Hafa broskarlarnir gleymt gervigóðærinu?

Árin fyrir bankahrunið mikla í boði Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins var sagt vera nánast „endalaust góðæri“. Mikil og dýr glansmynd var dregin upp. Eftirminnileg er myndin af glaðbeittum Geir Haarde sem brosti sínu breiðasta framan í þjóðina og reynt var á sama hátt að draga upp bros á hið nánast steinrunna andlit Halldórs Ásgrímssonar sem einhverra hluta vegna tókst aldrei að losna við pókerandlitið.

Nú tala þeir fjalglega sem aldrei hafa gegnt ráðherraembætti áður og tala um velferð og að hún hafi verið byggð á sandi. Af hverju líta þessir broskarlar sér ekki nær og skoða betur hverju var lofað fyrir síðustu kosningar? Bjarni ætti að gera sér ljóst, að með því að taka þátt í kosningabrellu Sigmundar er hann að axla byrðar sem líkja mætti við myllustein um hálsinn. Hann tekur að sér erfiðasta og jafnframt það ráðuneyti sem mest er gagnrýnt. Þannig tekur hann að sér að verða skotspónn andstæðinga ríkisstjórnar sem safnar óvinsældum með hverri vikunni sem líður.

Blekkingar og svik eru þeir eiginleikar sem stjórnmálamenn ættu að forðast. En þessir tveir forystusauðir ríkisstjórnar telja sig vera það mikla karla að geta vaðið yfir ófæruna þó straumhörð og botnlaus sé.

Látum þá sýna trú sína á loforðunum með verkunum. Verður þeim kápan úr því klæðinu sem þeir telja sig geta ofið frammi fyrir alþjóð fremur en kónginum í ævintýrinu sem taldi sig vera í dýrustu klæðum þó allsnakinn væri.


mbl.is Velferð á lánum reist á sandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

sammála

Kristbjörn Árnason, 12.6.2013 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband