28.11.2013 | 10:50
Þörf gagnrýni frá Danmörku
Íslenskir stjórnmálamenn eru sagðir af Lars Cristiansen aðalhagfræðing Danske bank líta fyrst og fremst til skammtímalausna. Þessi gagnýni á því miður mjög mikið erindi til okkar. Einkavæðing bankanna hér á landi til aðila sem hvorkio höfðu næga reynslu í bankaviðskiptum né höfðu vaðið fyrir neðan sig þegar stefnu þeirra varðaði. Þetta einkavæðingarævintýri varð okkur dýrt spaug.
Því miður er farið að bera á nýju gullgrafaraæði og stjórnvöld virðast engan áhuga hafa fyrir siðvæðingu á þessu sviði. Allt á að vera sem frjálsast hvernig sem fólk leggur skilning á það hugtak. Hér á landi virðist vera mikið rætt um að Íslendingar vilji ekki hafa skýrar reglur í samfélaginu um sitthvað sem þó öðrum þjóðum þykir sjálfsagt. Þetta er t.d. mjög áberandi í málsvörn þeirra sem vilja koma í veg fyrir fullri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það er nú einfaldlega svo að agaleysi meðal stjórnmálamanna og vissra athafnamanna og jafnvel atvinnurekenda sem er orsökin að því hvers vegna við urðum að súpa seyðið af mjög vanhugsaðri einkavæðingu bankanna á sínum tíma. Þessi einkavæðing var samfara byggingu Kárahnjúkavirkjunar sem er að mati Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar vægast sagt mjög umdeild framkvæmd þar sem arðsemi virkjunarinnar er langt því frá að vera ásættanleg. Þessi umdeilda framkvæmd leiddi til ofmats á íslensku krónunni en flóð erlends gjaldeyris á þessum stutta tíma vegna fjárfestinga varð of mikið og steig þjóðinni til höfuðs.
Við eigum að hlusta á gagnýni sem er bæði réttmæt og vel rökstudd. Að skella skollaeyrum við þegar aðvörunarbjöllur í eyrum eins og gerðist í aðdraganda hrunsins, er heimska. Því miður virðist ekki vera til nein lækning við heimsku. Við Íslendingar ættum smám saman að læra betur hverjir í stjórnmálunum hafa reynst okkur vel en gleyma sem fyrst þeim sem vilja draga okkur fram í nýtja kollsteypu. Það er nefnilega svo að gróðapungarnir eru komnir aftur á kreik og þeir hafa ekki aðeins auðinn þeir hafa líka völdin.
Velja alltaf skammtímalausnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
SjálfstæðisFLokkur og Framsóknarsjallar bjóða þjóðinni uppá skammtímalausnir en ekki langtímalausnir, allt vegna skammtíma hagsmuna og stundargamans og til að gera heiðarlega tilraun til að hífa fylgi flokka þeirra upp.
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 28.11.2013 kl. 15:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.