Hvaða fíflagangur er þetta?

Stríðsbrölt er mesta niðurlæging þeirra sem fyrir verða. Hvað vakir fyrir þessi æsingaliði er með öllu óskiljanlegt.

Mætti biðja þetta fólk að haga sér eins og siðað fólk? 


mbl.is MR lýsir yfir stríði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krókur á móti bragði

Stjórnarandstaðan á að leggja fram frávísunartillögu á framkomna skammsýna tillögu svonefnds utanríkisráðherra. Ljóst er að fyrst ber að taka þessa tillögu til afgreiðslu. Stórnarandstæðingar krefji eins margar skýrslur og álytsgerðir og þurfa þykir og draga þetta mál sem lengst!

Þessari aðferð beitti fyrri stjórnarandstaða og gafst vel.

Árni Þór þingmaður VG vakti athygli á þessu í fréttum RÚV núna kl. 14. 


mbl.is Fer gegn stórum hópi fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýst er yfir stuðning við foyrstu.. en hverra?

Eitthvað er bogið við þessa yfirlýsingu eldri borgara meðal Sjálfstæðisflokksins þar sem lýst er yfir stuðningi við forystu flokksins væntanlega. Nú er svo að flokkurinn er klofinn og núverandi formaður virðist vera óformlegt útibú Framsóknarflokksins á vegum Sigmundar Davíðs og Þórólfs Gíslasonar kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki sem er nanast guðfaðir núverandi ríkisstjórnar.

Rétt hefði verið að  sá sem orðað hefur þessa yfirlýsingu hefðu vandað betur til undirbúnings hennar og kannað betur staðreyndir núverandi mála.

Þessi ríkisstjórn er dæmigerð ríkisstjórn átakastjórnmála: Allt er lagt í sölurnar og öllu breytt eins og bankahrunið sem sennilega var núverandi meirihluta ekki eins ókunnugt og þeir vildu í veðri láta. Þeir vissu nefnilega allt sem þeir vita máttu og létu allt „frjálst“ þannig að braskaranir fengu fullt og ótakmarkað frelsi að gera það sem þeim sýndist.

Afleiðingin varð bankahrunið í boði nákvæmlega sömu aðila og einkavæddu þá og eru nú við meirihlutastjórn. Er þetta ekki eins og hver annar rumpulýður sem veður uppi sem við allir borgarar þessa lands þurfum að varast!


mbl.is Samtök eldri sjálfstæðismanna álykta um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel-lygni Bjarni : Mikilvægi þess að venjulegir borgarar taki til sinna ráða

Fyrir rúmum fimm árum voru gríðarleg gegn steinsofandi stjórnvöldum sem virtust gjörsamlega utanveltu í því sem var að gerast. Þau mótmælu enduðu með afsögn ríkisstjórnar Geirss haarde og nokkru síðar Davíðs Oddssonar sem seðlabankastjóra.

Núna erum við að mótmæla ríkisstjórn sem virðist ekki átta sig á því að við erum lýðræðisríki. Hér er allt í einu samansafn af kjánum eða öllu heldur bjánum sem telja sig vita allt betur en allir landsmenn. Fjármálaráðherra hefur í Kastljósi uppljóst vanþekkingu sína á því að þjóðin er ríkisstjórninni æðri en ekki öfugt. Hann telur að þjóðin vilji annað en hún vill! 

Umboð þessarar ríkisstjórnar er byggt á kosningaúrslitum síðustu þingkosninga. Þar fengu Framsóknarmenn allt of mörg atkvæði vegna vægast sagt mjög vafasamra kosiningaloforða sem í raun hafa reynst skrum og nánast innihaldslaus. Sjálfstæðisflokkurinn rétt marði inn lágmarksfylgi og formaðurinn taldi sig vera hólpinn að geta genigð til stjórnarsamstarfs við einhvern versta pólitíska ref sem nú situr á Alþingi Íslendinga. Og það hefur komið í ljós að það er einmitt formaður Sjalfstæðisflokksins sem hefur þurft að fara í verstu skítaverkefni ríkisstjórnarinnar, tekið að sér umdeildasta og jafnframt óvinsælasta sem vandmeðfarasta ráðuneyti ríkisstjórnarinnar. Og nú standa málin þannig að vegna þeirrar tillögu sem Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram að binda endanlega og formelegan endi á viðræður við Efnahagsbandalag Evrópu stendur formaður Sjálfstæðisflokksins frammi fyrir alvarlegasta klofningshættu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið frammi síðan 1929.

Nú mætast stálin stinn. Greinilegt er að Bjarni Benediktsson virðist ekki vilja neinar sættir hvorki við þjóðina né flokkinn sem honum hefur þó verið treyst að stjórna.

Á tímum svonefndrar Viðreisnarstjórnar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks á árunum 1959-1971 var fyrir hverjar borgarstjórnarkosningar og kannski fleiri kosningar settur upp borði þevert yfir Bankastrætið ofarlega:„ X-D Vörn gegn glundroða! X-D“. Kannski mætti setja upp borða þvert yfir sem flestar götur á Íslandi: „Allt annað en X-D og X-B - Besta vörnin gegn glundroða“.

Með umsókn vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að Evrópusambandi Evrópu var leitast að því að finna auðveldurstu leiðina að stöðugleika í íslensku samfélagi. Nú hefur Sigmundur Davíð GFunnlaugsson og Bjarni Benediktsson yngri (sá eldri var miklu skárri) leitast við að draga íslensku þjóðina inn í einhvern skrýutinn og einkennilegan vef lýga, blekkinga og svika. Ekkert kosningarloforð þeirra hefur staðist.

Nú þarf kannski að rifja upp sögurnar af Vel-lygna-Bjarna!

Og Sigmundi sem kannski er kominn í beinan karllegg af Merði Valgarðssyni! Einhverri verstu óheillakrákum Íslandssögunnar!


mbl.is Mótmælunum á Austurvelli lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Bjarni samkvæmur sjálfum sér?

Sjónarmið Bjarna eru og orðrétt haft eftir frétt Morgunblaðsins:

„Bjarni sagðist hins vegar ekki vilja taka þátt í því leikriti, sem sett hefði verið upp á síðasta kjörtímabili þar sem í raun væri verið að draga 28 aðildarríki ESB á asnaeyrunum í umsóknarferli án þess að hugur fylgdi máli“. 

Hvernig var með leikritið sem hann setti upp í Gálgahrauni? Þar mátti þjóðin horfa á einstakt leikrit í boði sama manns: Hvernig lögreglu var sigað á friðsama mótmælendur sem vildu koma í veg fyrir náttúrueyðileggingu sem var vegna hagsmuna þessa ættmenna sama manns!

Þegar Ómar Ragnarsson var handtekinn vorum við Íslendingar mjög nalægt fasisma. Hvenær lögreglu verður næst sigað á friðsama mótmælendur verður vonandi ekki.

Mjög sérkennilegur tvískynningur er í málflutningi þessa ömurlega ráðherra. Hann ber hagsmuni 28 Evrópuríkja meir fyrir brjósti að þurfa ekki að blanda sér í jafnómerkilegt mál að hans ályti og aðild að Evrópusambandinu. En það er sjálfsagt að gefa mótmælendum sem varðveita vilja íslenska náttúru langt nef.

Þessi þokkapiltur ætti að sjá sóma sinn í og segja af sér ráðherradómi, þingmennsku og forystu í þeim stjórnmálaflokki sem lengst var stærstur og vinsælastur á Íslandi enda virðist hann ekki búa yfir miklu siðferðisþreki.

Hann fær sjálfsagt nægan tíma til að telja seðlana sína þegar jarðýturnar í Gálgahrauni hafa unnið sitt starf.


mbl.is „Vilji þjóðarinnar skýr“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni grefur sér djúpa pólitíska gröf

Við Íslendingar erum nálægt 70% tengdir gegnum EFTA og síðar ESE við Evrópusambandið. Meginviðskiptalönd okkar eru í Evrópu og gjaldmiðillinn sem gengur á milli í viðskiptum eru evrur, nema á Íslandi!

Braskaralýðurinn sem bæði Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson eru ágætir fulltrúar fyrir vilja halda dauðahaldi í krónuna, þennan vandræðagjaldmiðil sem hefur verið nánast gervigjaldmiðill frá 1886 þegar Landsbankinn var stofnaður. Og þessir aðilar tengjast hagsmunahóp sem telur framtíð sína vera tengda við krónuna en allt of oft bar brugðið á ráð arðráns vinnandi fólks á Íslandi með gengisfellingum.

Núverandi ríkisstjórn byggir tilveru sína á blekkingum og kosningatrixi. Nú eftir að þjóðin hefur setið uppi með þessa ríkisstjórn í meira en 8 mánuði, bólar ekkert á einu einasta kosningaloforði nema einhverjum loðnum fyrirheitum sem enginn skilur í nema Sigmundru Davíð sem að öllum líkindum er kominn í beinan ættlegg frá Merði Valgarðssyni.

Þýski heimspekingurinn og rithöfundurinn Friedrich Nietzsche sagði að tómt mál væri að koma sannleikanum að hjá fólki sem hefði trú og traust á það sem í þýsku er nefnt „Illusion“. það orð hefur verið nefnt á íslensku glapsýn, tálvon og jafnvel blekking. Vel mætti nefna það mýraljós enda eru sagnir um að menn hafi glapst út í botnlausar mýrar til að freistast að höndla það. Nietzsche átti við að meðan fólkið trúi á tálsýnina verði ekki komið vitinu fyrir það. Núna virðist það fólk sem kaus þessa stjórnarflokka vera að átta sig á það var svívirðilega blekkt. Og reiði þess mun vaxa!

 


mbl.is Ranglega stofnað til málsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að ganga alla leið: Dvergríkið Skorradalur?

Á þeim einkennilegu tímum sem við nú lifum þar sem stjórnmálamenn fara mikinn og vilja öllu ráða er eitt fámennasta sveitarfélag landsins að gera upp við sig hvort það eigi að vera sjálfstætt eða sameinast öðru sveitarfélagi. Nú er niðurstaðan komin: Yfirgnæfandi meirihluti hreppsmanna vill að sveitarfélagið sé og verði áfram sjálfstætt!

Hvernig væri að ganga alla leið og segja sig úr lögum við allan fíflaganginnog stofna nýtt ríki á Íslandi? Dæmi eru um að smáríki dafni ágætlega og má nefna á Monakó í Suður Frakklandi, San Marinó og Vatikanið á Ítalíu. Og hvers vegna gæti Skorradalshreppur ekki orðið algjörlega sjálfstæður frá allri vitleysunni sem við sitjumj upp með sem Sigmundur Davíð og félagar hans hafa leitt yfir þjóðina? Nú bendir flest til að Sjálfstæðisflokkurinn verði klofinn í herðar niður vegna einstakrar tilhlýðisemi formannsins við sjónarmið Sugmundar Davíðs, þessa nýmóðins Marðar Valgarðssonar í íslenskri pólitík. Á Alþingi íslendinga er hver höndin móti annarri og hefur lengi verið. Skorradalur er einstakur dalur með vatni eftir endilöngum dalnum þar sem friðsemd og fögur náttúra dafnar. Og mannlífið engu að síður þar sem byggðir hafa verið nálægt 600 hús við vatnið auk þeirra bóndabæja sem þar eru fyrir. Í dal þessum hefur fólk ekki verið að andskotast mikið út í hvort annað, fólk vill dvelja þar og njóta kyrrðar og friðsældar.

og Skorradalur gæti orðið sannkölluð skattaparadís allra þeirra sem þrá sjálfstæði og vera ekki upp á aðra komna. Stofnum fríríki í Skorradal og gefum öllum þeim sem hús og landsspildur eiga í Dalnum möguleika að gerast þegnar Fríríkisins.

Forsenda sjálfstæðis er að efnahagur sé góður og traustur. Tekjustofnar sveitarfélagsins hafa reynst traustir en útgjóld og annar rekstrarkostnaður eins hógvær eins og gerist á bestu bæjum.

Og sem þjóðhöfðinga væri Davíð á Grund að öllum líkindum sjálfkjörinn höfðingi fríríkisins:  Hertoginn af Skorradal eða á þýsku: Herzog von Skorradalur. Hann er ljúfmenni hið mesta, er jákvæður til allra málefna og vill greiða götu allra. Svo mætti efna til heráðsþings á fornum þingstað sveitarinnar þar sem öll málefni yrðu til mergjar krufin, þau rædd og rökstudd og síðan skynsamleg ákvörðun tekin. Og að sjálfsögðu myndum við bera upp þá lýðræðíslegu uppástungu eftir að hafa sagt okkur úr lögum við braskara og bananalýðveldið Ísland að sækja um inngöngu í Evrópusambandið því sjálfsagt er að vera í góðum tengslum, bæði menningarlegum, viðskiptalegum og hagsmunatengslum við frændur vora í Evrópu!

Fríríkið Skorradalur gæti orðið að fyrirmyndarríki innan Íslands þar sem frelsi og sjalfstæði íbúanna væri virt í hvívetna. þar þyrftum við ekki að sitja uppi með allt of marga kjána sem kjósa allt of marga bjána til að fara með landsstjórnina eins og gerðist fyrir tæpu ári og hefði aldrei átt að verða. Því miður er landsstjórnin í dag byggð á blekkingum og svikum

Gjör rétt, þolum ei órétt! 


mbl.is Skorradalur verði áfram sjálfstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitlausasta tillagan á þingi

Mjög líklegt er að þessi tillaga Gunnars Braga sé vitlaustasta tillaga sem komið hefur fram á Alþingi Íslendinga. Maðurinn er kappsfullur en að eg held fremur illa „póleraður“ er illa að sér um flesta hluti, ekkert með of mikla menntun, stúdentspróf og ekkert meira, hefur unnið við sitt lítið af hverju en aldrei lengi dugað á neinu sviði. Líklegt er að hann „gufi“ upp eins og hvert annað tæki í höndum Þórólfs kaupfélagsstjóra á Sauðárkrók.

Fyrir þá sem nenna að lesa lífshlaup Gunnars Braga og afreksverk hans má lesa á slóðinni: http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=722

Við þetta er að bæta að þetta er sami maður og vildi gera viðskiptasamning við kína, eins alræmdasta aðila mannréttindabrota í heiminum. Honum finnst alveg sjálfsagt að greiða götu kínverskra braskara hér á landi en Evrópusambandið, sem ætti að standa okkur Íslendingum öllu nær, það ber að sökkva aðildarviðræðum niður á sextugt dýpi.

Þessi náungi sem hefur utanríkismál okkar í hendi sér taldi ekki vera þörf á að lesa nýkomna skyrslu um Evrópusambandið. hann var með öðrum orðum búinn að gera sér fyrir löngu skoðanir sem honum þykir sjálfsagt að hann einn fái ráðið. Því miður hefur heimurinn haft mjpg slæma reynslu af einræðisherrum hvort sem þeir bera nafnið Napóléon, Músólíni, Hitler eða Stalín. Það er alveg óþarfi fyrir þjóð sem telur sig vera frjálsa að sitja uppi með enn einn einræðisherrann og að þessu sinni hvort sem hann heitir Sigmundur Davíð eða Gunnar Bragi. Við þurfum ekki einræðisherra!

Það eru ótalmargir kostir við aðild að Evrópusambandinu þó svo að Þórólfur kaupfélagsstjóri á Sauðárkrók kunni að vera á örðu máli ásamt sporgöngumanni sínum Gunnari Braga. Þórólfur er þekktur um land allt að takast það sem hann vill og vonandi verður unnt að stoppa hann sem og Gunnar Braga í þessu máli.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið borinn ofurliði í viðræðum  við Framsóknarflokkinn í þessu máli. Fjölmargir aðilar á Íslandi eru inni á því að það sé glapræði að fleyga í burtu viðræðum við Evrópusambandið. Með því er verið að hverfa frá þeirri stefnu að leita víðtækrar samvinnu við nágranna okkar í Evrópu um stöðugleika í efnahagsmálum, viðskiptum, stjórnmálum og menningu. Við getum eignast sameiginlegan stöðugan gjaldmiðil og fleygt krónunni sem ætti að vera safngripur á hverju framsóknarheimili landsins!


mbl.is „Ég styð ekki þessa tillögu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krefjumst þjóðaratkvæðis!

Framsóknarflokkurinn hefur verið að færa sig upp á skaftið með hverri vikunni sem líður.

Í fyrra var gerður viðskiptasamningur við Kína eins harðsvíraðsta einræðisríki heims þar semmannréttindi eru ekki upp á marga fiska.

Nú vill þessi sami Framsóknarflokkur slíta viðræðum við Evrópusambandið með einfaldri þingsályktun sem þýðir að „öryggisventillinn“ á Bessastöðum verði ekki virkur.

Mjög þung rök eru fyrir því að við sækjum um aðild að Evrópusambandinu og auðvitað með þeim skilyrðum sem atvinnuhættir okkar og sérstaða varðar. Að einn maður og einn flokkur ákveði hvað Íslendingar eigi að gera í þessu máli, er með öllu ósamboðið öllum lýðræðislegum forsendum. Adolf Hitler og Jósep Stalín gátu upp á sitt eindæmi ákveðið þetta en Sigmundur Davíð verður að athuga að hann er hvorki Hitler né Stalín hvað ákvörðunarvald íslensku þjóðarinnar viðtekur.

Eg krefst þess að þessi vægast sagt umdeilda ákvörðun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar verði borin undir þjóðaratkvæði hið allra fyrsta. Þjóðaratkvæði gæti orðið samhliða sveitarstjórnarkosningum nú í vor. Engin sannfærandi rök eru fyrir því að einn flokkur eigi að ráða svo afdrifaríku málefni. Kostirnir við aðild að Evrópiusambandinu eru margir, fleiri en viðskiptasamningur við Alþýðuveldið Kína, einn mesta mannréttindabrotaaðila í dag.

Eg vona að sem flestir innan Sjálfstæðisflokksins sýn i og sanni að þeir séu sjálfstæðir gagnvart einræðistilburðum Sigmundar Davíð og Gunnars Braga og stoppi þá lögleysu sem hér er í undirbúningi.


mbl.is Hafa ekki umboð til að ákveða þetta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forysta Sjálfstæðisflokksins lætur kúga sig

Lang flestir sem hafa kynnt sér stjórnmál, viðskipti og samstarf Evrópuríkja sjá fyrir sér marga góða kosti við aðild að Evrópusambandinu. Danir, Finnar og Svíar hafa ekki kvartað og er einkennilegt að ekki sé minnst aukateknu orði á þá staðreynd. Viðskiptaráðið og atvinnurekendur sem og ASÍ vilja aðild en andstaðan er helst hjá núverandi forystu Framsóknarflokksins.

Aðild að Evrópusambandinu er góð trygging fyrir auknum stöðugleika í samfélaginu. Það vill forysta Framsóknarflokksins ekki!

Íslenska er neinn af lélegustu gjaldmiðlum heims og hefur lengi verið. Enginn heilvita maður vill sjá íslensku krónuna og vildu gjarnan hafa gjaldmiðil sem unnt er að treysta. Forysta Framsóknarflokksins vill halda dauðahaldi í íslensku krónuna enda er hún orsök margs kyns brasks, blekkinga og svika þar sem gengisfellingum í þágu auðmanna er gjörnýtt.

Betri tengsl við Evrópuríki á sviði viðskipta, efnahagsstjórnar, stöðugleika og menningar fer gegnum Evrópusambandsins. það vill forysta Framsóknarflokksins ekki því hún telur betur komið að eiga viðskiptasambönd við Kína, eins versta einræðisríkis heims þar sem mannréttindi eru ekki metin upp á marga fiska.

Innan Evrópusambandsins er mikið starf háð á sviði menningar, umhverfisverndar, neytendavewrndar, mannréttinda og sitthvað fleira. Forysta Framsóknarflokksins vil þetta ekki enda telur hún hafa meira vit í kolli fárra en allt Evrópusambandið.

Innan Evrópusambandsins er kappkostað að efla sem mest lýðræði og ákvörðunarrétt þegnanna. Vill forysta Framsóknarflokksins gefa öllu þessu langt nef? 

Og þú líka Brútus: Hvers vegna vill Sjálfstæðisflokkurinn ganga undir þessa einstefnu Framsóknarflokksins og gera ekkert úr því mikilvæga starfi sem fólst í viðræðunum og Íslendingar höfðu haft töluvert gagn af? Er forysta Sjhálfstæðisflokksins viljalaus og lætur Framsóknarflokknum að ráða?

Ansi er eg hræddur um að Ólafi Thors hefði þótt forysta flokksins lúti lágt í duftið að gera allt til að þóknast duttlungum og frekju Framsóknarflokksins.

Bjarni Benediktsson afsalaði sér nánast báðum mikilvægustu embættuunum, forsætisráðherrastólnum og utanríkisráðuneytinu. Og tekur að sér langerfiðasta, óvinsælasta og umdeilasta ráðuneytið!

Það getur verið gott fyrir Sigmund Davíð að hafa góðan og hlýðinn fjósamann sem samþykkir hvaða dellu hans sem er. 


mbl.is Umsóknin verði dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 243041

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband