Raunhæf kjarakrafa

Langur vinnutími á Íslandi hefur aldrei skilað neinu fyrir launþega. Langi vinnutíminn kom hins vegar vinnuveitendur að góðu gagni enda dröttuðust lengi vel flestir örþreyttir heim eftir langan vinnudag sem skilaði nema kannski rétt fyrir nauðþurftum. Laun hafa lengi verið mun lakari en í nágrannalöndum okkar.

Í raun skilar styttri vinnutími betri afköstum. Vinnuveitendur hafa lengi vitað að mun betri afköst er að vænta af 2 starfsmönnum í 50% starfi en einum í 100% starfi. Því miður eru launin ekki alltaf í samræmi við afköst eða vinnuframlag.

Að krefjast styttingar vinnutíma úr 40 tímum í 36 er í raun um 10% kjarabót. Þó svo að ekki verði við þessari kröfu að öllu leyti þá er líklegt að þessu vderði skipt í 2 eða jafnvel fleiri áfanga í væntanlegum kjarasamningum.

Fram til 1972 var vinnuvikan 44 tímar. Var þá víða unnið fram að hádegi á laugardögum ef þessum 4 tímum var ekki deilt niður á virku dagana. 


mbl.is Krefjast 36 stunda vinnuviku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veit hann af áformum Sigmundar?

Nú hefur Sigmundur Davíð gefið út yfirlýsingar um gull og græna skóga og sagt bankabröskurunm langt nef ef ekki stríð á hendur. Spurning hvort Kínverjinn með alla vasa stútfulla viti af þessum áformum.

En sjálfsagt þarf Kínverjinn ekki að óttast, Sigmundur segir eitt í dag en gerir allt annað á morgun ef hann kemst til valda.

En það er dæmigert að braskarasnir virðast hafa mjög mikið umleikis og koma ár sinni betur fyrir borð meðan venjulegt fólk er í sífelldu basli.


mbl.is Huang tekur þátt í útboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. mars 2013

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband