Heyr, heyr!

Mörður hefur mikið til síns máls.

Bankarnir eru rót þess illa sem einkennir ástandið í samfélaginu. Þeim hefur öðru sinni verið breytt í ræningjabæli. Þar fer fram mjög gróf mismunun hvernig auðmönnum eru gefnar upp himinháar skuldir meðan þeim sem minnst mega sín verða að sitja uppi með okurlán á herðunum. Finna þarf sanngjarna lausn.

Vonandi þarf ekki að þjóðnýta bankana en það kemur auðvitað til greina til að bjarga þjóðinni frá enn meiri hörmungum.

Þau mótmæli sem í gær áttu sér stað einkenndust fremur af skrílslátum en þeim friðsömu mótmælum sem Hörður Torfason beitti sér fyrir hérna um árið. Þau mótmæli beindust í rétta átt. Mótmælin í gær var beint í ranga átt. Þeim bar að beina að bönkunum.

Við Íslendingar höfum aldrei í sögu lýðveldisins átt möguleika fyrr á því að hafa virkilega vinstri stjórn sem hefur það að markmiði að efla samfélag eins og það best þekkist í heiminum eins og á hinum Norðurlöndunum. Okkar samfélag hefur einkennst mjög af því að hér hafa tveir stjórnmálaflokkar skipt völdunum milli sín annað hvort annar eða báðir saman. Það endaði með skelfingu eins og við mátti búast þar sem valdagleði og græðgi stjórnar för.

Vonandi ber vinstri stjórnin okkar þá gæfu að leysa þessi hrikalegu vandamál og þá byggist allt á að reisa sér ekki hurðarás um öxl. Við þurfum fyrst og fremst að leggja áherslu á að bönkunum sé stjórnað skynsamlega og að þeim verði sýnt nægilegt aðhald með stjórn og skipulag. Bankakerfið í dag er enn ofvaxið og þar tíðkast enn ofurlaun sem eru í engu samræmi við einhverja skynsemi.

Mörður: Haltu áfram þínu góða og farsæla starfi!

Mosi


mbl.is Mörður: Venjuleg pólitík er lömuð á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Má ég benda þér á að Mörður var sá sem svaraði í sjónvarpsviðtali að hann vissi ekkert afhverju fólkið var að mótmæla. Er hægt að vera óhæfari?! Merkilgegt gott og farsælt starf það!

Freyr (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 10:54

2 identicon

Hvernig átti Mörður að svara öðruvísi, veist þú Freyr nákvæmlega hverju fólk var og er að mótmæla.  Það er ekki nokkur vinnandi vegur að svara því eins og kom fram í viðtölum sem fjölmiðlar tóku við fólk í mótmælunum í gærkvöldi.  Það svaraði enginn eins, allir eru að mótmæla á sínum forsendum og er það allt í lagi og bara hið ágætasta mál.  Eins og Mosi segir, þá beinast mómælin í allar aðrar áttir en þá réttu ............af því bara.  Mörður er ekki á nokkurn hátt þótt hann hafi svarað spurningunni á þennan hátt.

Jónína (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 11:58

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Freyr: vissi nokkur nákvæmlega fyrirfram hverjir stóðu að skrílslátunum í gær? Það var herútboð hjá heimdellingum að mótmæla. „Mótmælin“ fóru úr böndum. Fólk á hungurmörkum fleygir ekki matvælum. Skynsamt fólk brýtur ekki rúður eða slítur upp gróður.

Auðvitað á fólk að mótmæla fyrir utan bankana en ekki ráðast á þinghúsið. Þetta er OKKAR hús þar sem þingræðið og lýðræðið á heima.

Jónína: sammála þér.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 5.10.2010 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband