Hættulegur vegakafli

Á um kílómetra löngum spotta um Grundarhverfið á Kjalarnesi er hámarkshraði ökutækja um Vesturlandsveg færður niður úr 90 í 70 km hámarkshraða. Margir ökumenn sem farið hafa eftir þessu, hafa sumir hverjir orðið fyrir því að næsti ökumaður á eftir, fari fram úr viðkomandi og valdi aukinni hættu á slysum.

Þarna þarf auðvitað að útbúa sem allra fyrst göng undir veginn eins og svo víða er þar sem mikilvæg og fjölfarin umferðaæð fer um þéttbýliskjarna. Meðan það verk er undirbúið og unnið, þarf lögregla að sinna eftirliti þarna og sekta ökuníðinga,jafnvel svipta ökuréttindum. En það er auðvitað ekki einfalt þegar jafnvel er fækkað í liði lögreglunnar vegna sparnaðar.

Mosi

 


mbl.is Þolinmæði Kjalnesinga á þrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir þetta með þér, Guðjón Sigþór, maður veltir því oft fyrir sér þegar maður fer þarna um (sem er ansi oft í mínu tilfelli) hvort maður sé að gera rétt með því að fara niður í 70 á þessum bletti, því það er næsta víst að einhver virðir ekki hámarkshraðann og fremur tvöfalt umferðarlagabrot með því að aka yfir heildregna línu. Svona er reyndar víðar þar sem þjóðvegir liggja um þéttbýlisstaði, að menn hika ekki við að aka yfir heildregna línu þegar einhver "gerist svo ósvífinn" að fara eftir merkingum og draga úr hraða. Hef oft fengið óbótaskammir frá öðrum ökumönnum fyrir að fara eftir hraðatakmörkunum við svona aðstæður.

Pokamaður (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 11:48

2 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Þarna þarf bara að vera myndavél og taka fallega myndir af hraðakstursmönnunum og láta þá borga vel fyrir myndatökurnar. Svona menn læra ekki nema að það sé tekið á budduna þeirra.

Úrsúla Jünemann, 5.6.2009 kl. 13:08

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þegar hverfið var bygt  þarna átti strax að vera þarna mislæg lítil gatnamót,þetta er þjoðvegur eitt og á að vera 90 km hraði þarna eins og annastaðar í staðlaðri umferð að veiða menn i svona er ekki gott/sektir eru góðr þar sem það á við,en ekki að vera búa til svoleiðis aðstæður nema i neyð/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 6.6.2009 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband