Sálarlaus hernaðarhyggja

Einkennilegt má það vera, að friðsöm þjóð sem vart getur rekið heilbrigðisþjónustu né skólakerfi með þeirri reisn sem í nágrannalöndunum, að allt í einu séu stjórnvöld hugfangin af þeirri sálarlausu hernaðarhyggju sem nú hefur verið í gangi á Vesturlöndum og er nú að festa einnig rætur austur í Rússlandi. Af hverju er þetta allt í einu orðið forgangsverkefni? Þessi barnslega trú á hernað og að alltaf eigi að gera það sem Bandaríkjamamma vill segja þér, er þvílíkt mýraljós beint inn í svartnættismyrkur nauðhyggju núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum. Þar er því miður við völd valdaklíka sem hefur leitt okkur langt af réttri leið til friðsamlegra samskipta meðal þjóða. Í stað þess að fylgja framsýnum mannréttindafrömuðum á borð við Nelson Mandela og fleirri ágætra hugsjónamanna er verið að vígvæða alla heimsbyggðina. Og nú vill utanríkisráðherra okkar Ingibjörg Sólrún sem fyrr á árum var einlægur hernaðarandstæðingur kominn í hóp þeirra sem vilja gjarnan taka þátt í þessum varhugaverða leik.

Því miður vill oft verða lítil umræða um stórmál sem þetta. Nú á eftir nýjustu breytingum á þingskaparlögum á Alþingi aðeins að leyfa stuttar ræður. Kannski verður haldið áfram á þeirri braut og aðeins örfá orð leyfð og ræður þingmanna eftirleiðis minni einna helst á símskeyti.

Sá merki Aristóteles, lærisveinn Plató, setti fyrirsögn framsetningar góðrar ræðumennsku. Hann skipti efninu í þrjá parta: A-B-A. Í fyrsta hluta (A) var nokkurs konar kynning eða inngangur á meginefninu. Þá kom B kaflinn, þessi leiðinlegi þar sem rökstuðningur, heimildir og allt sem máli kunni að skipta kæmi fram. Síðan væri í seinni A hluta þ.e. niðurlag góðrar ræðumennsku þar sem væri stutt yfirlit um aðalatriði og einnig hnykkt á helstu áhersluatriðunum: „Auk þess legg eg til að Karþagó verði lögð í rúst“ endaði t.d. einn frægasti ræðusnillingur í Róm mál sitt í Senatinu þar.

„Ísland axli ábyrgð á eignin öryggi“ er haft eftir Ingibjörgu Sólrúnu. Hvað á hún við með þessu? inntakið er réttlæting að eyða gríðarlegu fé í hernaðarhyggju sem kemur síst af öllu Íslendingum að gagni. Við þurfum engar varnir á borð við herflugvélar sem einungis eru til árása og tortímingar. Við þurfum hins vegar á öllum þeim fjármunum sem hafðir eru af okkur skattborgurum til að reka heilbrigðiskerfið, skólana okkar og þjónustu við alla aldurshópa okkur til hagsbóta en EKKI þessum sálarlausu hernaðarhyggjumönnum!

Mosi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Canada's foreign ministry has placed the United States and Israel on a watch list of nations where prisoners risk being tortured. It has also classified some interrogation methods used by the US as torture, including isolation, sleep deprivation and blindfolding, according to an official document obtained by Reuters news agency. Þar fyrir utan eru gögn frá Hvíta húsinu frá 2003 bara horfinn. Þeir hafa þríst á "delete" hnappinn af áfergi.Einhvers konar skuggi "Watergate" reikar um skrifstofur Hvíta hússins virðist vera.Ágæt frétt finnst mér. En í sambandi við það sem þú skrifar, þá finnst mér stór munur á Ingubjörgu og Birni.En þar sem að íslensk stjórnvöld ákváðu að fylgja bandaríkjastjórn á sínum tíma í sambandi við stríðsrekstur þá er ástæða fyrir utanríkisráðherra að hafa gaumgæfilega athygli á vissum hefðbundnum "innanstokksmunum/steingervingum"  í ríkisstjórninni og þannig lesa gaumgæfni frumvörp þeirra.

ee (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 11:36

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður er þarna sammála  Mosi þetta er allt stritið ferli og við verðum að vera á verði/ Kveðja/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 18.1.2008 kl. 17:51

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður er þarna sammála  Mosi þetta er allt skritið ferli og við verðum að vera á verði/ Kveðja/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 18.1.2008 kl. 17:52

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Við verðum að gera meiri kröfur til þeirra sem við veljum í þingkosningum. Stjórnmálaflokkarnir verða að standa við það sem þeir lofa og þaðá að vera óþolandi að þeir gefi okkur langt nef.

Mosi 

Guðjón Sigþór Jensson, 19.1.2008 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 242938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband