Skynsamleg ákvörðun

Syndir feðranna hafa lengi verið afdrifaríkar. Þær draga dilk misjafnlega lengi á eftir sér en alltaf er skynsamlegt að horfast við staðreyndir og leysa þessi mál, hversu vel eða illa okkur líkar.

Formaður Sjálfstæðisflokksins gerir sér grein fyrir þessu og er það mjög virðijngarvert. Ekki eru allir sammála og eru jafnvel alveg miður sín vegna þessarar ákvörðunar. Spurning er hvort yngri mennirnir í Sjálfstæðisflokknum átti sig á þessu eða vilja vera trúir sinni fyrri afstöðu til málsins, að vera á móti þessu vandræðamáli sem kennt hefir verið við Icesave.

Er það ekki ábyrgð að taka ískalda ákvörðun sem kemur okkur aftur af stað með okkar efnahagslíf? Við getum ekki hlaupið frá skyldunum sem á okkur hafa verið lagðar, jafnvel þó enginn sé sáttur við þær. En það eru „syndir“ og afglöp vissra manna sem binda hendur okkar.

Mosi


mbl.is Leysi Icesave hratt og örugglega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Mosi skírðu þetta betur með af stað bætur efnahagsins/þetta virði i fljótu bragði ekki er það,nema siður sé/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 3.2.2011 kl. 14:00

2 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Nei Guðjón ! finnst ekki skynsemi í þessu (nema fyrir litla elítu kannski) 

Það er ótrúleg blinda í gangi hjá mörgum varðandi það hvað það þýðir í raun að ganga til samninga um að láta skattgreiðendur borga þessar "syndir feðranna" það er kominn tími að linni og stað þess að endurtaka allt hér, vísa ég á mitt innlegg við fréttina/tilkynninguna.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 3.2.2011 kl. 14:56

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Endilega hlustið á sjónarmið Vilhjálms hjá Samtökum atvinnulífsins. Hann hefir talað mikið um tjónið sem þjóðarbúið líður fyrir að ekki sé tekið á þessu erfiða máli. Við höfum ekkert lánstraust, sitjum uppi með allt of háa vexti, atvinnulífið í lamasessi og þar með framleiðni í lágmarki og atvinnuleysi vaxandi.

Er þetta sem þið andstæðingar Icesave viljið? Hversu hár má fórnarkosnaðurinn vera? Getið þið svarað því?

Auðvitað vill enginn borga fyrir fjármálaóreiðu annarra. Af tveim kostum er sá kosturinn betri af tveim vondum. Við verðum að vona að sem mest skili sér úr þrotabúi bankanna.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 3.2.2011 kl. 20:39

4 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Guðjón ! það að vísa Icesave frá og til dóms (ef hinir þora) er líka að "taka" á málinu, bara munurinn er að þá er tekið á því eins og á að gera, þessar eílífu dylgjur án staðfestinga, um að allt sé í stöðnun vegna Icesave eru hreinn uppspuni, þarf ekki að lyfta glyrnum hátt né langt til beggja hliða til að sjá það.

Það sem tefur fyrir endurreisninni, er aftur á móti allur sá tími sem eytt er í þetta Icesave samningaferli, ESB aðlögun og síðast en ekki síst fullveldisafsalið AGS.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 3.2.2011 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 242989

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband