Hvað er um að vera?

Hugðust Bretar opna menningaskrifstofu í tenglsum við sendiráð sitt austur í Moskvu? Og rússnesk yfirvöld vilja siga skattalögreglunni á þessa starfsemi?

Á tímum kaldastríðsins voru Rússar með mjög mikla starfsemi í flestum löndum heims. Sendisveit þeirra á Íslandi var t.d. ótrúlega fjölmenn. Voru þeir m.a. nefndir viðskiptafulltrúar þó svo að öll viðskipti þeirra gegnu út á mjög einföld vöruskipti. Þeir seldu okkur olíur og einfalda ódýra bíla hingað en fengu aðallega síld og aðrar fiskafurðir í staðinn auk ullarvarnings framleiddum í verksmiðjum Álafoss í Mosfellssveit.

Í sama kaldastríði voru nokkur bókasöfn kennd við nokkur lönd starfrækt á Íslandi. Eitt af þeim stærri og viðameiri var kennd við upplýsinguna: Upplýsingamiðstöð Bandaríkja Norður-Ameríku og ekki dugði minna en Hótel Saga. Þar mátti fá léðar grammafónplötur, kvikmyndafilmur og auk bóka og var það góð viðbót við þjónustu íslensku bókasafnna. Nú er þetta allt horfið sökum sparnaðar! Með herkjum tókst að halda í þýska bókasafnið sem upphaflega var tengt nafni höfðingjans skáldsins Goethe en er núnan rekið sem deild í bæjarbókasafni Hafnarfjarðar.

Undarlegt að rússnesk yfirvöld reyni að gera allt til þess að koma í veg fyrir svona starfsemi. Það sem þau munu uppskera er að Rússar verði sólgnari í fróðleik frá Vestur Evrópu, breskar bækur, kvikmyndir, fræðsluefni. Svona starfsemi er ekki rekin með gróða í huga heldur þjónusta. Og það auðvitað á kostnað breskra skattborgara.

Spurning er hvernig réttur ríkis að starfrækja slíka starfsemi í öðru ríki. Þegar um eðlilegt ástand er að ræða í frjálsu lýðræðisríki er ekkert gert til að leggja steina í götu slíkrar starfsemi, öðru nær, hún er kærkomin sem viðbót við þá menningarstofnanir sem starfræktar eru.

Er ekki þarna greinileg vísbendingu um miklar breytingar austur í Garðaríki undir stjórn Pútíns? Rússar vilja stöðugleika en þeir þurfa að öðlast tr á lýðræðið, að það geti líka fest rætur í svo stóru ríki sem Rússland er.

Mosi


mbl.is Áfram spenna í samskiptum Breta og Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 243004

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband