Sérkennileg staða

Þetta mál er að öllum líkindum mjög flókið og umsvifamikið enda er ákæran mjög ákveðin og vel rökstudd. Það kann að vera að litlar varnir séu í málinu enda er líklegt að brotavilji sé einbeittur, e.t.v. mjög einbeittur við verknaðinn sem fólst í því að beita blekkingum þannig að markaðsverð hlutabréfa í Kaupþingi væri hærra en það raunverulega var.

Markaðsmisnotkun + innherjar + stjórnendur = Mjög alvarleg fjármálabrot hafi verið framin.

Nú vil eg forðast að setja mig í dómarasæti, til þess hefi eg engar forsendur en reikna má með að ákæran sé mjög vel ígrunduð og vel rökstudd. Rannsókn Sérstaks saksóknara hefur verið ítarleg og byggist á áframhaldandi starfi rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið.

Þessir verjendur eru taldir vera mjög vandir að virðingu sinni, sérstaklega reyndir og hafa langan og farsælan feril sem lögmenn. Ragnar Hall fékk það erfiða hlutverk sem ungur lögfræðingur að vera skipaður skiptastjóri þrotabús Hafskips á sínum tíma. Það vakti athygli hversu vel hann vann þau störf og eftirtekt vakti hve honum var umhugað að ávaxta fjármuni þrotabúsins vel. Við skipti nægðu eignir fyrir um 65% af kröfum og þykir það með allra bestu niðurstöðu sem fengist hefur úr þrotabúi. Voru umtalsverða eignir seldar langt fyrir neðan markaðsverð, skip, búnaður og fasteignir.

En þetta mál verður að halda áfram enda ákærur alvarlegar. Sjálfsagt verður töf á málsmeðferðinni vegna þessarar uppákomu en þessi mál mega ekki dragast mikið meir en orðið hefur.

Að fylgja eftir máli er eins og hrossarekstur.

Góðar stundir!


mbl.is Dómarinn sagði nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. apríl 2013

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband