22.10.2008 | 21:25
Má treysta Sjálfstæðisflokknum?
Geir er mjög duglegur að koma fram í fjölmiðlum. Hann reynir að bera í bætifláka eftir því sem efni standa til en oft reynir hann að smeygja sér framhjá óþægilegum spurningum. Í Kastljósþættinum í kvöld þjarmaði Sigmar mjög mikið að Geir og lét hann ekki komast upp með neitt múður án þess að vdera ókurteys í garð Geirs. En Geir á virkilega erfitt enda er málstaður Sjálfstæðisflokksins mjög veikur um þessar mundir.
Sjálfstæðisflokkurinn ber mikla ábyrgð:
Einkavæðing bankanna mistókst.Einungis 6 árum eftir húllumhæ Davíðs og félaga yfir því að bjórframleiðendur í Rússlandi keypti Landsbankann er þessi sami banki kominn í mjög alvarlegt gjaldþrot og ríkiskassinn þarf að hlaupa undir bagga.
Engar kvaðir voru lagðar á rekstur hinn einkavædda banka. Bindiskyldan var nánast afnumin og engir varasjóðir myndaðir til að eiga til að hlaupa upp á.
Um svipað leyti ákveður Sjálfstæðisflokkurinn ásamt Framsóknarflokknum að ráðast í mjög umdeilda og umfangsmikla framkvæmd á hálendinu. Talið er að ákvörðun þessi hafi átt einn megin þáttinn í að hagstjórnin mistókst gjörsamlega enda framkvæmd þessi ofvaxin fyrir svo lítið samfélag sem Ísland er.
Og fleiri syndir má tína til: Um svipað leyti var skrifað upp á umdeilt stríð Bush og Blair gegn Írak sem talið er vera eitt vitlausasta og dýrasta stríð veraldarsögunnar!
Það getur verið gaman að vera með en hvers vegna?
Sjálfstæðisflokkurinn er gjörsamlega rúinn trausti sem hann hefur þó haft meðal þúsunda Íslendinga. Nú er þessi sami flokkur búinn að vera við ríkisstjórn hátt í tvo áratugi og þetta er árangurinn! Ísland rambar á barmi gjaldþrots og við Íslendingar vitum vart hvað upp og niður stendur stundinni lengur.
Við erum rúin sparnaði okkar undanfarinna áratuga hvort sem er í formi hlutabréfa eða innistæða á peningamarkaðssjóðum. Við megum vænta lægri greiðslna úr lífeyrirssjóðum vegna þess að lífeyrirssjóðir höfðu fjárfest í góðri trú í bönkum og fyrirtækjum. Nú er allt ýmist glatað gjörsamlega eins og hlutafé í bönkunum eða stórlega lækkað í hlutafélögum. Dæmi eru um að gengi hlutabréfa hafi fallið um 97% jafnvel í fyrirtækjum sem talin voru fyrir ári síðan mjög vænlegur fjárfestingarkostur.
Ábyrgð Sjálfstæðisflokksins er því mjög mikil. Ósennilegt er að þessi flokkur treysti sér að axla þessa miklu ábyrgð. Meðal margra stuðningsmanna hans á undanförnum árum eru fjöldi fjárglæframanna sem margir hverjir á undanförnum árum hafa verið traustustu stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins og eiginlega Framsóknarflokksins. Þeir eru að öllum líkindum nú mjög uppteknir við að fela slóðina til að koma í veg fyrir að unnt sé að rekja hana.
Þessir miklu fjármunir eru væntanlega að verulegu leyti á leiðinni í skattaparadísir. Mjög mikilvægt er að skattyfirvöld fái tækifæri að kortleggja þessi mál sem best og sem fyrst til að unnt sé að krækja í sem mest af skyndigróða þeirra sem ábyrgð bera á þessum ósköpum.
Mosi
Við munum ekki láta kúga okkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.