Tilviljun eða tilbúningur?

Þegar kringumstæður virðast vera heppilegar fyrir stríðsforsetann George Bush, skríður þessi furðufugl Osama bin Laden út úr skúmaskoti sínu. Með fullkomnasta njósnabúnaði getur CIA eða KGB og nánast hvert einasta njósnahreiður í heiminum fylgst gjörla með öllu sem lífsanda dregur. Árum saman hefur mesta herveldi heims verið á höttunum eftir þessum manni sem á að vera fullur hatri og fyrirlitningu á öllu því sem vestrænt er.

Í byrjun september 2001 þegar þessi ósköp dundu yfir þar vestra var fjölskylda þessa voðalega manns flutt með leynd út úr Bandaríkjunum. Hvers vegna í ósköpunum var sú ákvörðun tekin þegar gefið var í skyn að þessi Osama hafi staðið þar að verki? Nú mætti ætla að nánustu fjölskyldumeðlimir væru lykilvitni í þessu máli ef svo hefði verið. En þessi rannsókn var að sögn kunnugra á þessu sviði æríð flaustursleg og ekki allt það rannsakað sem þó væri ástæða til.

Nú var fjöldi manns handtekinn um heim allan þegar ekki gekk nógu vel að hafa í hári þeirra sem grunaðir voru um illdæðin og í veðri látið vaka að þeir væru stórhættulegir. Flogið var með þá vítt og breytt um heiminn ýmist til eða frá Guentanamó fangelsinu illræmda sem bandaríkjastjórn kom á fót utan við lög og rétt. Vitað er að fangarnir voru fluttir til landa sem Bushstjórnin hefur samið við þar sem pyntingar voru ýmist heimilaðar eða að þau voru ekki aðilar að mannréttindasáttmálum. Amnesty international hefur unnið mjög mikilsvert starf að fylgjast með þessu mesta feimnismáli nútímasögu ríkis sem þó telur sig vera í fararbroddi lýðræðis og mannréttinda!

Þessi umdeildi Osama bin Laden er e.t.v. einhver fígúra sem stjórn Bush hefur búið til að unnt sé að réttlæta umdeilt stríð í Írak og ófyrirgefanleg margvísleg mannréttindabrot víða um heim á vegum  bandarískra yfirvalda og þau væntanlega bera ábyrgð á. Á dögum Kalda stríðsins voru það illmennin kommúnistarnir í Kreml sem var sú áþreyfanlega Grýla sem alltaf var unnt að vísa á. Svo kom Gorbasjov sem sýndi af sér ótrúlega framgöngu manns sem tók á þessum málum á ákaflega skynsaman og eðlilegan hátt.  Ekkert ríki heims hafði efni á að halda þessu m vitleysisgangi með tilheyrandi ógnarjafnvægi undir skugga kjarnorkusprengjunnar. Skyldur samfélagsins væru aðrar, að þjóna fólki en ekki hernaðarhyggjunni sem hefur því miður oft á sínum snærum furðulega bíræfna sölumenn dauðans.

Mosi vill vera varkár gagnvart svona hræðsluáróðri jafnvel allt að því tortrygginn enda ástæða til. Lögleysan veður því miður hvarvetna uppi og ekki er unnt að koma lögum yfir þá sem hafa fólk að fíflum. Einu sinni las Mosi ýkjusögurnar af Munchhausen barón sér til gamans og skemmtunar. Þessi fígúra, Osama bin Laden virðist vera af sama toga sprottin en hann virðist vera ærið herskár að því er virðist vera. Hann virðist færa sig í aukana þegar Bush rekur í vörðurnar og e-ð er að fara úrskeiðis hjá þeim í Pentagón.  Áhrif Osama bin Ladens beinast fyrst og fremst að hvetja áhrifagjarnar einfaldar sálir til óskynsamlegra athafna sem beinast fyrst og fremst að valda óbreyttum borgurum dauða og örkumlan. Þessi hermdarverk eru engum guði til dýrðar, hvorki Allah,  Jehóve, Sjiva, Brahma, Búddha, Óðni, Frey og Þór, né neinum öðrum guðum sem maðurinn hefur með frjou hugmyndaauðgi sinni gegnum tíðina búið sér til.

Ætli þessir gömlu karlar hafi ekki þótt meira til friðarins komið en að allt væri á tjá og tundri í kringum þá engum til gagns, nema auðvitað þeim sem gátu grætt á heimskunni.

Með bestu páska- og friðarkveðjum úr Mosfellsbæ

Mosi 


mbl.is Bin Laden hótar Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Eg las þetta með mikilli ánægju og vil bara taka undir þetta!!!!!,Gleðilega Páska og kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 20.3.2008 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 242983

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband