2.2.2010 | 17:20
Vonlítil samningsstaða
Þegar stórfyrirtækja hagræða í rekstri þá er oft þröngt um samningsstöðu innlendra aðila. Stóriðjan nýtur sérstöðu þegar hún hefur yfirvöld lítillra ríkja í vasanum og geta hagað sér eins og verstu mafíósar: Ef við fáum óskum okkar ekki framgengt, þá förum við annað! Svo einfalt er þetta. Nú hampar Alkóa happi að hafa náð hagstæðum samningum við vildarvini sína á Íslandi. Þá er þessum aðila unnt að loka hvaða álbræðslu sem er í heiminum, hvar og hvenær sem er.
Hvenær þetta verður hlutskipti Íslendinga er ekki auðvelt að segja á þessari stundu en reikna má með því að svona uppákoma getur orðið hvenær sem er ef aðstæður breytast skyndilega sem skiptir máli fyrir alheimsviðskipti. Nú hafa t.d. kínversk stjórnvöld haft í hótunum við stjórn BNA ef þau aðhafast eitthvað sem er Kínverjum ekki að skapi. Þannig geta Kínverjar haft viðskiptalíf Vesturlanda að verulegu leyti í hendi sér og kolfellt heimsmarkaðsverð á viðskiptabréfum en þeir hafa keypt gríðarlegt magn af viðskiptabréfum einkum bandarískum ríkisskuldabréfum á undanförnum árum. Ef þeim verður dælt á markaðinn í ótæpilegu magni þá þarf ekki að spyrja að leikslokum. Mikil og vaxandi hætta er þá á heimskreppu enda fáir vaxtabroddar í viðskiptalífi heims sem stendur til að mæta slíkri uppákomu.
Æðibunugangurinn og skammsýnin í fjármálum hefnir sín ætíð. Nóg er af glappaskotunum í fjárfestingum og viðskiptum. Er ekki fyllsta ástæða að fara varlega?
Mosi
Mótmæla lokun álvera Alcoa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 243411
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já en nú eru þessi fyrirtæki væntanlega að færa sig um set og framleiða álið nær Asíu-markaðinum þar sem einhver framleiðsla er. En þessi fyrirtæki eru að m.a. að reisa risa álveg í Arabalöndunum sem framleiða 1,5 milljón tonna á ári. Svo eru þau miklu nær Bási-námunum sem eru m.a. í Afríku og Ástralíu.
Hörður (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 17:54
Þetta gerðu íslensk fyrirtæki í massavís á góðærisárunum.
Er ekki 66N í Lettlandi, var ekki gluggasmiðja Byko eða Húsasmiðjunnar flutt sömuleiðis þangað. Var ekki Marel á einum tímapunkti að hóta að flytja framleiðsluna erlendis. Hampiðjan flutti alla vöruframleiðslu til Litháen. Svona mætti lengi telja.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 20:26
Ekki má líta framhjá að áliðnaður tengist mjög náið hergagnaiðnaði. Meira en 50% af framleiðslu Alkóa fer þannig beint eða óbeint til framleiðslu hergagna.
Það er því ekki alveg sambærilegt að bera saman starfsemi Byko og Húsasmiðjunnar í Lettlandi. Þar var fyrst og fremst verið að flytja timbur á sem ódýrastan og hagkvæmastan hátt til Íslands þó gæðin kunna að vera lakari þar en frá Norðurlöndunum þar sem trjáviður vex hægar og er mun betri að gæðum.
Varðandi Hampiðjuna var ekki starfsemin flutt að mestu leyti til Portúgal fremur en Litháen? Mig minnir það enda eru net fremur notaðar við veiðar á Atlantshafi og sparast mikil fyrirhöfn að flytja hráefni og fullunna vöru um Eystrasaltið. Vinnulaun eru ekki síður lág í Portúgal en í Austur Evrópu.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 3.2.2010 kl. 10:44
Garnframleiðsla Hampiðjunnar var flutt til Portúgals 1990, en eftir á Íslandi voru Kaðladeild, þráðadeild og Netahnýting. 2005 voru þessar deildir fluttar til Litháen og í framhaldi af því var garndeildin flutt frá Portúgal vegna þess að kaupið þar þótti of hátt. Þannig að öll framleiðsla Hampiðjunnar fer nú fram í Litháen.
Álið er notað í nánast allt. Bíla, potta,rafmagnskapla, flugvélar, dælur, reiðhjól................................................................ og
kveðja.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.