúum þjónustu. Má geta þess að vatnsveita og strætisvagnaþjónusta var veitt með samningum við Reykjavíkurbæ sem var bær til 1957.
3. leiðin sem nær allir hreppsnefndarmenn Kópavogshrepps töldu besta væri að sameinast Reykjavík. Varð uppi miklar umræður í bæjarstjórn Reykjavíkur og var hafnað að verða við þessari ósk.
Úr varð að Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér fyrir á Alþingi að Kópavogshreppur fengi kaupstaðarrréttindi og varð það úr að þessi langdýrasta leið var valin 1955. Sagt er að þeim hafi ekki litist á að sameinast Kópavogi enda væri meirihluti Sjálfstæðismanna þá í hættu!!
Lengi vel mátti sjá ómalbikaðar götur í Kópavogi og rafmagnsleiðslur á tréstaurum um allan bæ, rétt eins og í litlum sveitaþorpum úti á landi.
Nú 2012 eða 57 árum eftir kaupstaðarréttindi Kópavogs þá kemur sú ósk um að sameinast Garðabæ sem fékk kaupsstaðarrréttindi 1976. Þessu er hafnað og sjálfsagt með áþekkum rökum og 1954/55. Í Garðabæ býr mikið af hátekjufólki sem gefur miklar tekjur í formi útsvars. Samfélagskostnaður er með því lægsta miðað við íbúa, tiltölulega fáir skólar og önnur dýr samfélagsþjónusta. Skuldir eru því mjög lágar en nú stendur til sameining við Álftanes sem breytir þessu töluvert. Það er því ljóst að þeir eru varkárnir í Garðabænum en í Kópavogi eru skuldir pr. íbúa mun hærri, tekjur af útsvari tiltölulega lægri en útgjöld samfélagsþjónustu meiri. Þá er skuldastaða Kópavogs mun erfiðari en þeirra í Garðabænum.
Þessi hugmynd um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er mjög raunhæf. Sennilega verður Mosfellsbær sameinaður Reykjavík enda eins og eyja innan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur. Og ekki er ólíklegt að Hafnarfjörður, Garðabær og Kópavogur sameinist enda sitthvað sem mælir með slíku.
Góðar stundir.
Garðbæingar höfnuðu Kópavogsbúum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.