Refsivert er að taka lögin í sínar hendur

Það hefur aldrei verið vel séð þegar menn sameinast í því að taka lögin í sínar hendur og gera það sem þeim langar til.

Aðferðin er nokkuð subbuleg og einnig er ámælisvert hvernig þeir fara með líkið.

Ekki kemur fram í fréttinni hvort þeir tengist meintum barnaníðing á einhvern hátt annað hvort sem þolendur eða ættingjar eða vinir þeirra komi þar við sögu.

Með því kunna þeir að eiga sér einhverjar málsbætur. En leyndin kringum verknaðinn og að reyna að losa sig við líkið sem ekki tókst, fellur þá.

Í nútímasamfélagi gengur ekki að menn taka sér lögin í sínar hendur. Það tíðkaðist á tímum þjóðveldisins þegar framkvæmdarvaldið var ekki komið til sögunnar eða aðeins vísir að því til staðar.

Þá þurftu menn að gæta hagsmuna sinna, varðveita sæmdina sem öllum var mikilvæg. Hefndarskyldan og hefndarrrétturinn fæddi síðar af sér refsilögin. Elstu fyrirmælin um þau eru í Jónsbók sem reyndar eru að einhverju leyti í Grágás. Eftir siðaskipti kemur Stóridómur, einhver groddalegustu og harðneskjulegustu refsilög sem framfylgt var á Íslandi. Með tilvísun til þeirra voru 18 konur teknar af lífi með þeim hætti að stinga þeim í poka ásamt steinum og fleygja í Drekkingarhyl. Hvað höfðu þessar konur gert? Jú þær voru allar fátækar og höfðu alið börn utan hjónabands. Flestar ef ekki allar þessar konur voru vinnukonur bænda sem höfðu að öllum líkindum misnotað þær með þessum hræðilegu afleiðingum.

Við Íslendingar getum verið stoltir af því að við erum fyrsta landið sem framfylgir ekki dauðadómum eftir 1830. Næstu öldina á eftir eða fram til 1928 þegar dauðarefsing er afnumin úr íslensku hegningarlögunum frá 1869 voru að vísu nokkrir dauðadómar kveðnir upp.

Þessir þrír bresku afbrotamenn hafa með verknaði sínum gerst ekki síður glæpamenn en sá sem þeir grunuðu um græsku.

Því miður er oft sem lögin eru tekin í sínar hendur. Gott dæmi er innheimtuaðgerðir Vítisengla og annarra þokkapilta en þar er ekki alltaf farið vettlingatökum um þá sem þeir telja sig eiga inni hjá.


mbl.is Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða barnaníðing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oflátungsháttur?

Þetta viðtal er með ólíkindum. Ætla mætti að Sigmundur Davíð sé orðinn mikilvægasti maður allra tíma og næsta skrefið sé að tala við myndhöggvara og semja við hann um gerð styttu af „leiðtoganum“. Þá mætti flytja styttuna af Jóni Sigurðssyni til að koma Sigmundi þar fyrir en flytja Nonna hreppaflutningi í Hljómskálagarðinn eins og styttuna af Thorvaldsen á sínum tíma. Nonni væri þar sennilega í betri félagsskap Jónasar Hallgrímssonar og Thorvaldsen en þessu voðalega Alþingi þar sem heimskan og háreystin vaða uppi.

Sigmundur er mesti auðmaður þjóðarinnar sem sæti á á Alþingi Íslendinga. Hugmyndafræði hans um gull og græna skóga er eins og hverjar aðrar skýjaborgir sem byggðar eru á sandi.

Var kannski þetta viðtal með glæsimyndum eins og af nýjasta kónginum í heiminum teknum á Þingvelli honum fremur til háðungar?

Góðar stundir.


mbl.is Ætlaði ekki að gera Sigmundi óleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrærigrautur á hægrikantinum

Einkennilegt að maður sem hefur verið búsettur erlendis lengi og haft lögheimili sitt þar, kanni ekki fyrst stöðu sína áður en hann tekur mikilvægar ákvarðanir.

Þessi maður er vart traustsins verður að vera valinn til trúnaðarstarfa.

Að vera með lögheimili sitt erlendis merkir að hann hefur ekki tekið mikinn þátt í þjóðfélagsrekstrinum en vill gjarnan njóta góðs af öllu sem íslenska samfélagið hefur upp á að bjóða.

Í hugum margra er þessi uppákoma eins og einhver hrærigrautur á hægri kanti stjórnmála sem ekki er mikið mark takandi á. Sénsamenn eiga ekki möguleika að taka þátt í stjórnmálum landsins.


mbl.is „Þetta er auðvitað bölvað klúður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. apríl 2013

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband