16.9.2011 | 14:08
Gamall draugur
Sennilega var Atómstöðin dýrasta bók sem Halldór skrifaði. Þessi velgengni með Sjálfstætt fólk varð til þess að skattayfirvöld fóru heldur en ekki að hnýsast í fjármál hans. Þekkt er svar hans aðspurður að hann hefði ekkert vit á bókhaldi, peningum og skattskýrslu, það sæi bókhaldarinn um, hann einbeitti sér að skrifa bækur.
Í ársbyrjun 1955 sama árið og Halldór hlaut mestu bókmenntaviðurkennigu sem nokkur rithöfundur getur dreymt um, nóbelsverðlaunin, var hann dæmdur í Hæstarétti fyrir skattsvik! Um þetta er fjallað í 26. bindi hæstaréttardóma bls. 79 og áfram.
Voru þetta pólitískar ofsóknir gegn rithöfundi sem þáverandi stjórnvöldum var ekki að skapi?
Furðulegt er að ekki hafi verið opinber meira en 60 ára gömul skjöl í skjalasöfnum vestra þar sem fræðimenn gætu kynnt sér þessi mál eins og þau voru í bandarískri stjórnsýslu.
Góðar stundir!
Mosi
![]() |
Björn kemur föður sínum til varnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2011 | 13:57
Skynsamlegt samkomulag
Ætli þetta háhitamál sé þar með ekki úr sögunni?
Auðvitað á að vera unnt að komast að skynsamlegum lausnum þegar um er að ræða þingmál sem eru til bóta fyrir land og þjóð.
Ljóst er að ráðuneyti eru of mörg og þeim mátti fækka verulega. Ekkert smáríki getur leyft sér þann lúxús að vera með ofstóra yfirbyggingu.
Í flókinni refskák stjórnmálanna á liðinni öld voru ráðuneytum fjölgað mjög óhóflega, oft vegna flókins valdajafnvægis milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Það þurfti vinstri stjórn að koma einhverju skynsamlegu skikki á þetta!
Góðar stundir!
Mosi
![]() |
Ráðuneytaskipan háð samþykki Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2011 | 13:49
Hluthafar almenningshlutafélaga rísi upp!
Einu sinni átti eg hlutabréf í Landsbanka að nafnvirði 100.000 en seldi þegar mér leist ekkert of vel á flumbruganginn hjá stórnendum bankans.
Hins vegar tapaði eg miklu í Atorku, Kaupþingi og Existu sem eru nú talin vera einskis virði eftir hrunið. Allt voru þetta almenningshlutafélög.
Til stjórnenda almenningshlutafélaga ber að leggja auknar skyldur:
Þeir eiga að stýra fyrirtækjunum með langtímamarkmið í huga, leggja fyrir í varasjóði til að mæta erfiðleikum þegar á móti blæs. Þeim ber að sýna hófsemi í kaupkröfum sínum og þar með gott frumkvæði. Þannig er unnt að byggja upp gagnkvæmt traust.
Við sem töpuðum sparnaði okkar eigum að taka okkur þetta mikilvæga framtak okkur til fyrirmyndar. Við getum hafið málsókn gegn stjórnendum fyrirtækjanna m.a. á þeim forsendum að þeir hafi ekki stýrt fyrirtækjunum með hag hlutafjáreigenda að leiðarljósi. Þetta kann að vera erfitt að sanna en mikilvægt af þeim ástæðum að þessi almenningsfyrirtæki verði rannsökuð ofan í kjölinn.
Þetta kann að vera erfitt með sum eins og bankana og Atorku sem voru afhent kröfuhöfum en ekki sett í gjaldþrot. Þrotabú hefur mjög rúmar heimildir að rannsaka bókhaldsgögn og þar með aðdraganda að því að allt lenti í vitleysu. Þrotabúið getur velt hverjum steini og jafnvel rifta aftur í tímann umdeildum gjörningum. Í stjórn Atorku voru 2 hæstaréttarlögmenn sem hafa væntanlega gert sér grein fyrir þessari ábyrgð sinni og með ákvörðunum komið í veg fyrir að bókhaldið og líkleg fjármálaóreiða kæmi í ljós. Kannski það hafi verið þeim í hag að kröfuhöfum var afhent forréttingin án þess lífeyrissjóðir landsmanna og litlu hluthafarnir gætu gert ráðstafanir við hagsmunagæslu sína.
Landsbankinn er enn í eigu íslenska ríkisins og það kann að vera ástæða þess að Ólafur Kristinsson hdl telji von um að koma ábyrgð á stjórnendur bankans.
Góðar stundir
Mosi
![]() |
Margir styðja hópmálsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 16. september 2011
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
-
Aðalsteinn Sigurgeirsson
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Kristjánsson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Arnar Pálsson
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Berglind Steinsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björgvin Björgvinsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
busblog.is
-
Bwahahaha...
-
Dagný
-
Einar Ólafsson
-
Gammur drils
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Petersen
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hallvarður Ásgeirsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Helga Auðunsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Þorvaldsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jón Bjarnason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Kaffistofuumræðan
-
Karl Tómasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
-
Kristbjörn Árnason
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Loftslag.is
-
Lúðvík Júlíusson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Ragnarsson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Jóhannesson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Theo
-
Torfusamtökin
-
Trausti Jónsson
-
Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
-
Úrsúla Jünemann
-
Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
-
Vefritid
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.10.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 244224
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar