27.5.2011 | 13:39
Opið bréf til Landsbankans
Fjárfestingafélagið Horn í eigu Landsbankans, heldur utan um hlutabréfasafn og jarðasafn Landsbankans. Landsbankinn yfirtók gríðarlegar eignir fjölda aðila sem lentu í þroti vegna bankahrunsins. Yfir 70 jarðir eru sagðir vera í eigu Hornsi-ns og mun ríkissjóður þurfa að greiða Horni umtalsvert fé í formi framleiðslurréttar sem fylgir sumum þessara jarða. En það er önnur saga.
Í hruninu töpuðu einnig allir þeir sem áttu hlutabréf í almenningasfyrirtækinu Atorku haustið 2008 öllum sínum sparnaði í formi hlutabréfa. Í aðdraganda hrunsins var að öllum líkindum beytt blekkingum til að skrúfa eignir þessa fyrirtækis niður. Þannig var ein verðmætasta eign Atorku, plastfyrirtækið Promens sagt vera verðlaust. Ekki líður ár að verðmæti þess er metið milli 11 og 12 milljarðar!
Nú hefur Landsbankinn látið þau boð út ganga, að hann hyggist endurgreiða öllum sem skulduðu bankanum 20% af greiddum vöxtum. Þar með er bankinn að viðurkenna að hann hafi brotið á lánþegum með ofgreiddum vöxtum.
Nú er réttlætismál að Horn fjárfestingafélag Landsbankans geri okku fyrrum hluthöfum Atorku hliðstætt tilboð. Við lögðum áratuga sparnað okkar í kaup á hlutabréfum í Íslenska hlutabréfasjóðnum sem er stofninn í Atorku og einnig Jarðborunum sem Atorka yfirtók á kannski nokkuð vafasaman hátt.
Hvað hyggst Horn-ið gera fyrir þá sem töpuðu sparnaði sínum í hruninu? Þessi forrétting virðist vera gullnáma bankans sem krefst nánari skoðunar.
Guðjón Jensson
Horn styður við Landsbankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sigurður styður Mosa. Mig myndi muna um að fá hlutafé mitt í Atorku til baka.
Annars er þess að geta að fjármálaráðgjafi Landsbankans sáluga, Herdís að nafni, tók upp að eigin frumkvæði að selja nokkuð af hlutabréfum (sparnaði) okkar hjóna skömmu fyrir hrun og færa andvirðið inn á Peningamarkaðssjóð og þar fengum við þó 68,8% til baka. Megi Herdís þessi lengi lifa!
Sigurður Hreiðar, 27.5.2011 kl. 14:05
Ekki slæmt að hafa svona hauk í horni sem Herdísi, hefði viljað fá svona ráðleggingu því áratuga sparnaður í formi hlutabréfa fór nánast alveg. Ætli hefði ekki verið unnt að kaupa jörð fyrir þá formúu?
Eg fór eftir ábendingu Fjármálaeftirlitsins: Þann 14. ágúst 2008 var fullyrt á þeim bæ að allir bankar stæðust svonefnt álagspróf. Með það í huga var eg rólegur og skrapp með félögum mínum í Skógræktarfélagi Íslands allar götur austur í Rússíá, já alla leið til Kamtstjatka í september. Í lok þess mánaðar þegar við komum heim, var allur fjármálamarkaður Vesturlanda að riða til falls. Ekki var unnt að koma neinum vörnum við. Einn stjórnarmanna í Atorku, Örn Andrésson að nafni, seldi öll sín hlutabréf sama dag og ráðuneytisstjórinn fyrrverandi, Baldur Guðlaugsson, seldi sín bréf í Landsbanka og þóttist koma af fjöllum!
Svona er nú það! Hef ekki keypt hlutabréf síðan og ætla mér ekki það enda glatað fé í hönudunum á misjöfnum athafnamönnum sem hafa kannski mestan áhugann fyrir að hafa sem flesta að fíflum.
GJ (Mosi)
Guðjón Sigþór Jensson, 27.5.2011 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.