21.9.2010 | 12:18
Ábyrgð ráðherra: af hverju má ekki taka afstöðu?
Mosi er á því að rétt sé að Landsdómur verði kallaður saman og fari með þessi mál. Í mínum huga skiptir mestu máli um sekt og sakleysi þeirra einstaklinga sem málið varðar, ekki endilega refsingu. Refsingar hefur yfirleitt ekki komið að neinu eða sáralitlu gagni nema góð samfélagsleg þjónusta fylgi með. Refsingar mætti tengja við missi vissra réttinda og fjársekta.
Skiljanlegt er að Jóhanna forsætisráðherra beri hag Ingibjargar Sólrúnar fyrir brjósti en á það að verða til þess að aðrir sem eru jafnvel sekari sleppi? Betra hefði verið að Jóhanna hefði ekki látið uppi skoðun sína jafnafdráttarhátt og hún gerði.
Það bendir allt til þess að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins eigi sér fáar ef nokkrar málsbætur. Þar var kæruleysið gagnvart bröskurunum haft í hávegum. Var það kannski að þeir höfðu greitt vænar fúlgur í kosningasjóðinn? Sama máli gegnir um ráðherra Framsóknarflokksins. Þeir báru ekki síður ábyrgð á bankahruninu enda var þeim einnig mikið í mun að koma bönkunum í hendurnar á óreiðumönnum og bröskurum innan raða Framsóknarflokksins.
Það er hins vegar mjög afleitt að sakir fyrnast svo fljótt eins og lögin um Landsdóm gera ráð fyrir. Einungis 3 ár eru allt af stuttur tíma. Sum afglöp og glæpir fyrnast seint eins og morð og aðrir alvarlegir glæpir. Afglöp á borð við að heilt fjármálakerfi fari til andskotans eins og við Íslendingar upplifðum haustið 2008 án þess að hreyft hafi verið minnsta fingri til að koma í veg fyrir það, jafnast á við alvarlegustu afbrot. Menn geta bakað sér refsiábyrgð t.d. vegna aðgerðaleysis. Gott dæmi um það er að koma manni í hættulegt ástand og kemur honum sem er bersýnilega í lífshættu ekki til aðstoðar. Um þetta tekur 220. gr. almennra hegningarlaga:
Hver, sem kemur manni í það ástand, að hann er án bjargar, eða yfirgefur mann, sem hann átti að sjá um, í slíku ástandi, skal sæta fangelsi allt að 8 árum.
Hafi móðir yfirgefið barn sitt bjargarvana þegar eftir fæðingu þess, og ætla má, að það sé gert af sams konar ástæðum og í 212. gr. getur, má beita vægari refsingu að tiltölu og jafnvel láta refsingu falla niður, ef barnið hefur ekkert teljanlegt tjón beðið.
Refsingu, sem í 1. mgr. segir, skal sá sæta, sem úthýsir ferðamanni eða segir honum rangt til vegar, enda hefði hann átt að geta séð, að ferðamanninum myndi verða að því háski búinn.
[Fangelsi]1) allt að 4 árum skal sá sæta, sem í ábataskyni, af gáska eða á annan ófyrirleitinn hátt stofnar lífi eða heilsu annarra í augljósan háska.
Þarna er refsiramminn tiltölulega hár eða 8 ár. En er ekki nokkuð svipað sem hér er uppi? Skildu ráðherrar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins ekki þjóðina eftir nánast munaðarlausa með reiði Breta og Hollendiga yfir sér rétt eins og móðir sem yfirgefur nýfætt barn sitt? Skiptir litlu þó Samfylkingin hafi verið kölluð til aðstoðar Sjálfstæðisflokknum í Stjórnarráðinu rúmu ári áður, enda var það ekki ásetningur ráðamanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að upplýsa rétt ástand mála. Þeir vissu eða vita máttu allan tímann að þetta braskævintýri með bankanna var andvana fætt.
Ef ekki má beita lögunum um Landsdóm væri réttast að afnema þau ef braskaranir ná aftur völdum á Íslandi. Atli hefur mikið til síns máls og ef núverandi þingmenn og auðvitað ráðherrar telja sig ekki geta tekið ákvörðun, væri þá ekki heppilegra að þeir segi af sér fremur en að efna til nýrra kosninga þegar tíminn er ekki sem heppilegastur fyrir þær?
Mosi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.