Gjörsamlega vanhæf ríkisstjórn

Þessi ríkisstjórn virðist ekkert skilja hvorki í skynsemi og sanngirni. Þeim er ekkert heilagt. Þessi ríkisstjórn er samansafn af vandræðagemlingum sem virðast aðeins kunna að brosa, gefa loðin loforð og svíkja, snúa útúr og gera lítið úr skoðunum annarra. Náttúruvernd virðist vera í augum þessara kalla vernd virkjunarmöguleika gegn náttúru landsins.

Nú ætlar þessi ríkisstjórn að slátra 3 fossum á einu bretti: Kjálkaversfossi, Gljúfurleitarfossi og Dynk sem er einn sérstæðasti foss landsins. Einhver mjög óraunhæf rómantík knýr þessa ríkisstjórn og forseta landsins áfram að hér megi virkja nánast endalaust og útvega allri Evrópu rafmagn. Í raun verður aðeins Færeyingum og í mesta lagi Skotum útvegað nægt rafmagn og þá verður búið að virkja og eyðileggja alla fossa landsins. Ekkert virðist vera heilagst þessu virkjanaliði.

Ríkisstjórnin er með allt meira og minna niður um sig, hefur tekið ákvarðanir sem þjóðinni ber einni að taka. Sennilega hefur engin ríkisstjórn hérlendis hvikað jafn frá lýðræði og þessi. Það er margt sem hefur verið hort í átt til fasisma og einræðis. 


mbl.is Kunna að leita til dómstóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

Þú ert bara farin ð skrifa skáldsögur ??......Mundu bara að það var herna "VINSTRI STJÓRN " ,  áður en þú skrifað fl. kafla !!

rhansen, 4.1.2014 kl. 21:55

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Þessi ríkisstjórn virðist ekkert skilja hvorki í skynsemi og sanngirni."

Það má vera, en mikið eru þeir skárri en sú sem var á undan. Það var nú heiladautt lið.

"Þessi ríkisstjórn er samansafn af vandræðagemlingum sem virðast aðeins kunna að brosa, gefa loðin loforð og svíkja, snúa útúr og gera lítið úr skoðunum annarra."

Góð lýsing á síðustu stjórn - nema þetta með brosið...

"vernd virkjunarmöguleika gegn náttúru landsins."

Er þetta á íslensku?

"Nú ætlar þessi ríkisstjórn að slátra 3 fossum á einu bretti:"

Landsvirkjun, reyndar - og þeir ætla bara aðeins að draga úr þeim.

"Einhver mjög óraunhæf rómantík knýr þessa ríkisstjórn og forseta landsins áfram að hér megi virkja nánast endalaust og útvega allri Evrópu rafmagn."

Ekki rétt bókmenntastefna - sýnist þetta sem þú vísar í vera "félagslegt raunsæi."

"Í raun verður aðeins Færeyingum og í mesta lagi Skotum útvegað nægt rafmagn og þá verður búið að virkja og eyðileggja alla fossa landsins."

*ef* þeir reyna að selja rafmagn út.

"Ekkert virðist vera heilagst þessu virkjanaliði."

Málfarið, maður: "þessu virkjanaliði virðist ekkert heilagt."

"Ríkisstjórnin er með allt meira og minna niður um sig,"

Ég sé ekki betur en þeir hafi verið að gera góða hluti. Betri en ég bjóst við, í það minnsta.

"hefur tekið ákvarðanir sem þjóðinni ber einni að taka."

Fólk vill hafa þetta svona - eða svo virðist vera.

"Sennilega hefur engin ríkisstjórn hérlendis hvikað jafn frá lýðræði og þessi."

Varstu ekki hérna í fyrra? En undanfarin 4 ár? Bara svona sem dæmi.

"Það er margt sem hefur verið hort í átt til fasisma og einræðis."

1: flestir íslendingar *eru* fasistar. Það er annað mál að fæstir þeirra myndu þekkja fasista þó þeir sæu hann í spegli, en, þannig er það bara.

2: einræði? Valdhafar þrá allir einræði. Erfiðara er að koma því á. Það var reynt alveg þar til í fyrra. Þá varð smá pása. Ég efast ekki um að sú vinna mun halda áfram eftir næstu kosningar.

Ásgrímur Hartmannsson, 4.1.2014 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 242985

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband