Sýnum skussunum skósólana!

Þessi frétt frá Írak er sennilega ein sú kostulegasta sem sést hefur frá þessum heimshluta. Þó mjög grátlegt sé komið fyrir hag Íraka og Bandaríkjamanna reyndar líka, þá er þetta fréttaskot mjög brosleg. En svo er eins og bush hafi verið viðbúinn þessu nýja leynivopni.

Spurning hvort íslenskir mótmælendur eigi ekki að taka upp þessa aðferð sem vakið hefur heldur betur athygli. Teiknum skósóla á mótmælaspjöldin!

Mætum á Austurvöll næstkmandi laugardag!

Mosi


mbl.is Skókastarinn fyrir rétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lán frá Rússum

Í haust sem leið var Mosi á ferð um Rússland.Aldrei hefur Mosi stigið fæti þar og var fróðlegt aðsjá þar og skoða hvað fyrir augu bar. Athygli mikla vakti hve Rauða torgið er í raun miklu minna en það sýndist vera í gömlu áróðursmyndunum frá tímum Kommúnistaflokksins á Sovéttímanum. Við fórum alla leið á Heimsenda, lengst austur í Síberíu þar sem heitir Petropavlosk á skaganum Kamtsjatka. Flug þangað frá Moskvu tekur 9 tíma með Iljúsin 4ra hreyfla flugvélum. Um 1. þátt þessa mikla ferðaævintýris hefur Ragnhildur umhverfisfræðingur Freysteinsdóttir (Sigurðssonar jarðfræðings) ritað allítarlega í nýjasta tölublað Skógræktarritsins, sjá heimasíðu Skógræktarfélags Íslands: http://www.skog.is

Rússland er gríðarlegt flæmi og víða má sjá hve margt er þar á eftir tímanum. Á Kamtsjatka má víðast hvar sjá hrörlega mannabústaði í fögru umhverfi eins og tíðkaðist fyrir hálfri öld hjá okkur. Mikil „nostralógía“ kom upp hjá Mosa, hann upplifði nánast æsku sína að nýju að sjá þessar lágreistu en hrörlegu byggingar.

Við komum t.d. að jarðhitaorkuveri sunnarlega á skaganum. Þar var vægast sagt nokkuð miður að sjá hve umgengni er áfátt. Það sem bilar eða gengur úr sér er einfaldlega látið vera eins og enginn beri neina ábyrgð. Þannig voru ýmsar yfirgefnar og stórskemmdar byggingar, sannkölluið hreysi, sem einhvern tíma höfðu mátt sjá fífil sinn fegurri.

Rússar eiga væntnalega nóg með sín gríðarlegu vandamál að þeir séu ekki að hlaupa undir bagga með okkur Íslendingum. Hins vegar gætum við veitt þeim ýmsa þjónustu á móti. Við gætum t.d. veitt þeim aðstoð á sviði betri jarðhitanýtingar og jafnframt eflt mjög okkar möguleika að afla nýrra verkefna fyrir athafnarmenn okkar á sviði jarðhitanýtingar. Þá er ferðaþjónusta algjörlega á byrjunarreit en náttúra Kamtsjatka er mjög fögur með gríðarlega háum eldfjöllum og vellandi hverum.

Það hefur staðið dálítið í Mosa að rita ferðasöguna ítarlega. Fyrirlestur flutti Mosi hjá Umhverfis- og náttúrufræðifélagi Mosfellsbæjar fyrir rúmum mánuði. Allmikið myndefni er Mosi með undir höndum og gefst vonandi tækifæri að miðla áfram til þeirra sem áhuga hafa.

Mosi


mbl.is Rússar geta lánað 500 milljónir dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ólæti eru ekki til framdráttar

Þó ótalmargt sé unnt að finna að störfum Fjármálaeftirlitisins þá er of langt gengið að sýna óvirðingu með grjótkasti og rúðubrotum.

Enginn ber neinn hag af slíku og það er ekki til framdráttar mótmælum sem eiga að vera friðsöm.

Mjög mikilvægt er að lögreglan hafi hendur í hári grjótkastara enda getur grjót í höndum óvita verið stórhættulegt.

Allir bera að huga að afleiðingum gerða sinna. Friðsöm mótmæli bera árangur þó sent sé. Þau eru auðvitað tímafrekari.

Mosi


mbl.is Rúður brotnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins axlar einhver ábyrgð!

Tryggvi Jónsson hefur sýnt gott fordæmi með því að axla ábyrgð. Auðvitað gengur ekki að sá sem hefur verið lykilmaður í mjög miklu viðskiptaveldi, sé ráðinn í mikilvægt og viðkvæmt starf í banka.

Hagsmunaárekstrar geta komið upp og ef minnsti vafi er á, ber mönnum að láta af þeim starfa.

Mættu fleiri meðal æðstu ráðmanna þjóðarinnar taka sér Tryggva sér til fyrirmyndar. Ríkisstjórnin hefur t.d. sýnt af sér ótrúlegt ráðaleysi og vandræðagang sérstaklega gagnvart Bretum. Ríkisstjórnin hefur staðið sig mjög illa við að upplýsa landsmenn um stöðu mála og jafnvel leynt mikilvægum upplýsingum. Hún er á góðri leið að grafa sjálf undan sjálfri sér og á því ekkert gott skilið. Vandinn verður stöðugt meiri eftir því sem tíminn líður. Að sumu leyti má sjá hliðstæður við Kerenski stjórnina rússnesku en þá var stutt í kollsteypuna miklu og þá ógnaröld sem byltingin kallaði á í rússnesku samfélagi.

Við verðum að forðast slíkt!

Hver verður næstur til að axla ábyrgð?

Mosi


mbl.is Tryggvi hættur í Landsbankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkklæðin hafa enga vasa

Glórulaus græðgi

Finnur verður seint vændur fyrir óheiðarleika af sínum vinum. En hvenær er komið nóg? Græðgin gleypir sálina og spillir henni. Þegar þorri þjóðarinnar tapar, raka stóreignamenn gróða, gríðarlegum gróða.

Hvað þessi dauðlegi maður hyggst gera við sinn mikla gróða er á huldu. Gunnar Dal heimsekingur kennir að þegar fjáraflamenn hafa sankað að sér 100 milljónum þá verði það auðurinn sem stýri lífi þeirra en ekki þeir sjálfir.

Einu sinni fyrir langt löngu veðjuðu tveir landeigendur í gömlu ensku nýlendunum í Norður Ameríku um það hvort þræll sem gefið væri frelsi kæmi aftur. Þeir sögðu við þann ófrjálsa: „Þú ert frjáls frá þessari stundu og mátt eignast eins mikið land og þú getur farið um á einum degi. Farðu núna af stað“. Þrællinn fyrrverandi kom aldrei aftur enda vildi hann gjarnan þekkjast gott boð. Hann hljóp léttilega allan liðlangan daginn, hljóp æ lengra til að ná í sem mest landsvæði. Svo kom að hann féll dauður niður af mæði og ofreynslu. Hjartað hafði gefist upp. Hann naut þess ekki að verða landeigandi gríðarlegs flæmis.

Amma Mosa sagði einu sinni: „Vertu trúr yfir litlu, þá verður þér trúað fyrir meiru - seinna“.

Því miður eru gömlu góðu gildin á hverfanda hveli (upprunalegt var þetta orðtak: á hverfanda hjóli, Grettis saga).

Græðgin var ein af „dauðasyndunum sjö“ og eftir gömlu kenningum kaþólsku kirkjunnar tryggðu menn sér vist í því neðra og að falla í þann heita pytt.

Þýskt máltæki segir: „Das letzte Hemd hat keine Taschen“ sem útleggst: Líkklæðin hafa enga vasa. Hvers vegna þyrfti að hafa vasa á líkklæðunum þegar sá dauði getur ekki haft neitt gagn af veraldlegum gæðum sínum þegar ormarnir og pöddurnar ráðast að hræinu.

Mosi


mbl.is Milljarðahagnaður á viðskiptum með Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. desember 2008

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.10.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 244236

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband