31.5.2008 | 21:39
Íslenska sumarið
Fá tilefni til fagnaðar fyrrum var meiri en koma sumarsins. Allan veturinn hlakkaði Mosi til sumarkomunnar þegar sjá mátti farfuglana okkar kæru snúa til baka úr suðrinu sæla með vorvindunum. Þá tekur gróðurnálin við sér, gróðurangan berst um vitin og allt sem því tilheyrir. Aldrei datt mér til hugar að fara til útlanda á þessum tíma, og þó. Fyrstu utanlandsferðina fór eg fyrir réttum 30 árum með flugvél sem lenti á Sturup flugvelli skammt frá Malmö í Svíþjóð sumarið 1978. Fór þaðan til Kaupmannahafnar og var þar tvær vikur og gisti á farfuglaheimilinu við Bronshöj. Þá voru efnin ekki meir enda hefur Mosi ætíð verið mjög praktískt hugsandi. Rigndi nánast hvern einasta dag en gekk um margar götur, þröngar sem víðar. Varð votur í fæturna. Hvað var eg að sækja til útlanda? Samt var þetta mikil nýlunda fyrir nokkurs konar sveitarmann sem þó var alinn upp á mölinni í Reykjavík. Skoðaði nánast öll söfn í Kaupmannahöfn og nágrenni gaumgæfilega, heillaðist meir af gróðrinum en fólkinu sem er þó alltaf vingjarnlegt og mælir á þessu yndislega mjúka máli, dönskunni.
Síðan fór Mosi nokkrum sinnum í nokkrar vikur hverju sinni til Þýskaland, í Rínarsveitina þaðan sem spúsa hans er komin til landsinskalda norður undir heimskautsbaug. Þangað er gaman að koma en hitar og þurrkar oft miklir. Þá er gaman að koma á knæpu eða í vínstofu vínbónda og njóta ljúffengra veitinga. Eiginlega er skemmtilegast að ferðast til útlanda á vetrum þegar betra veður er þar en hér. Sérstaklega er gaman að koma til Mið-Evrópu um páskaleytið. Fyrstu ferðina til Þýskalands fór Mosi undir lok mars mánaðar árið 1980. Þá var nálægt 15 stiga frost á Fróni. Þegar lent var í Lúxembourg var tiulkynnt að hitastigið væri +24C! Og Mosi var í sínu föðurlandi og var bóksaaflega að farast úr hitasvæjku! Í þann tíð var ekki auðvelt að fá upplýsingar um hitastig erlendis. Núna er þetta allt fengið á örfáum andartökum!
Mosi mælir eindregið með að við njótum sem best sumarsins í okkar eigin landi. Notum vetrarfríin fremur til ferðalaga erlendis en njótum þess að vera Íslendingar á okkar Íslandi á sumrin!
Mosi
![]() |
Helmingur landsmanna ætlar til útlanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.5.2008 | 21:19
Stöðugt kvistast niður fylgi Sjálfstæðisflokksins
Síminnkandi fylgi Sjálfstæðisflokksins er mjög í samræmi við gerðir hans og framgöngu í stjórnmálum. Er von að keraldið leki:
Þegar stórir stjórar fá þá hugmynd að reka einhvern þá byrja þeir yfirleitt á skúringakonunum!
Að koma Guðmundi Þóroddsyni út á guð og gaddinn er eitthvað gjörsamlega nýtt enda hefur hann ekki til neins sakar unnið annað en að framfylgja því sem af honum var ætlast að gera af sömu aðilum og tóku þá umdeildu ákvörðu að reka hann! Vonandi finnur Guðmundur sér eitthvað þarflegt og gagnlegt til dundurs framvegis enda er hann mjög vel að sér og menntaður í sínum praxís. Kannski minni spámenn komi í stað hans í Skakka húsinu stóra í Árbænum.
Mosi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2008 | 21:08
Hitaveitugangan
Í dag var merkisdagur í sögu Mosfellsbæjar: Nýtt torg í miðbæ bæjarins og nýtt listaverk var afhjúpað með pompi og prakt. Allmargar áheyrileg ávörp ágætra fyrirmanna voru flutt, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar og Kvintett Reynis Sigurðssonar spilaði ásamt Karlakórnum Stefni sem söng mjög vel. Meira að segja tókst honum að syngja Fjallið Skjaldbreiður án þess að jörðin gnötraði rétt eins og á vinabæjarmóti á samkomu í Hlégarði hérna um árið og svo núna aftur á dögunum þegar allt ætlaði um koll að keyra á Suðurlandi vegna samskonar náttúruhamfara!
Eftir vel heppnaða athöfn lagði hluti hópsins af stað áleiðis framhjá Hlégarði, Brúarlandi og Álafossi inn með Varmánni og allt inn að Dælustöð og áfram að Suður Reykjum þar sem rúta ók hópnum til baka. Tilefnið var að um þessar mundir eru 100 ár liðin frá því að bóndinn á Suður-Reykjum, Stefán Bjarni Jónsson frá Dunkárbakka í Daladsýslu fékk þá kostulegu hugmynd að leggja járnpípur úr hver í landi sínu og í íbúðarhús sitt. Þetta tókst með ágætum þó svo að prestinum á Mosfelli sem þá var sr. Magnús Sigurðsson fannst þetta fráleit hugmynd. Það væri jú einskis góðs að vænta af því sem kæmi úr því neðra! Þannig var þjóðtrúin en 20. öldin er umskiptaöld lífskjara okkar þar sem allt varð auðveldara og vonandi betra.
Árið 1907 hafði sami bóndi lagt vagnfæran veg heim á bæ sinn til þess að geta komið mjólk auðveldar á markað í Reykjavík með hestakerrum. Það var því ósköp eðlilegt að þessi sami bóndi sem var ákaflega framfarasinnaður um marga hluti vildi hafa einhvern nytsaman varning úr kaupstað til bakaþó svo að til óvenjumikilla nýjunga þætti: járnrör!
Þessi tilraun Stebba Dunks eins og hann var kallaður í gömlu Mosfellssveitinni tókst með miklum ágætum og er talið að þetta sé upphaf hitaveitu á Íslandi! Af þessu ágæta tilefni var efnt til samkeppni meðal listamanna landsins um gerð listaverks og segja má að hugmynd Kristjáns Hrafnssonar sé með ágætum gert og hafi bókstaflega slegið í gegn. Það er einfalt í sjálfu sér en samt skilur það eftir eitthvað sem maður gleymir ekki, hlýju og góðum minningum um hitaveituna og það er auðvitað aðalatriðið!.
Gangan á eftir sem var að forgöngu Sögufélags Kjalarnesþings og nýstofnaðs Umhverfis- og náttúrurfræðifélags Mosfellsbæjar var bæði ánægjuleg og skemmtileg undir mjög góðri leiðsögn Bjarka Bjarnasonar í bæði góðu og þurru veðri.
Óskandi er að þessi Hitaveituganga verði árlegur viðburður í Mosfellsbæ enda er gengið um athyglisvert og fjölbreytt landslag þar sem mikil saga hefur gerst og gott mannlíf hefur fengið að þroskast í margar kynslóðir.
Mosi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2008 | 20:36
Fylgið fellur
Ljóst er að ríkisstjórnin er búin að tapa meira en 25% fylgi frá því í fyrrasumar. Með sama áframhaldi verður fylgi hennar innan við 10% þegar næst verður gengið til kosninga. Vonandi verður svo því óhætt má fullyrða að vart er unnt að sitja uppi með verri ríkisstjórn en þessa, kannski þegar flokkar Framsóknar og svonefnds Sjálfstæðis á í hlut.
Núverandi ríkisstjórn hefur sýnt af sér að vera bæði ráðvillt og reikul í miklum vanda enda veit hún stundum ekki í hvorn fótinn beri fyrsta að stíga, þann hægri eða vinstri.
Mosi
![]() |
Fylgi stjórnarflokka eykst en fylgi ríkisstjórnar minnkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.5.2008 | 20:03
Skiljanlegt
Lengi vel töldu þeir sem stjórna Sjálfstæðisflokknum að þeir væru n.k. elíta valdsins og gæru stjóirnað þjóðinni eins og þeir töldu rétt vera. Kannski er fátt eins fjarstæðukennt að einn flokkur geti stjórnað stærsta sveitarfélagi landisins og e.t.v. landinu öllu með stjórn eins flokks! Þetta var praktíérað á landsvísu á árunum 1927-1931 með skelfilegum afleiðingum. Framsóknarflokkurinn var einn flokka sem stjórnarði landi og lýð. Á árunum frá stofnun Sjálfstæðisflokks 1929 og allt framtil 1978 stjórnaði þessi flokkur í skjóli meirihluta Reykjavíkurborg og aftur frá 1982 uns vinstri meirihluti stýrði Reykjavíkurborg undir forystu Ingibjargar Sólrúnar tók við völdum sem kunnugt er. Aldrei er hollt að sami meirihluti fari með völd meira en tvenn kjörtímabil. Þá fer að myndast spilling af ýmsu tagi sem ekki er auðvelt að uppræta.
Augljóst er flestum þyki ekki æskilegt að Sjálfstæðisflokkurinn fái meira fylgi en hann nú þegar hefur.
Mosi
![]() |
Fylgi D-lista aldrei minna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 31. maí 2008
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
-
Aðalsteinn Sigurgeirsson
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Kristjánsson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Arnar Pálsson
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Berglind Steinsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björgvin Björgvinsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
busblog.is
-
Bwahahaha...
-
Dagný
-
Einar Ólafsson
-
Gammur drils
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Petersen
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hallvarður Ásgeirsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Helga Auðunsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Þorvaldsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jón Bjarnason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Kaffistofuumræðan
-
Karl Tómasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
-
Kristbjörn Árnason
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Loftslag.is
-
Lúðvík Júlíusson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Ragnarsson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Jóhannesson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Theo
-
Torfusamtökin
-
Trausti Jónsson
-
Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
-
Úrsúla Jünemann
-
Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
-
Vefritid
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 244238
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar