Evran blívur

Þó svo að mörg vandamál séu innan Evrópusambandsins, þá er ljóst að sameiginlegur gjaldmiðill Evrópu er kominn til að vera. 

Meginforsenda þessa gjaldmiðilssamvinnu er að Evrópuríkin standi við ákvæði Maastrichtsamningsins sem eru þrjú: 

1. Hallalaus fjárlaga hins opinbera 

2 Skuldir þess opinbera séu innan marka og

3. Að dýrtíð sem og skuldir annara aðila í ríkinu séu innan viðmiðunarmarka.

Við Íslendingar erum fjarri því að geta uppfyllt þessi skilyrði en hollt er hverri þjóð að uppfylla þau. 

Framsónarflokkurinn i dag er dæmi um eitthvert versta afturhald í stjórnmálum. Þeir eru á móti allri skynsemi og vilja helst af öllu draga okkur inn í einhvern afdal þar sem við fáum helst engar fregnir né nýjungar frá nálægustu ríkum. Hins vegar vildu þeir gera viðskiptasamning við Kína og þá um hvað? Með þessum samningi er verið að opna leið inn í Evrópu með kínverskar framleiðsluvörum sem margar hverjar eru framleiddar við kringumstæður sem hvergi innan Evrópu væri talið mannsæmandi. Í Kína eru mannréttindi ekki talin mikils virði, hvorki einkalyfi né sá sjálfsagði réttur til að lifa í frjálsu samfélagi. Við getum minnst þess aðTíbet var innlimað í Kína skömmu eftir miðja síðustu öld. Ísland gæti jafnvel orðið auðveldari biti fyrir miljarða þjóðfélag Kína að innlima. Allt er það fyrst og fremst undir hagsmunum Framsóknarflokksins og Sigmundar Davíðs komið!

Við Íslendingar eigum að sjálfsögðu að tengjast sem best og traustast Evrópu. En með hliðsjón með þeim eðlilegu skilyðum þar sem sérstaða atvinnuhátta er, sjávarútvegs og landbúnaðar.

Þurfum við á Framsóknarflokki að halda sem vill byggja framtíð okkar undir forsendum forræðishyggumannanna í þeim flokki?

Alþjóðasamfélagið treystir Evrópusambandinu þó svo skammsýnir Framsóknardraugar reyni að telja okkur trú um annað.

Evrópusambandið og evran blívur - þrátt fyrir forræðishyggju Framsóknarforystunnar!

 


mbl.is Mörg vandamál enn óleyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Segja má að leiðir Evrópu og Bandaríkjanna hafi skilið hvað atvinnuleysi varðar í kringum árið 2011. Á meðan atvinnuleysi hefur aukist í Evrópu þá hefur jafnt og þétt dregið úr því í Bandaríkjunum. Rekja má tæp 40% af vexti í atvinnuleysi meðal aðildarríkja Evrópusambandsins árin 2009 til 2012 til Spánar, að því er segir í skýrslunni.

Eina ríkið þar sem að verulegu leyti dró úr atvinnuleysi var hins vegar Þýskaland. Atvinnuleysi á Spáni hefur vaxið úr því að vera um 16% í byrjun árs 2009 í um 26% árið 2013. Meira en fimm prósentustiga vöxt mátti einnig sjá í Grikklandi og á Kýpur. Atvinnuleysi hefur aukist meira á evrusvæðinu en í öðrum ríkjum sambandsins, samkvæmt því sem segir í skýrslunni.

Atvinnuleysi ungmenna áhyggjuefni

Atvinnuleysi meðal ungs fólks í Evrópu hefur einmitt verið sérstakt áhyggjuefni. Árið 2012 var atvinnuleysi meðal ungmenna, þ.e. þeirra sem eru yngri en 25 ára, í aðildarríkjum Evrópusambandsins 23%. Atvinnuleysi ungmenna var meira en 25% í þrettán aðildarríkjum Evrópusambandsins og einungis minna en 10% í Þýskalandi, Austurríki og Hollandi.

Árið 2012 var atvinnuleysi ungmenna á Spáni 53%, en 55% í Grikklandi. Atvinnuleysi var einnig mikið í öðrum löndum þar sem hagvöxtur var lítill eins og á Ítalíu, í Portúgal og Slóveníu, eftir því sem fram kemur í skýrslunni.

Í skýrslunni er einnig fjallað um atvinnustig, sem er skilgreint sem hlutfall starfandi manna af fólki á vinnualdri. Þar segir að atvinnustig í Evrópu hafi aukist frá miðjum tíunda áratug síðustu aldar og fram til ársins 2008 þegar það hafi náð hámarki

sæmundur (IP-tala skráð) 18.2.2014 kl. 23:56

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ekki berja hausnum of fast við steininn, þú gætir rotast. Þér til upplýsingar, þá eru aðeins fjögur evrulönd af 17 sem uppfylla Maastricht skilyrðin í dag, en það eru Luxemburg, svíþjóð finnland og Danmörk. Öll önnur eru runnin á rassgatið með hann.

Reyndu að lesa þig til áður en þú skrifar. Þessar fullyrðingar þínar lýsa meira vitfyrringslegu trúarofstæki en málefnaumræðu. Syndromið þitt kallast cognitive dissonance. Afneitun staðreynda í ljósi vonbrigðanna rétt eins og trúmaðurinn sem klikkaði á að spá rétt fyrir endurkomu frelsarans, gaf allar eigur og fór nakinn til fjalla.

Þið eiga margt sameiginlegt með trúköltum þessir kommar.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.2.2014 kl. 05:47

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Eitthvað finnst mér þú Jón taka fulldjúpt í árina. Miðað við BNA þá stendur evran mun traustari fótum en dollarinn þegar öllu er á botninn hvolft. Primus motor evrunnar er auðvitað Þýskaland sem er langöflugasta veldið innan Evrópusambandsins.

Vonandi eru þessir efnahagserfiðleikar í S.- Evrópu tímabundnir en um þriðjungur ríkisskulda Grikkja er vegna vopnakaupa. Maður spyr til hvers? Gætir þú svarað því?

Guðjón Sigþór Jensson, 19.2.2014 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband