Réttarríkið: nauðsyn mikilvægra upplýsinga

Fyrir nokkrum árum ritaði eg grein í Morgunblaðið um fjármál stjórnmálaflokkanna, sjá greinina á þessari slóð: http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=1064742

Þar gerði eg grein fyrir hvernig þessum málum væri hagað víðast hvar erlendis en þá var nánast engin umræða ummþessi mál. Taldi eg nauðsynlegt að sett yrðu sérstök lög um starfsemi stjórnmálaflokka þar sem þeim væri skilt að gera opinberlega grein fyrir uppruna og notum þess mikla fjár sem þeir hefðu undir höndum.

Ekki voru allir sammála mér og þáverandi fjármálaritari Framsóknarflokksins skrifaði gegn þessum hugmyndum og birtist 10. febrúar 2006. Taldi viðkomandi greinarhöfundur af og frá nauðsynlegt og þaðan af síður þörf á að sett yrðu sérstök lagafyrirmæli um þessi mál. Enn svaraði eg og benti á 21. grein þýsku stjórnarskrárinnar í þessu sambandi, sjá: http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=1066726

Þar er m.a. vikið skýrt og skorinort í mjög knöppu máli að hlutverki stjórnmálaflokka í þýsku samfélagi sem og að fjármál þeirra varði þjóðina og réttarríkið miklu.

Má segja að þessar greinar hafi orðið til að hreyfa alvarlega við þessum málum á þingi og að sett voru lög um fjármál stjórnmálaflokkanna. Frá og með árinu 2007 ber stjórnmálaflokkum að gera opinberlega grein fyrir fjármálum sínum.

Ríkisendurskoðun hefur í skjóli upplýsingaskyldu tekið af skarið og birt þær upplýsingar sem nú megi allir þeir sem vilja, kynna sér þessi mál. Og þessi lög eru greinilega að sanna sig, að nauðsynlegt er í lýðræðislandi sé þetta eitt af grundvallaratriðum að hér geti dafnað réttarríki en ekki spillt flokksræði örfárra lykilstjórnmálaflokka.

Það er því mikið fagnaðarefni að þessi lög eru að sýna að setning þeirr var rétt skref í áttina að betra samfélagi. Því miður hefur verið spilling í íslensku samfélagi en hún hefur ekki verið viðurkennd sem slík. Núverandi framkvæmdarstjóri Sjálfstæðisflokksins hefur gengið fram fyrir skjöldu: Vafasömu fé ber að skila. Hvers vegna eiga björgunarsveitir að greiða stjórnmálaflokkum? Eða stéttarfélög og aðrir hagsmunaaðilar. Og kostulegast er að sjá vafasama starfsemi í Kópavogi sem græðir á að láta einfaldar og kærulausar stelpur fletta sig klæðum fyrir framan drukkna gróðapunga, greiða háar fjárhæðir í þennan sama flokk athafnamanna og fagurgala!

Mosi


mbl.is Skilar framlagi Neyðarlínunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frjálshyggjulínan  Neyðarlínan, þegar neyðin er stærst, þá er hjálpin næst

Það sannaðist þegar Baugsfeðgar rústuðu öllum heildsölunum sem héldu uppi kosningavél Valhallar, þá kom sér vel að eiga traustann einkavina væddan                 framkvæmdastjóra hjá Neyðarlínuni, sem er svolítið 2007 (kosningaár) og færði Valhallar maskínunni 300 þúsund úr vösum almennings. Þegar þetta  verður uppvíst núna á útmánuðum kreppunnar 2009 með nútíma ,,gagnsæi” sem virkar eins og stjörnukíkir að leita að nýju svartholi í alheiminum. (næsta svarthol finnst eftir 50 ár) Nú hefur Valhöll ákveðið að skila illa fengnu fé. Árni Johnsen  Valhallardrifinn lenti í svartholinu, sama hvað hann skilaði mörgum kantsteinum eða fermetrum af dúk. Nú er spurningin fer framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar í svartholið fyrir að haldleggja 300 þúsund af almanna fé og afhenda Valhallarfálkanum, eða er ,,gagnsæið” bara blekking í svartholi íslensk stjórnkerfis. Það eru trúlega ekki ýkjur að Íslenskt stjórnkerfi sé á stjarnfræðilega vísu.

Núna skilst betur máltækið ,,Þjófurinn þrífst enn þjófsnauturinn ekki”.Forstjóri Neyðarlínunnar fitnar, á meðan Valhallar fálkinn horast 

Guðbrandur (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 10:59

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er þó rétt ákvörðun hjá Sjálfstæðisflokknum að skila þessum fjármunum og gott að lögin séu virt og vonandi að á því verði framhald.

Hilmar Gunnlaugsson, 24.3.2009 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 242918

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband