Ætlar Davíð enn að gefa þjóðinni langt nef?

Að nefna bankaleynd undir þessum kringumstæðum þegar bankarnir voru beinlínis notaðir í vægast sagt þeim augljósa tilgangi að fámennur hópur samfélagsins hyggðist koma ár sinni enn betur fyrir borð, er fyrirlitleg.

Spurning er hvort Davíð telji sig bera meiri skyldur gagnvart ævintýramönnumum eða sjálfri þjóðinni? Hvað myndi grínistinn Davíð Oddsson segja um þetta ef svona uppákoma hefði borið upp á dögum Matthildar? Gott væri að spjátrungar héldu áfram að spinna þann þráð. Til þess að skýra betur þetta með Matthildi, þá voru þeir félagar Davíð Oddsson, Hrafn Gunnlaugsson ogÞórarinn Eldjárn með grínþátt á dögum fyrri vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar á árunum 1971-74. Fullyrða má að þessir þættir grófu allverulega undan ríkisstjórninni sem þá var.

Davíð hefur bókstaflega kaffært hinstu von þeirra sem telja hann vera hinn ókrýnda konung sinn. Hann er fyrst og fremst málssvari sjálfstæðra braskara og áþekkra vandræðamanna í samfélaginu. Davíð virðist vera gjörsamlega laus við góða siði og ekki skilja sinn vitjunartíma, hvorki í stjórnmálum né Seðlabanka. Hann er með setu sinni þránduir í götu eðlilega samskipta við Breta og aðrar viðskiptaþjóðir okkar.

Þjóðin er fyrir löngu búin að fá sig fullsadda af svo góðu enda nær það ekki nokkurri átt að Davíð telji sig vera einhverns konar „bjargvætt“ þjóðarinnar á örlagastund. Hann einn fyrst og fremst ber ábyrgð á því sem komið er í íslensku efnahagslífi. Einkavæddi hann ekki bankana og kom þeim í hendurnar á þeim sem voru viljugir að greiða í kosningasjóð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins? Átti hann ekki þátt í að afnema bindisskylduna til þess að braskaranir gætu komið þjóðinni fyrr á vonarvöl? Bar hann ekki ábyrgð á Kárahnjúkavirkjuninni en framkvæmdir í tengslum við hana áttu meginþáttinn í að bullsauð á hagkerfinu íslenska og kynti undir eyðslusemi og óráðsíu á margar lundir. Hann bar ábyrgð á umdeildri ákvörðun um stuðning Íslands við árásarstríð Bush og Blair inn í Írak. 

Svona kallar eins og Davíð hafa aðeins eitt tækifæri að stjórna landinu sem hann auðvitað klúðraði - og auðvitað aðrir með honum.

Sjálfstæðisflokkurinn var einu sinni flokkur sem mjög margir báru traust til. Kannski allt of margir. Nú er hann að týna niður traustinu og öllu því fylgi sem hann áður hafði og er að verða eins og hver önnur sökkvandi fleyta sem er yfirfull af ýmsum hneykslismálum og siðspillingu. Rotturnar hafa fyrir löngu yfirgefið þetta sökkvandi fley.

Davíð má taka hvaða ákvörðun sem er fyrir sig og sína siðlausu hjörð en ekki fyrir heila þjóð.

Dýr verður Davíð íslensku þjóðinni hvort sem hann tekur ákvörðun um að sprikla áfram í pólitíkinni aða hann dregur sig loksins í hlé. Betur væri ef hann léti skynsemina ráða.

Mosi

 

 


mbl.is Davíð ber fyrir sig bankaleynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

".. léti skynsemina ráða"  

Þakka góða pistla. Þú ert greinilega sjóðfróður. Það var, td,  gaman að vera minnt á orð Bjarna Guðnasonar um Hannibal!   Les meira.

Kveðja.

Hlédís, 4.12.2008 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband