8.3.2012 | 22:17
Lenti bíllinn ekki á þakinu?
Alltaf er dapurlegt þegar ökumenn aka of hratt. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum er oft tekið svo til orða að viðkomandi hafi misst stjórn á ökutækinu. Í fréttinni var talað um að bifreið hafi vegna handvammar bílstjóra oltið og lent á toppnum. Í mínu ungdæmi var rík venja að tala um þak hvort sem það væri á húsi eða ökutæki.
Orðið toppur kallast á við fyrirbæri sem minnir á tind eða oddhvössu fjalli eða örðu áþekku fyrirbæri. Nú er toppur víða notað og er orðið jafnvel notað yfir flatneskjulegt fyrirbæri eins og flöt bílþök. Hvenær þeir sömu tala um toppinn á húsinu sínu og eiga þá við þakið: Kannski er komin þörf á að mála toppinn. Hver skyldi átta sig á þessari flötu hugsun?
![]() |
Pallbifreið valt á toppinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.3.2012 | 16:46
Lykilatriði
Þegar stjórnendur Landsbankans sjá fram á þrot, bresk yfirvöld vilja leggja íslenskum stjórnvöldum lið að draga saman bankakerfið, þá virðist þáverndi ríkisstjórn hunsa allt slíkt. Af hverju var ekki tækifærið gripið og starfsemi Landsbankans vegna Icesave komið í dótturfyrirtæki undir eftirliti breska fjármálaeftirlitisins?
Geir og félagar velja hins vegar þann kost að gefa breskum yfirvöldum loðin svör. Hvernig má reikna með að viðbrögð Breta verða? Þeir átta sig á því að íslenska ríkisstjórnin ætli ekkert að gera og þá hafi undirbúningur Breta að tryggja hagsmuni sína hafist. Þeir grípa tækifærið þegar Geir setur neyðarlögin og allt fór fjandans til.
Nauðsynlegt er að fá sem vitni Breta þá sem höfðu með þessi mál að gera. Hvaða augum þeir litu á þessi mál en svo virðist eins og okkar lið hafi hagað sér eins og börn.
![]() |
Landsbankinn bað um aðstoð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.3.2012 | 16:03
Upplýsingamiðlun varð verri í tíð Jónasar
Jónas fullyrðir að hann hafi lagt áherslu á að upplýsingamiðlun yrði greiðari.
Eitt lykilatriði við fjármálastofnanir, hlutafélög og markaði er að greiða sem mest fyrir upplýsingum. Gamla var mjög farsæl: þegar sami aðili keypti yfir 5% hlutafjár eða um innherjaviðskipti var um að ræða, var það tilkynningaskylt. Einhvern tíma á því tímabili sem Jónas þessi var forstjóri Fjármálaeftirlitisins var horfið frá þessari góðu reglu. Fram að því mátti ætíð sjá ef innherjar voru að kaupa eða selja hlutabréf og tilgangurinn var auðvitað sá að gera markaðinn gegnsærri.
Síðustu árin hafði enginn aðgang að þessum upplýsingum nema innherjar og þeir sem voru mjög vel sjóaðir í skuggalegum heim hlutabréfanna þar sem hákarlarnir kepptust við að eta litlu sílin sem hættu sér inn á hlutabréfamarkaðinn.
Eitt furðulegasta uppátæki Jónasar Fr. og félaga í Fjármálaeftirlitinu var dæmalaus yfirlýsing 14. ágúst 2008 eftirlitisins um að allir íslensku bankarnir hefðu staðist svonefnt álagspróf! Nokkrum vikum seinna var búið að eta þá gjörsamlega að innan með aðstoð breskra braskara, Davíð búinn að kasta tugum ef ekki hundruða milljarða í þessa sökkvandi bankahít hvers eins fulltrúa við máttum heyra í dag að væri stórhneykslaður á því að hann hefði verið truflaður í vinnunni!
Vel mætti ákæra Jónas fyrir vanrækslu eins og Geir Haarde. Hann virðist ekki hafa verið annað en n.k. puntudúkka í forstjórahjörð Sjálfstæðisflokksins á þessum tíma.
![]() |
Íhugaði að forða sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 8. mars 2012
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
-
Aðalsteinn Sigurgeirsson
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Kristjánsson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Arnar Pálsson
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Berglind Steinsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björgvin Björgvinsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
busblog.is
-
Bwahahaha...
-
Dagný
-
Einar Ólafsson
-
Gammur drils
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Petersen
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hallvarður Ásgeirsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Helga Auðunsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Þorvaldsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jón Bjarnason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Kaffistofuumræðan
-
Karl Tómasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
-
Kristbjörn Árnason
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Loftslag.is
-
Lúðvík Júlíusson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Ragnarsson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Jóhannesson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Theo
-
Torfusamtökin
-
Trausti Jónsson
-
Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
-
Úrsúla Jünemann
-
Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
-
Vefritid
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.10.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 244221
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar