15.4.2008 | 16:42
Yfirgengilegt kæruleysi
Á svona málum þarf að taka ákveðnum, mjög föstum tökum: Þegar þungaflutningabílsstjóri sýnir af sér afglöp í starfi sem þessu, þá á lögreglan skilyrðislaust að svipta hann ökuleyfi til bráðabrigða, sekta og láta hann jafnvel sæta því að fara aftur í ökupróf til að fá endurnýjun ökuleyfis.
Þetta þykir kannski nokkuð harkaleg aðferð, en: Ef þungaflutningabílsstjórar sýna aftur og aftur slíkt kæruleysi, þá er lögreglan búin að tapa. Lög og réttur er einskis metinn og þá er stutt í stjórnleysið. Það væri ekki hagur neins nema þeirra sem vilja upplausn og óreiðu í samfélaginu.
Við því þarf að sporna!
Hins vegar eiga þungaflutningabílsstjórar að vera öðrum góð fyrirmynd í umferðinni. Þeir eiga að sýna aðgæslu og tillitsemi í umferðinni. Ekkert er betur til þess betur fallið en að á sjónarmið þeirra sé hlustað.
Mosi
![]() |
Flutningabifreið föst undir Stekkjabakkabrú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.4.2008 | 16:27
Á gráu svæði
Óumdeilt er að þessi samkoma fór fram í félagsheimili þessa hestamannafélags. Félagið nýtur opinberra styrkja og innan vébanda þess er mikið og gott starf sem einkum er í þágu barna og unglinga. Það er því vægast sagt á gráu svæði að verið sé að draga starfsemi sem varðað getur við lög inn í félagsheimili þessa annars prýðisgóða félagsskapar. Ef þeir menn sem gaman hafa af svona löguðu eiga að sjá sóma sinn í að hafa einkasamkvæmi ótengdnar félagi sem þessu.
Mosi
![]() |
Harðir á strippinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 10:52
Ábyrgð fylgir áhættu
Of mörg alvarleg umferðarslys er vegna þess að ökumenn taka oft óþarflega mikla áhættu. Stundumn hefur komið í ljós við rannsókn lögreglu að í blóði þeirra finnst leyfar af áfengi og jafnvel fíkniefnum. Ljóst er að þegar um það er að ræða slævist dómgreind ökumanna og þeir missa vald auðveldlega á ökutækjunum eins og fjölmiðlar komast gjarnan að máli. Í stað þess mættu þeir einfaldlega að segja sannleikann, að viðkomandi hafi ekið of hratt miðaða við aðstæður og hafi vanmetið þá hættu sem stafaði af of hröðum akstri og jafnvel neyslu áfengis eða fíkniefna, hafi verið um það að ræða.
Allir ökumenn verða að vera meðvitaðir um þá augljósu hættu sem þeir ekki aðeins setja sjálfa sig í heldur alla aðra vegfarendur og jafnvel þá sem eru nálægt vegi. Oft hefur ökumaður sem ekið hefur of hratt, ekið t.d. á hross, kindur og hreindýr sem eru á akvegi, getað afstýrt slíku slysi ef hraða hefði verið stillt í hóf.
Sennilega eru dómarnir mjög eðlilegir miðað við eðli brota. Að skilorðsbinda þá er mjög skynsamlegt enda er tilgangnum náð að dómur hafi áhrif bæði á viðkomandi sem og aðra í samfélaginu.
Allir verða að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem felst í að aka og stýra vélknúnu ökutæki.
Mosi
![]() |
Refsað fyrir að valda slysum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.4.2008 | 09:46
Sýndarmennska
Berlúskóní hefur fyrst og fremst komist áfram sem hefur gríðarlegan auð að baki. Sem stjórnmálamaður hefur hann verið skilgreindur með mjög óljósa stefnu. Hann hefur enga framúrskarandi eiginleika eða stefnuskrá framyfir aðra ítalska stjórnmálamenn.
Brauð og leikar fyrir lýðinn voru frumþarfir hins forna rómverksa lýðræðis. Hefur nokkuð breyst í huga þessa varhugaverða stjórnmálamanns?
Brauð og leika fyrir lýðinn. Hann gerir ekki meiri kröfur. Óskandi væri að ítalskir kjósendur megi sjá gegnum glamrið og glysið. Berlúskóní spilar á ómerkilegt lýðskrum og þjóðernisrembing sem Ítalir ættu að vita af biturri reynslu að er greið leið til glötunar.
Mosi
![]() |
Finn til ábyrgðar" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 09:05
Fágætt frímerki
Saga íslensku frímerkjanna er um margt nokkuð sérstök vegna fámennis þjóðarinnar. Þessi gamla yfirprentun frá 1897 þætti í dag bæði illa gerð og með öllu óskiljanlega viðvaningsleg. En tilefnið var tilfinnanlegur skortur á 3ja aura frímerkjum en svo virðist að nóg hafi verið af 5 aura frímerkjum.
Þessi bráðabirgðalausn á breytingu á frímerkjum er runnin frá síðasta landshöfðingjanum á Íslandi sem þá var Magnús Stephensen og átti eftir að draga dilk á eftir sér. Væntanlega hefur þetta mál verið hið vandræðasta en hann þótti mjög íhaldsamur og fastur fyrir.
Þegar fram liðu stundir mun e-ð hafa verið um falsanir vegna þeirrar einföldu staðreyndar hversu fá frímerki höfðu varðveist og upplagið lítið. Freistingin var mikil að koma þessari einföldu og yfirlætislegu breytingu á upprunalegt frímerki í þeirri von að hafa fé af gálausum kaupanda. Þegar árið 1898 er hvatt til í þýsku frímerkjablaði að láta þessi frímerki hverfa og miklar umræður urðu meðal frímerkjasafnara sem lögðu áherslu á sjaldgæf frímerki.
Um þetta má víst lesa í riti Jóns Aðalsteins Jónssonar Íslenzk frímerki í hundrað ár 1873-1973 og út kom 1977.
Mosi
![]() |
Sjaldgæft íslenskt frímerki boðið upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 15. apríl 2008
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
-
Aðalsteinn Sigurgeirsson
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Kristjánsson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Arnar Pálsson
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Berglind Steinsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björgvin Björgvinsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
busblog.is
-
Bwahahaha...
-
Dagný
-
Einar Ólafsson
-
Gammur drils
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Petersen
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hallvarður Ásgeirsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Helga Auðunsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Þorvaldsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jón Bjarnason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Kaffistofuumræðan
-
Karl Tómasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
-
Kristbjörn Árnason
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Loftslag.is
-
Lúðvík Júlíusson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Ragnarsson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Jóhannesson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Theo
-
Torfusamtökin
-
Trausti Jónsson
-
Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
-
Úrsúla Jünemann
-
Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
-
Vefritid
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 244238
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar