23.9.2012 | 18:53
Hvað eru pólitísk fingraför?
Í fréttinni segir: Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að pólitísk fingraför séu á þingsályktunartillögu um rammaáætlun.
Hvað telur þingmaður þessi að séu pólitísk fingraför?
Ákvörðunin um Kárahnjúkavirkjun var einhver svæsnasta og pólitíska ákvörðun sem gekk þvert á alla eðlilega skynsemi. Sú ákvörðun klauf þjóðina í tvær andstæðar fylkingar. Þar var ekkert farið eftir hugmyndum sem fyrir lágu um þáverandi rammaáætlun. Versti virkjanakosturinn var valinn sem hafði mestu umhverfisspjöllin!
Eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í Stjórnarráðinu var tekin sú ákvörðun að fara yfir alla virkjanakosti, flokka þá og skilgreina eftir bestu sjónarmiðum náttúrufræðinga og annars fagfólks. Ef Unnur Brá telur það vera pólitísk fingraför þá mætti hún skoða betur söguna: Einkavæðing kvótans og síðar bankanna, ákvörðunin um Kárahnjúkavirkjun og stuðning við Íraksstrðið eru þetta ekki pólitísk fingraför?
Mætti þingmaður þessi skoða betur söguna áður en hún lætur frá sér fara fleiri furðulegar yfirlýsingar.
Góðar stundir.
Deila um pólitísk fingraför | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.9.2012 kl. 12:15 | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Núverandi stjórnarflokkar voru í stjórnarandstöðu þegar vinna við rámmaáætlun hófst. En það eru rúm tíu ár síðan þeirri vinnu var hrundið af stað í víðtækri sátt í þinginu.
Hins vegar er það svo að þetta ca. ár síðan vinnu við rammaáætlun lauk, hefur niðurstaða þeirrar vinnu legið föst innan stjórnarflokkanna. Þar sem ekki liggur sátt um niðurstöðu faglega skipaðrar nefndar um málið milli stjórnarflokkanna.
Hvað Kárahnjúkavirkjun varðar, þá var ákvörðunin um hana, þverpólitískari en þú virðist koma auga á, Guðjón. Skoðaðu bara hvaða flokkar voru í meirihluta í sveitarstjórnum á svæðinu, hverjir áttu Landsvirkjun, þar átti Reykjavíkurborg stóran hlut og var borgin á þeim tíma undir stjórn R-listans.
Kannski væri nær að finna slysinu "Hellisheiðarvirkjun" allt til foráttu. Enda er ákvörðunin um þá nær skuldlaus eign R-Listans.
Hvað einkavæðingu kvótans varðar, þá áttu væntanlega við framsalið. Það er skuldlaus eign vinstri flokkanna, sem þá hétu reyndar Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag, og Framsóknarflokksins. Sem að með lögum 38/1990 heimiluðu framsal aflaheimilda og festu núverandi kvótakerfi í sessi.
Hvað Írak varðar, þá var stuðningur við það stríð, móralskur fremur en að hann hefði getað komið í veg fyrir það stríð. En ekki er lengra síðan en þegar stríðið í Líbýju var háð, að það stríð var háð með fullu samþykki stjórnarflokkanna. Enda var það stríð háð af NATO og ákvörðun um það tekin á fundi hjá NATO þar sem íslensk stjórnvöld höfðu neitunarvald og hefðu því getað komið í veg fyrir beina þátttöku NATO í því stríði, með því að beita neitunarvaldi.
Hvað einkavæðingu bankanna varðar þá er það sjálfsagt að rannsaka hana eina ferðina enn. Það verður svo hægt að rannsaka einkavæðingu Steingríms á bönkunum, að loknum næstu kosningum.
Kristinn Karl Brynjarsson, 23.9.2012 kl. 22:12
Kárahnjúkavirkjunin var alltaf umdeild á sínum tíma og jafnvel enn. Vendipunkturinn í andstöðu gegn henni varð þegar þáverandi borgarstjóri í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún tók þá umdeildu ákvörðun að leggjast ekki gegn áformunum um Kárahnjúkavirkjun. Þar með var kominn mikilsverður liðsauki. Ingibjörg taldi að það væru hagsmunir Reykvíkinga sem hún rökstuddi ákvörðun sína. Þetta voru afdrifarík mistök.
Varðandi Hellisheiðarvirkjun þá var hún ekki umdeildari en svo að bæði Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir sáu ekkert henni til foráttu.
Varðandi kvótamálið þá voru afdrifaríkustu mistökin þegar stjórnmálamenn leyfðu veðsetningu og afsal kvótaheimilda. Þar með gátu kvótahafar gert kvótann að féþúfu.
Einkavæðing bankanna hefur ekki verið rannsökuð nægjanlega, því fer fjarri!
Góðar stundir!
Guðjón Sigþór Jensson, 24.9.2012 kl. 12:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.