Er uppeldinu áfátt?

Að taka þátt í mótmælum er mikill ábyrgðarhluti. Sá sem tekur þátt í mótmælum verður að láta skynsemi ráða og gera sér grein fyrir hvar mörkin eru.

Síðastliðna þrjá daga hefi eg verið við þinghúsið að mótmæla. Satt best að segja fannst mér dagurinn í dag bestur af þeim öllum enda var vart að sjá annað en að allt hafi farið friðsamlega fram þó hávaðinn væri nokkuð mikill. Einkum var eitt hljóðfæri um tíma sem sló öll hávaðamet, gongó sem gefur gríðarlega djúpan en kröftugan hljóm. Átti eg þátt í því um tíma ásamt öðrum að berja það en að jafnaði þurftu tveir að bera þetta þunga málmásláttarhljóðfæri uppi og sá þriðji að slá það. Um hálf fjögur þurfti eigandinn að yfirgefa samkomuna og aðstoðuðum við tveir sem síðast áttum þátt í að spila á það að bera það áleiðis í bíl eigandans.

Það er miður að sjá að sumir gleyma sér hins vegar í alls konar skít- og matvælakasti. Það er öllum ósamæmandi og engum til framdráttar. Börn sem fá ekki nógu gott uppeldi, freistast til að apa eftir þeim sem fyrir eru og taka þátt í vitleysunni. Þetta kann að hvetja þau til frekari dáða sem kannski endar í tómri vitleysu.

Um nokkurra ára skeið kom út tímarit í gömlu Mosfellssveitinni sem nefndist Mosfellspósturinn. Þegar þéttbýli efldist og ýms félagsleg vandræði lögðu innreið sína í sveitarfélagið var viðtal við síðasta hreppsstjórann okkar, hann Jón á Reykjum sem enn lifir í hárri elli. Þessi uppeldismál komu til umræðu og þá kvað bóndinn aldni við eitthvað á þá leið, að svo væri að skilja „að sumir foreldrar teldu að börnin þeirra ættu að alast upp af kennurum og lögreglunni“. Voru þá nokkrir uppivöðslusamir krakkar á kreik í sveitarfélaginu og urðu vandræði af.

Auðvitað eiga foreldrar ekki að beita börnum sínum út í einhvern fíflaskap sem þau kannski sjálf hvetja þau til. Það nær ekki nokkurri átt.

Verkefni lögreglunnar er ekki að ala upp börn og unglinga. Það er fyrst og fremst foreldranir sem eiga að bera ábyrgðina og þegar börnin koma á skólaaldur á samvinna foreldra og skóla að vera meginstefnan í þessum efnum til að koma í veg fyrir að eitthvað fari út í vitleysu.

Þegar eg yfirgaf Austurvöll á fimmta tímanum í dag tíndi eg upp nokkra smásteina sem eg rakst á hér og þar. Færði nærstöddum lögreglumönnum sem á vakt voru með þeim orðum að steinarnir að tarna væru betur komnir í þeirra vörslu en einhverra óvita.

Mosi


mbl.is Börn að atast í lögreglumönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 242837

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband