Stríðsundirúningur í 18 mánuði!

Í fréttum kemur fram að yfirvöld hafi undirbúið stríðið gegn Gaza í heila 18 mánuði! M.ö.o. hefur stríð þetta verið í undir frá miðju ári 2007. Nú er skiljanlegt að þessi sömu yfirvöld hafi dregið lappirnar að kappkosta að leysa þetta grafalvarlega mál á friðsamlegan hátt sem hefði verið æskilegt.

Hversu mikið þetta stríð kostar bæði í mannslífum, tilfinningum sem og fjárhagslegum verðmætum er ekki gott að segja. En alla vega hefði verið öllu skynsamlegra að vilja fórna einhverju til að koma í veg fyrir stríðsbrjálæði eins og virðist vera eina leiðin yfirvalda í Ísrael.

Ísland var fyrsta sjálfstæða ríki heims að viðurkenna sjálfstæði Ísraels. Kannski það hafi verið mjög óskynsamleg og örlagarík ákvörðun. Þá höfðu Gyðingar nýstofnað sjálfstætt ríki eftir mikið basl og erfiðleika á ýmsar lundir sem við Ísalendingar skyldum mjög vel enda fundum við til mikillrar samúðar í garð þeirra. En nú virðist þetta sama ríki vera eitt alversta hernaðarbröltsríki heims og erfitt að gera sér grein fyrir hvaða skelfilegu afleiðingu árásarhneigð þessara stríðsherra kann að leiða til.

Framkomin tillaga um að slíta stjórnmálasambandi við Ísraela er að mörgu leyti eðlileg. Það ríki sem fyrst viðurkennir Ísrael hlýtur að vega þungt. Við hefðum getað gefið þeim mjögskýr skilaboð með því að láta verða af því. Og alltaf hefði verið unnt að taka upp stjórnmálasamband aftur þegar Ísraelar átta sig betur á að þeir verða að taka tillit til granna sinna og taka upp friðsamleg samskipti við þá.

Mosi


mbl.is Deilt um stjórnmálasamband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er opinber  stefnuskrá Hamas að gereyða Ísraelsríki.

Það er opinber stefna hins pólitíska íslams s.l.  1400 ár   að drepa alla Ekki-Múslíma (Kafíra) sem ekki játast Íslam  (sjá Kóran 008:039).

Hamas er hernaðararmur  PLO  og Fatah er hinn pólitíski armur. 

Hernaðararmurinn var kosinn af íbúum Gaza og þeir eru því samsekir og ábyrgir fyrir gerðum Hamas.

Sjá illvirkjaskrá PLO  á neðanskráðri slóð.

http://blogg.visir.is/hermdarverk/

Þar er sagt frá morðum PLO á 40,000 kristnum mönnum í Líbanon 1976.  PLO er enginn engill.

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 18:06

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Í upphafi var Kóraninn túlkaður sem virðing fyrir guði og öðru góðu fólki. Arabar efldust mjög menningarlega séð fyrstu aldirnar eftir að hafa kynnst þessum trúarbrögðum sem höfðu bæði gyðingdóm og kristni sem fyrirmynd. Þeir báru uppi menninguna um aldir meðan þjóðflutningatímarnir og fram eftir miðöldum voru nánast að draga úr allri menningarstarfsemi á Vesturlöndum. Það er ekki fyrr en veldi Araba verður fyrir miklum hnekki um austanvert áhrifasvæðis þeirra að herskár innrásarher verður til þess að breyta hug þeirra. Krossferðirnar áttu einnig sinn þátt í að efla tortryggni Araba gagnvart kristnum þjóðum Evrópu.

Hagsmunaárekstrar eru því ekkert nýtt fyrirbæri. Gott er að hafa það sem sannast og réttast reynist. En verðum við ekki að trúa á það góða í hverjum og einum þó svo að jafnvel versti skúrkur hverrar trúar svo sem hann kann að fylgja, sé ekki á ögurstund e-ð dálítið hikandi og jafnvel friðelskandi inn við beinið?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 5.1.2009 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 243041

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband