Allt mögulegt gerist í Amríku!

Því miður er þetta alheims vandamál: Að svíkja og svindla fé út úr öðrum.

Í nánast hverri einustu íslenskri stórfjölskyldu eru dæmi um að einhver svartur sauður hefur fengið uppáskrift fyrir láni eða ábyrgð í banka. Bankarnir eru þekktir fyrir að fara stystu leiðina að peningunum. Ef innheimtumenn bankanna vita um að amma skuldarans eigi eignir, þá eru þeir furðu fljótir að þefa slíkt uppi.

Fyrir um 15 árum dæmdi héraðsdómari í skuldamáli með mikilli hjartagæsku. Sá sem hafði fengið bankalánið reyndist gjaldþrota. Bankinn beindi innheimtu sinni að ömmu viðkomandi sem hafði séð aumur á barnabarni sínu og skrifað undir skjal sem fól í sér sjálfsskuldarábyrgð, þ.e. eins og hún væri raunverulegur skuldari. Þrátt fyrir að ljóst væri að lagalega séð væri blessuð konan ábyrg f.h. barnabarnsins, sýknaði héraðsdómarinn gömlu konuna og var dómurinn rökstuddur að þetta væri siðferðislega rangt. Bankarnir fóru hamförum og vonandi hafa þeir gætt sín betur eftir þetta.

Traust er yfirleitt mjög mikið meðal ættingja sem vilja gjarnan styðja hvern annan. En þegar á bjátar þá getur traustið og trúnaðurinn orðið skyndilega einskis virði.

Þessi mál eru ætíð mjög viðkvæm eins og rétt er unnt að ímynda sér. Því leggur Mosi til að fordæma ekki þá sem með góðsemi sinni vilja aðstoða, en sjálfir skúrkarnir mega sitja uppi með skömmina og sömuleiðis bankarnir þegar þeir sýna af sér vítavert kæruleysi aðlána lítt skilríku fólki fé.

Mosi


mbl.is Fangelsuð fyrir að féfletta ættingjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul tækni

Svona getur farið þegar fúskað er með húsbyggingar. Eigi kemur fram í fréttinni hversu gamalt þetta hús var sem hrundi né hvort einhverjar ástæður voru fyrir því, t.d. jarðskjálftar.

Víðast hvar í Suðurlöndum eru hús byggð með svipaðri tækni og tíðkast hefur í áratugi, jafnvel aldir. Mosi hefur séð hvernig hús eru byggð á hinum ýmsu Kanaríeyjum. Í flestum tilfellum er hús byggð með  hleðslusteinum og tæknin oft nokkuð fornfáleg. Sumstaðar eru vinnupallarnir mjög sparlega byggðir og byggingarefnið híft upp með handaflinu, smíðaður gálgi og hjóltryssa hengd í hann þannig að hífing fer fram alfarið með mannshöndinni! En athygli vekur að Spánverjarnir gleyma yfirleitt ekki að setja þverstífur á vinnupallana sem hefur verið afdrifaríkt stundum, t.d. þegar gamla Iðnaðarmannahúsið við Lækjargötu var tekið í gegn fyrir um 2 áratugum og vinnupallarnir hrundu með skelfilegum afleiðingum.

Þar sem hús eru byggð með viðurkenndum aðferðum og byggingaefni, eftir stöðlum sem taka tillit til ytri aðstæðna á borð við jarðskjálfta, veðurs og vinda, þá á svona lagað ekki að geta átt sér stað.

Mosi

 


mbl.is Hús hrundi á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varúð varúð!

Að ræða um ríkisstuðning fyrir enn eitt ævintýrið er alltaf mjög varhugavert vegna fordæmanna.

Nú hefur sauðfjárbúskapur og reyndar mjólkurframleiðsla verið ríkisstuddur mjög mikið undanfarna áratugi. Það var Ingólfur á Hellu sem innleiddi þessa tegund stuðnings ríkisins þegar hann gegndi störfum landbúnaðarráðherra í Viðreisnarstjórninni.

Uppi eru raddir í Sjálfstæðisflokknum að þetta hafi verið ein alvarlegustu mistökin sem sú stjórn gerði og má vissulega með góðum rökum taka undir það. 

Sauðfé hefur farið mjög illa með jarðargróða víða í íslenskri náttúru þar sem það fær að rása um holt og hæðir, fjöll og firnindi. Þegar trjákenndur gróður ásamt beitilyngi hverfur í íslensku gróðursamfélagi vegna sauðfjárbeitar er hætta á ferðum!

Geitfé gengur jafnvel enn ver um landið. Það á til að naga allt niður í rót rétt eins og hross í sveltihólfum!

Að taka upp ríkisstyrki til að styðja slíkan búskap er vægast sagt eitt það umdeildasta sem unnt er að hugsa sér.

Þó væri unnt að binda slíkan stuðning afar ströngum skilyrðum sem EKKI ætti að vera hvatning til fjölgunar geitfé en að vissu marki og það verður að halda alfarið í heimahögum. Ella er von á að þetta fari úr böndum og verði til vandræða er fram líða stundir.

Mosi 


mbl.is Vilja að ríkið aðstoði geitabændur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. desember 2007

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband