Ferðaþjónustan blómgast

Segja má að ferðaþjónusta á Íslandi er vöxtulegasti atvinnuvegurinn í dag. Við getum tekið sífellt á móti fleiri ferðamönnum með hverju árinu sem líður. Fjárfesting í þessari grein er mun ódýrari bak við hvert starf en í stóriðju kostar það hundruði milljóna fjárfestingar. Við getum á okkar forsendum aukið ferðaþjónustuna og sniðið okkar þjónustu að þörfum og væntingum ferðamanna.

Nú er svo komið að stærsta fyrirtækið í ferðabransanum, Flugleiðir, verður að fjölga starfsfólki sínu um allt að 400 manns. Þetta er áþekkur fjöldi og starfar í álbræðslu! Nú hlýtur álbræðsluáhugamönnum að verða fátt um svör þegar þeir eru að hjala seint og snemma um „að koma hjólum atvinnulífsins af stað“. Víðar eru „hjól atvinnulífsins að snúast“ en í álbræðslunum, spurning hvort þau snúist jafnvel ekki hraðar í ferðaþjónustunni?

Spurning er hvenær hingað koma 1.000.000 ferðamenn árlega. Má jafnvel reikna með því að ekki líða mörg ár að það verði staðreynd.

Ferðaþjónustan er skemmtilegt og gefandi starf. Miðað við vinnu í álbræðslu er það hollt og sálarlífgandi andstætt við sálarlaust álver.


mbl.is Erlendir ferðamenn aldrei fleiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Nú veit ég ekki hvort þú ert ESB sinni en ef við göngum í ESB og tökum upp evru mun ferðamannaiðnaðurinn hljóta af því skaða. Evran er t.d. ekki að virka fyrir ferðamannaiðnaðinn í Grikklandi.

Til að auka hag okkar Íslendinga þarf að gæta þess að hafa ekki öll egginn í sömu körfunni. Það er hætt við að illa fari hér ef við reiðum okkur nánast alfarið á einn atvinnuveg. Þess vegna er gott að ferðaþjónustan er í vexti, hún myndi vaxa enn hraðar ef gjaldeyrishöftunum væri aflétt. Nú þurfa núverandi stjórnvöld bara að lækka skatta verulega á ferðaþjónustuna og aðra atvinnustarfsemi og þá mun störfum fjölga enn frekar. Verst að núverandi stjórnvöld skuli gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir fjölgun starfa, bæði í ferðaþjónustunni og í öðrum geirum. Sorglegt var að fylgjast með stjórnvöldum jarða hugmyndir um að fá hingað útlendinga og veita þeim læknisþjónustu, það átti að vera á Suðurnesjum en verður nú hvergi þökk sé yfirvöldum.

Áliðnaðurinn er fínn og ég skil ekki af hverju þú ert að hnýta í hann. Gjaldeyristekjur þjóðarinnar af útflutningi áls námu 225 milljörðum króna í fyrra. Það er engin smá summa en vel hægt að auka hana og fá tekjur af vistvænu orkunni okkar, rafmagni. 2000 manns vinna við íslenska áliðnaðinn. Hann hefur einnig valdið því að raforkuverð til heimila hefur lækkað.

Helgi (IP-tala skráð) 13.1.2012 kl. 23:09

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þakka þér aths. Helgi. Áttu ekki við ferðaþjónustu? „Ferðamannaiðnaður“ í merkinunni ferðaþjónusta er orðskrýpi nema átt sé við framleiðslustarfsemi t.d. minjagripagerð eða e-ð í þá áttina.

Eg held að þó evran sé á brauðfótum sem stendur þá muni hún rétta úr kútnum. Nú er meginútflutningur okkar og innflutningur í evrum þannig að það á ekki að skipta máli fyrir ferðaþjónjustuna þó tekjurnar séu að mestu leyti í evrum.

Verðum við ekki að vona að Eyjólfur hressist?

Kv.

Guðjón Sigþór Jensson, 16.1.2012 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 242949

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband