Valdarán hægri manna í skjóli frjálsra kosninga

Í kosningum eru menn frjálsir að lofa öllu hversu vitlaust sem það kann að vera.

Sá flokkur sem náði bestum árangri setti fram sérkennileg kosningaloforð til að koma heimilum landsins að gagni. Strax var spurt: Hvaða heimilum? Öllum heimilum eða bar þeim sem skulda mest og hafa sýnt mesta kæruleysið í fjármálum sínum?

Ljóst er að þegar lán er tekið, er verið að ráðstafa tekjum fyrirfram. Lán verða að greiðast til baka ásamt vöxtum og verðbótum. Framsóknarflokkurinn beitti sér fyrir 110% fasteignalánum, hver var tilgangurinn? Sjálfsagt fékk hann mörg atkvæði út á þetta „glamur“. Nú vorið 2013 lofar hann skuldaafslætti og jafnvel afskrifutm lána! Sjálfsagt hafa margir fallið fyrir einföldu trixi Sigmundar Davíðs að afla þúsunda atkvæða.  

Þessi málefni eru ekki eins einföld og menn ætla. Það var ekki eftirsóknarvert að hreinsa upp eftir óreiðu hægrimanna eftir bankahrunið. Ríkisstjórn Jóhönnu tók að sér þetta erfiða verk sem svo sannarlega má kalla hið versta skítverk.

Sennilega voru hægri mönnum þetta eins og versti þyrnir í augum að vinstri mönnum tækist það sem hægri mönnum hafa alltaf mistekist, að koma efnahag landsins aftur í rétt horf. Þeir lögðu öll þau fjögur ár sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var við völd, áherslu á að vera að þvælast sem mest fyrir og draga mál á langinn og koma helst í veg fyrir að koma þei í gegnum afgreiðslu þingsins með upphlaupum og málþófi. Og núna var tækifærið. Búið að ljúga þjóðina fulla af ómerkilegum kosningaloforðagaspri sem aldrei verða efnd. Og nú eru lyklarnir að Stjórnarráðinu nánast vísir í hendi þeirra sem rændu Búsáhaldabyltingunni.

Tilgangurinn var að grípa völdin, ef ekki núna þá aldrei.

Við verðum að athuga það að forsetinn hefur sýnt að hann er nákvæmlega sami framsóknarmaðurinn í dag og fyrir um 40 árum þegar honum mistókst að ná völdum í Framsóknarflokknum gegnum svonefnda Möðruvallahreyfingu. Besti liðsmaður stjórnarandstöðunnar á árunum 2009-2013 voru hvorki þeir Sigmundur Davíð eða Bjarni Benediktsson heldur Ólafur Ragnar Grímsson sem á örlagastundu dró taum þeirra sem vildu grafa undan vinstri stjórninni með því að vísa tvívegis Icesave samningunum til þjóðaratkvæðis. Þessir samningar voru í takt við skynsamlega og raunsæja lausn en Ólafur Ragnar og fleiri kusu að draga þetta mál niður á tilfinningalegt plan sem er vægast sagt mjög einkennilegt með hliðsjón af þvi að nánast allan tímann var vitað að nægir fjármunir voru fyrir hendi úr þrotabúi gamla Landsbankans til að borga samkvæmt skyldunum.

Því miður verður að segja að tilgangnum þjónar meðalið. Það voru völdin sem kitluðu metnaðargirnd forystusauða Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Þessa menn skiptir engu hvernig völdunum er náð, aðalllega að þau séu í hendi og gildir einu hvaða aðferð er beitt.

Sennilega eigum við eftir að horfa upp á furðulegar ákvarðanir um syndaaflausnir hvítflybbamanna sem og glórulausa einkavæðingu þar sem allt verður gert að féþúfu fyrir vildarvini Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, spiliingin mun halda innreið sína aftur, - og ekkert stopp!


mbl.is Þingstyrkur skiptir ekki öllu máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðjón Sigurþór, "...sjálfasagt margir fallið fyrir einföldu trixi ..."   Þannig er þessu varið í þingræðinu ; kjósendur mega trúa  loforðum frambjóðenda, hversu fráleit og fjarri öllum raunveruleika þau kunna að vera, eður ei.  Við verðum  að sætta okkur við þennan mannlega breyskleika kjósenda, trúgirnina á fögur loforð og einfaldar lausnir, hvort sem okkur þykir það ljúft eða leitt.        

Orri Ólafur Magnússon (IP-tala skráð) 29.4.2013 kl. 08:18

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ekki kæmi mér á óvart að stjórnarmyndun verði mjög snúin og jafnvel mjög torveld með þátttöku Framsóknarflokksins vegna vægast sagt kostulegra kosni9ngaloforða. Sjálfstæðisflokkinn langar í stjórn en er eins og köttur í kringum heita grautarskál. Á þeim bæ eru menn ekki alveg að sjá greiða leið til að efna loforðaflaum Sigmundar Davíðs.

Guðjón Sigþór Jensson, 29.4.2013 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband