Afleiðing gamla landbúnaðarsamfélagsins

Áður fyrr aðlagaði Alþingi Íslendinga starf sitt við hormónastarfsemi sauðkindarinnar. Þá voru bændur og ýmsir embættismenn og kaupmenn með sauðfjárbúskap flestir hverjir og ekki var unnt að vera lengi frá önnunum þegar sinnta þurfti blessuum rollunum. Því var haustþing venjulega eftir að búið var að taka upp kartöflur, réttir og sláturtíð. En ekki mátti sinna þessu íhlaupastarfi við Austurvöll nema fram undir lok nóvember í síðasta lagi í byrjun desember því þá þurfti að hleypa hrútunum til ánna. Svo þegar því var öllu lokið og sæmilega ferðafært á nýju ári var unnt að fara suður aftur. En eftir páska var gott að vera aftur laus frá þessu þingstússi enda þurfti aftur að sinna sauðfjárbúskapnum, sauðburður, rúningur og reka á fjall auk þess sem stinga þurfti upp kálgarðsholuna og setja niður kartöflur. Svona var þingtíminn ákveðinn enda mótaðist allt samfélagið af þörfum sveitamannaþjóðfélagsins.

Nú er öldin önnur. Aðeins örfáir þingmenn hafa einhverjar óverulegar tekjur af sauðfé og er það vel enda er tekjuvon einna lökust nú um þessar mundir af rollubúskap. Með sífjölgandi verkefnum og nýjum viðhorfum þá þarf þingmaðurinn að setja sig inn í ótrúlega mörg óskyld mál og smám saman lengist þingtíminn. Og þeir skipta með sér verkum eftir því sem þekking og reynsla gefur tilefni til. Í dag er ekki unnt að mynda sér skoðun á öllum hlutum jafnvel einn einstaklingur er ófær um slíkt. Og þá eru mál borin upp og einn þingmaður líkir þessu við að vinna sem nútíma féhirðir í verslun.

Í gamla sauðfjársamfélaginu var þingfararkaupið miðað við daglaun verkamanna og var einungis greitt fyrir þá daga sem þing stóð yfir. Nú er kaupið sennilega orðið fjórfalt ef ekki fimm eða sexfalt kaup daglaunamanna enda það fullt starf að lyfta upp hendi eða að styðja á hnapp merktan jái eða neii auk þess að taka til máls öðru hverju. Spurning hvort kassafólkinu finnist það ætti ekki að njóta hliðstæðra launa og þingfararkaupið t.d. þeirra sem láta fara ósköp lítið fyrir sér fara og eru alltaf sammála formanni sínum eða Seðlabankastjóranum.

En sem betur fer eru margir þingmenn sem leggja á sig mjög mikla vinnu að kynna sér til hlýtar mörg mjög erfið mál. Oft hefur Mosi dáðst t.d. af Steingrími J. hversu hann setur sig vel inn í öll þau mál sem hann tekur afstöðu til. Þá talar hann mjög góða íslensku að unun er á að hlýða.

Það er hins vegar með öllu óskiljanlegt að þingmaður í meirihluta lýsir ábyrgð á hendur þeim sem gagnrýnt hafa Sjálfstæðisflokkinn undanfarin ár fyrir vafasamar ákvarðanir á undanförnum árum. Þar gátu einstakir þingmenn og ekki einu sinni þingnefndir meira að segja ekki haft neitt að segja. Má t.d. nefna stuðningsyfirlýsingu Davíðs og Halldórs vegna árásarstríðs Georgs Búsh Bandaríkjaforseta á Írak.

Mosi


mbl.is Þingmenn eins og afgreiðslufólk á kassa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband