Scotland Yard : Samvinnuverkefni við Breta

Þessi skattundanfærsluaðferð að koma fjármunum í skattaskjól er ábyggilega mjög víðtæk og verkefnið að upplýsa mjög vandasamt. Þarna er auðvitað rótin að og meginástæðan fyrir því að Bretar settu á okkur hermdarverkalög. Skattsvikarar voru búnir að vinna að því hörðum höndum við undirbúning að koma öllum þeim fjármunum sem þeir komust höndum yfir til í þessi skattaskjól. Á annað hundruð fyrirtæki í eigu íslenskra aðila í skattfríðindaeyju í Karabíska hafinu kallar á mun víðtækari og torveldari möguleika á að koma þessum miklu fjármunum til baka.

Er líklegt að einn íslenskur saksóknari með takmarkaða fjárveitingu geti náð einhverjum árangri? Það er mjög ólíklegt og sennilega verða leyndir þræðir inn í gömlu stjórnarflokkana varla raktir.

Það er því fyllsta ástæða til að taka upp viðræður við bresk yfirvöld og rannsaka þessi vandasömu mál. Breska lögreglan hefur ábyggilega mjög mikla og langa reynslu hvernig best er að rekja þessi vðskipti og koma lögum yfir þessa herramenn sem hafa hagað sér eins og siðlausir „grafaræningar“.

Þögn og afskiptaleysi Geirs Haardes verður því sennilega best skýrð að hann vænti þess að þessir „grafaræningar“ hugsi síðar vel til Sjálfstæðisflokksins síðar meir. Þess vegna hefur hann dregið lappirnar mánuðum saman án þess að hafast neitt að.

Scotland Yard hefur mjög færa sérfræðinga á þessu sviði með aðgang að mjög öflugum upplýsingabönkum sem rétt er að íslensk yfirvöld ættu að snúa sér hið snarasta til Breta.

Með því getum við minnkað fjárhagslegt tjón okkar enda veitir ekki af.

Við Íslendingar eigum gríðarlega sameiginlega hagsmuni við Breta, að lögum sé komið yfir þessa herramenn sem rændu okkur þjóðarauðnum en skyldu skuldirnar eftir.

Þessi Icesafe mál og sitthvað fleira ætti því að skýrast betur.

Mosi

 


mbl.is Skattaskjólin misnotuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nefnulega! Nema að hér er um neina skattaparadís að ræða eins og greinilega kemur fram í greininni. Það er í raun frá þessum félögum sem peningarnir koma upprunalega sem starta "efnahagsundrinu" góða. Að fyrrverandi viðskiptaráðherra segir hreint út að hann hafi ekki haft neina vitund um þetta, hlýtur að vera hrein lygi sem ætti að vera auðvelt að sýna fram á með rannsókn!

Thor Svensson (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 21:48

2 identicon

"Hér er EKKI um neina Skattaparadís að ræða" átti þetta að vera.

Thor Svensson (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 242836

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband