Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Bravó!

Áþekka akrein þarf einnig að leggja frá Vatnsmýrinni og alla leið austur með Miklubrautinni! Þá verður gaman að aka í strætó og leyfa blikkbikkjunum að bíða í löngum röðum meðan brunað er framhjá!

Mosi


mbl.is Grafið fyrir nýrri akrein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérkenni peningafölsunar

Svo einkennilegt sem það kann að hljóða þá er refsiverður verknaður fullframinn þegar peningaseðill er falsaður. Ekki þarf að reyna að koma honum í umferð heldur er refsivert að eftirgera löglega mynt og seðla. Blekking er ekki alltaf nauðsynleg til að maður geti bakað sér ábyrgð. Í sakfræðinni er talað um að fullframningarstigið sé fært fram.

Þarna eru mikilsverðir hagsmunir viðskiptalífsins hafðir í fyrirrúmi og kappkostað að girða fyrir allar leiðir til peningafölsunar.

Mosi

 


mbl.is Í fangelsi fyrir peningafals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins hlustað á íbúa Hveragerðis

Til hamingju Hvergerðingar! Til hamingju allir þeir sem vilja sýna skynsemi og varkárni í virkjanavæðingu landsins! Til hamingju allir Íslendingar!

Mosi


mbl.is Hætt við Bitruvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherraræði

Þessi ákvörðun ráðherra byggist ekki á neinum skynsömum rökum. Verið er að láta undan þrýstingi frá þröngum hagsmunahópi og í leiðinni er verið að grafa undan hvalaskoðun. Með þessu er  ráðherra að sér vald sem minnir á einræði.

Greinilega er mjög alvarlegur ágreiningur um þetta málefni í ríkisstjórninni.

Mál sem þetta hefði þurft að undirbúa betur. Það hefði þurft jafnvel að leggja það í dóm þjóðarinnar. Praktísk mál ber að leggja undir þjóðaratkvæði. Auðveldara er að taka vitrænar ákvarðanir undir slíkum kringumstæðum byggðar á frelsi og lýðræði. Sjálfsákvörðunarréttur þjóðarinnar er oft hunsaður af ráðherrum. Því miður.

Mosi


mbl.is Óánægja með hrefnuveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dapurleg ákvörðun

Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að leyfa hrefnuveiðar er ekki aðeins umdeild, hún er mjög dapurleg og beinlínis röng í ljósi þess að nóg virðist vera af birgðum af hrefnuafurðum frá fyrri veiðum. Er beinlínis verið vísvitandi að grafa undan ferðaþjónustunni? Því miður hafa yfirvöld ekki sýnt ferðaþjónustunni neinn verulegan skilning en hlustað því meir á óskir þeirra sem virðast vera óheft veiðimennska í blóð borin.

Ekki er að sjá að nein skilyrði séu bundin þessari furðulegu leyfisveitingu annað en að rætt er um hámarksfjölda þeirra dýra sem sjávarútvegsráðherranum þykir sjálfsagt að deyða. Ekki virðist vikið að neinu tagi að nánari skilyrðum hvar veiða megi dýrin á Faxaflóa. Sennilega verða þau dýr drepin á þeim slóðum þar sem það er auðveldast og lítilmannlegast, jafnvel framan við augu þeirra ferðamanna sem borgað hafa ferðir til Íslands dýrum dómum m.a. til að skoða hvali.

Hvet eindregið hvalaskoðunarfyrirtæki að lýsa yfir að geri megi ráð fyrir að þau krefjist eðlilegra skaðabóta úr hendi ríkissjóðs f.h. fjármálaráðherra og sjávarútvegsráðherra enda hafa þau gríðarlega hagsmuni að gæta.

Hvalveiðar á vegum sjávarútvegsráðherra eru tímaskekkja. Þessi leyfisveiting er honum til mikils vansa og gæti haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér.

Mosi


mbl.is Veiðimenn ekki farnir af stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir forsetinn?

Nú verður spennandi að heyra um þennan atburð frá þeim kostulega forseta Venesúella sem minnir stundum meir á skemmtilegan trúð en alvörugefinn stjórnmálamann.

Annars er fyllsta ástæða fyrir Bandaríkjamenn að fara sér hægt og reyna fremur fyrir sér að efla friðsamleg samskipti við Rómönsku Ameríku, þ. á m. Kúbu en hafnarbannið sem sett var á fyrir nær 60 árum er einhver sú vitlausasta ákvörðun sem tekin hefur verið.

Mosi


mbl.is Bandarísk herflugvél rauf lofthelgi Venesúela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástæða til varúðar

Á aðalfundi Landverndar fyrir nokkrum vikum vakti Stefán Arnórsson jarðfræðingur og prófessor athygli á að með því að fara of geyst í virkjun jarðhita gæti það haft afdrifaríkar afleiðingar. Ekki má ganga of nærri auðlindinni en svo að góðu hófu gegndi.

Við megum minnast þess, að áður en Nesjavallavirkjun var tekin í notkun, var gengið ansi nærri jarðhitakerfinu í Mosfellssveit. Dæla þurfti heita vatninu af meira dýpi en nokkru sinni áður og var það ekki aðeins mikill kostnaðarauki heldur var deginum ljóst að meira var tekið en náttúran gaf.

Eins er með jarðhitann á Reykjanesskaganum og Hellisheiði. Ef of nærri er gengið að nýta jarðhitann, gæti það haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. Afkastageta náttúrunnar er takmörkuð og það er hlutverk vísindamannsins að rannsaka og ráðleggja. Stefán taldi að e.t.v. væri unnt að ná hámarksafköstum jarðhitavinnslu e.t.v. í 25-30 ár en eftir það mætti jafnvel reikna með tiltölulega hraðri kólnun sem leiddi til að hætta þyrfti a.m.k. tímabundið jarðhitavinnslu svæðanna.

Kannski er þá búið að afskrifa mannvirki en þau eru hönnuð til að geta skilað jafnvel fullum afköstum í a.m.k. einn mannsaldur. Sérstök ástæða er því til fyllstu varkárni því jarðhitinn er ekki endalaus uppspretta.

Þegar haft er í huga að Bitruvirkun hefði ýms íþyngjandi áhrif á íbúa Hveragerðis, græfi undan möguleikum ferðaþjónustu og útivistar í Reykjadal, Grænadal og fleiri dölum norður af Hveragerði, þá er ljóst að betra er að hætta við núna en halda áfram að virkja viðkvæm svæði. Óhófsemi í jarðhitanýtingu kemur óorði á þessa annars mjög mikilvægu starfsemi. Við skulum minnast reynslunnar af Kárahnjúkaumræðunni, deilunum og öllu því sem langt er frá að öll kurl séu komin til grafar. Þar er enn fjölmörgum spurningum ósvarað.

Mosi


mbl.is Bygging Bitruvirkjunar óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þörf á varkárni

Aldrei hefur það þótt vísa á gott að taka lán þegar vel árar í samfélaginu nema vegna sérstakra ástæðna. Bjartur í Sumarhúsum tók lán til að byggja sér betra og stærra hús ásamt því að auka við sig búsmalann. Svo komu erfiðleikaárin, afurðir féllu og allt lenti í vanskilum og vandræðum. Nauðungaruppboði varð ekki afstýrt, Bjartur varð að víkja af jörðinni ásamt uppeldisdóttur sinni Ástu Sóllilju og flæktist niður á Firði. Þar hittir hann fátæka daglaunamenn í verkfalli og þiggur af þeim brauð. Það þótti honum mesta og versta niðurlæging lífs síns þó mótlætið að missa allt sitt væri mikil.

Sérstök ástæða er til að hvetja sem alla að lesa Sjálfstætt fólk eftir nóbelsskáldið, sérstaklega áður en fátækt fólk bregður sér í banka til að slá lán. Að taka lán er eitt grafalvarlegasta ákvörðun hvers einstaklings því með því er hann að ráðstafa tekjum sínum fyrirfram. Lánsfé er ekki eins og happ í hendi heldur leið til að fjármagna skynsamleg íbúðakaup. Oft hefur léttúð við slíka lántöku átt þátt í því að seint og jafnvel aldrei losnað úr skuldafjötrunum. Það er því mikil ábyrgð sem fylgir ákvörðun sem þessari og aldrei ætti nokkurum heilvita manni að taka lán til að fjármagna einhverja óþarfa eyðslu.

Alltaf er betra að leggja fyrir þann hluta sjálfaflafjár og nota þegar virkileg þörf er fyrir það.

Mosi


mbl.is Lifað á yfirdráttarlánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betri vinnubrögð! - takk fyrir!

Betur þarf að vanda til fréttaskrifa af þessu tagi. Sá blaðamaður sem fréttina ritar þarf að lesa vandlega yfir áður en hann lætur hana frá sér fara. Ef hann er nýbyrjaður og treystir sér ekki til þá er sjálfsagt að fá aðra sem reyndari eru að renna yfir textann og leiðrétta það sem betur má fara.

Ein versta villan er að ártalið 1852 verður 1952 sem nær auðvitað ekki nokkurri átt en þá er akkúrat öld frá því síðast sást til þessa sérkennilega fugls.

Mosi

 


mbl.is Geirfuglsegg til sýnis í Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þörf á nánari upplýsingum

Nú er ekki augljóst hvert innihald þessa samnings er og hvaða verði hann er keyptur. Mikilsvert er að treysta sem mest stöðgleika í fjármálalífi landsins en ljóst er að allt aðhald hefur farið úr böndum á undanförnum misserum.

Ef um einfalda ábyrgðaryfirlýsingu norrænu seðlabankanna er að ræða án þess að fórnarkostnaður okkar Íslendinga er ekki mikill þá er það vissulega mikilsverður greiði frændþjóðanna sem ber að fagna. En ekkert er væntanlega ókeypis og það er vissulega mikilvægt að útskýra nánar út á hvað þessi samningur er gerður.

Ef þessi samningur er einhvers konar málamyndaplagg þá er hann jafnvel verri en enginn og aðeins sýndarmennska sem allir sjá í gegn um. Vonandi er að svo sé eigi heldur e-ð sem tryggir stöðu okkar gagnvart gegndarlausum bröskurum sem vaðið hafa uppi að undanförnu.

Mosi


mbl.is Samningur eflir traust og tryggir fjármálastöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 243038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband