Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Mjög ámælisverð skrif: rödd forneskjunnar

Furðulegt er að maður sem telur sig vera áhrifamann í þjóðfélaginu taki upp á að láta frá sér skoðanir af þessu tagi. þau eru gjörsamlega úr takti við alla skynsamlega umræðu. Skoðanir af þessu tagi voru teknar góðar og gildar fyrr á tímum en eru álitnar vera í eðli sínu andfélagslegar.

Rétt væri að Snorri þessi taki skrif sín aftur og biðji þá sem telja sig hafa orðið fyrir miska, afsökunar.

Þó svo að Snorri þessi telji sig vera þokkalega lesinn í Biflíunni þá virðist að honum hafi yfirsést nokkra meginkjarna kristinnar trúar: umburðarlyndið, skilningurinn og fyrirgefningin.

Skrif Snorra eru fyrst og fremst til að ögra samborgurum sínum en að setja fram vel ígrundaða skoðun á einhverju.

Við lifum á 21.öld en ekki þeirri 17. eða undir fasistahæl nasismans. Hvort Snorri vilji innleiða einhvers konar hreintrúarstednu grundvallaðan á þröngsýnni bókstafstrú verður hann að gera upp við sig sjálfur. En hann á að sjá sóma sinn í því að langflestir vilja umburðarlyndið og forðast þröngsýni.


mbl.is Æfir vegna skrifa um samkynhneigð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunir hergagnamangara

Í fréttinni segir að bandarísk yfirvöld átti sig ekki á því hvert markmið heimsóknar rússneska utanríkisráðherrans til Sýrlands sé.

Fram hefur komið að Sýrland hefur keypt umtalsvert magn af rússneskum vopnum á undanförnum árum. Nú er verið að murka lífið úr þeim sýrlensku borgurum sem ekki eru stuðningsmenn þarlendra yfirvalda. Heimsókn rússneska utanríkisráðherrans til Sýrlands er væntanlega tengd áframhaldandi vopnasölu til Sýrlands. Í Öryggisráðinu stóð rússneski fulltrúinn keikur og mótmælti tillögu um frið ásamt þeim kínverska. Fremur sjaldan að Kínverjar og Rússar séu sammála á þeim vettvangi.

Í Rússlandi býr yndislegt fólk sem allt of lengi hefur verið undir kúgun, fyrst keisara, síðar bolsévikka og nú hyggst Pútín stjórnin beita öllum tiltækum ráðum að halda völdum. Liður í því valdabrölti er að tryggja hergagnaframleiðendum í Rússlandi verkefni en þau standa dyggilega að baki þessa umdeilda forseta.

Vonandi vaknar almenningur í Rússlandi hvað yfirvöld þeirra eru að gera. Lýðræði þar í landi er ekki nema á pappírunum, í raun er þar einræði undir lýðræðislegu yfirskyni þar sem alvarleg misferli í kosningum hafa komið í ljós.

Bandaríkin hafa ekki góð spil á hendi enda eru þar einnig gríðarlegir hagsmunir hergagnaframleiðenda sem gjarnan vilja fá aukin umsvif og verkefni.

Á meðan eru mannréttindi metin einskis virði. Sjúkrahús eru vettvangur níðingsverka þessa dagana í Sýrlandi enda þau ekki talinn griðastaður þeirra sem um sárt eiga að binda.


mbl.is Stál í stál í Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mismunun?

Ljóst er að langflestar konur með silikon í brjóstum hafa gengist undir fegrunaraðgerð að eigin ósk og greitt sjálfar fyrir þær aðgerðir.

Hvers vegna geta þær ekki kostað sjálfar fyrir aðgerð að fjarlægja þessi varhugaverðu efni fyrst þær töldu sig hafa efni á að setja silikon í brjóstin?

Augljóst er að ef þessar aðgerðir verða þeim að fullu kostnaðarlausu er verið að mismuna íslenskum borgurum. Ef eg slasast þá verð eg sjálfur að greiða fyrir aðhlynningu og hjúkrun, að mestu. Ef eg fer til tannlæknis til að lappa upp á slæmar tennur, þá borga eg þær viðgerð og allan kostnað sjálfur.

Ef þessar silikonfjarægingaraðgerðir verða þessum konum að öllu leyti gjaldfríar er verið að mismuna þegnunum mjög gróflega. Heilbrigðiskerfið er nú þegar undir gríðarlegu álagi. Það hefur þurft að sæta miklu aðhaldi og sparnaðaraðgerðum. Aðgerðum hefur verið frestað trekk í trekk, sumum meira að segja mjög mikilvægum.

Það er ekki réttlætanlegt að gefa sumar aðgerðir en rukka að fullu fyrir aðrar. Flestum finnst þessar brjóstastækkanir vera algjörlega óþarfar og því með öllu óskiljanlegt að þær konur sem hafa látið tískuna draga sig út í þetta beri sjálfar að kosta aðgerðirnar að koma brjóstum sínum aftur í það lag eins og náttúran hafði í fyrstu útbúið þær.


mbl.is Allir brjóstapúðar fjarlægðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað olli hruninu?

Gylfi getur haft hvaða skoðun sem er á þessum málum En ekki verður gengið framhjá því að tap landsmanna á hlutabréfum var gríðarlegt.

Í aðdraganda hrunsins voru ýms teikn á lofti að ekki væri allt með felldu. Ýmsir athafnamenn og braskarar voru valdamenn víða, oft í skjóli hlutafjáreignar sem var meira brúttó en raunveruleg eign.

Eg minnist þess að nokkru fyrir hrun var boðaður hluthafafundur í Exista. Þar hugðist eg bera fram tillögu um takmörk um atkvæðisrétt í félaginu og vildi fá lífeyrissjóðina til að vera með mér að styðja tillöguna. Hún gekk út á að tvenn skilyrði væru sett fyrir atkvæðisrétti: annars vegar að hlutafé hefði raunverulega greitt til félagsins og að hlutafé væri ekki veðsett. Með þessu móti var unnt að gera braskarana valdalausa. Kunnugt er að þeir Bakkabræður stofnuðu félag einhvers staðar og það fyrirtæki var skráð fyrir 50 milljörðum króna hlutafé í Exista án þess að ein einasta króna hefði verið greidd til félagsins. Auðvitað varp eg undir í atkvæðagreiðslu en nokkrir litlir hluthafar voru sömu skoðunar og eg og guldu tillögu minni atkvæði.

Auðvitað eiga þeir að fara með völd í fyrirtækjum sem fjárfesta til lengri tíma. Sá sem raunverulega hefur fjárfest í hlutabréfum fyrir beinharða fjármuni eins og peninga og hefur ekki veðsett hlutaféð á að fara með atkvæðisrétt, aðrir ekki!

Í dag eru hlutabréf í þessu tryggingafyrirtæki Exista nánast einskis virði, Bakkabræður buðu af rausn sinni öðrum hluthöfum að kaupa hverja krónu fyrir 2 aura!

Enginn fulltrúi lífeyrissjóðanna mætti né þeir höfðu veitt einhverjum umboð! Svona var umhyggjan fyrir þeim eigum sem skjólstæðingar þeirra, lífeyreisþegarnir áttu allt undir.

Nú eru forsvarsmenn lífeyrissjóðanna á mjög háum launum. Þeir ættu að skammast sín ef þeir kunna það og segja af sér áður en þess verður krafist opinberlega.


mbl.is Högnuðust um 472 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er ekki unnt að laga þetta hér?

Furðulegt er að ekki skuli vera unnt að laga þennan galla hér á landi. Umtalsverð reynsla og þekking er við smíði og viðgerðir skipa hér síðan 1902 þegar Slippfélagið í Reykjavík var stofnað. Skipasmíðastöðin á Akureyri hefur verið einna þekktust á þessu sviði á undanförnum áratugum en er víst núna ekki nema svipur hjá sjón miðað við fyrri tíma.

Vonandi eru Íslendingar ekki að glutra niður dýrmætri þekkingu við nýsmíði, viðgerðir og viðhald skipa. Það var miður að þetta skip hefði ekki verið byggt hér en fjarlæg lönd á borð við Kína hafa verið hlutskörp í tilboðum vegna útboða verkefna. Kannski að útboðin séu ekki nógu nákvæm hvað gæði og kröfu verkkaupa snertir. Það er orðið að venju að þessi verk reynast annað hvort gölluð eða svo áfátt að ekki hefur verið unnt að nota efni. Þannig varð meira og minna að framleiða tvisvar efnið í stálgrind glerhjúps Hörpu.

Góðar stundir.


mbl.is Þór frá í fjórar vikur hið minnsta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir mönnum til að gera svona?

Umferðamerki eru vegfarendum öllum til leiðbeiningar, vara við hættum sem ekki eru öllum augljósar. Að fjarlægja og að því virðist vera að slá eign sinni á umferðamerki er vægast sagt óforsvaranlegt. Enginn með góðri samvisku getur haft sig út í svona lagað.

Þó skiltin sjálf séu kannski ekki talin vera metin á hærra verð en tæpa milljón, þá gæti orðið alvarlegt slys mun dýrara og afdrifaríkara vegna þess að aðvörunarmerkin voru fjarlægð.

Vonandi kemst lögreglan sem fyrst á sporið að upplýsa þennan þjófnað á almannaeigu. Ef til vill á sá sem hlut á að máli verið að draga athyglina að einhverju öðru.

Góðar stundir.


mbl.is Umferðarmerkjum stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 242982

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband