Traust og vandað ríkisútvarp

Þegar fjölmiðlafrumvarpið var í deiglunni á sínum tíma, var á döfinni einkavæðing Ríkisútvarpsins. Þúsundir íslendinga vildu slá skjaldborg um það og bentu á að Ríkisútvarpið hefur fyrst og fremst þjónustuhlutverk í samfélaginu. Þessu fyrirkomulagi vildum við ekki breyta og Ólafur Ragnar tók þá ákvörðun að neita undirskrift þessara laga. Davíð Oddsson fór hamförum enda var rökstuðningur hans m.a. sá að hættulegt væri samfélaginu ef vissir menn næðu meirihluta í mikilvægustu fjölmiðlunum.

Nú er svo komið að við verðum að tryggja sem dreifðasta eignaraðild og að koma í veg fyrir að örfáir nái að stjórna öllu. Þessi mistök urðu t.d. í bönkunum sem var stjórnað af allt of mikilum glannaskap sem kemur okkur nú öllum í koll. Enginn venjulegur einstaklingur skilur hvernig þessi ósköp gátu orðið. Ábyrgð Sjálfstæðisflokksins er mjög mikil og er því ánægjulegt að menntamálráðherra flokksins, Þorgerður Katrín áttar sig á þessum mikla vanda.

En það er auðvitað sitt hvað að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum þar sem opin leið er haldin opin til að einkavæðingu ríkisfjölmiðla annars vegar og eins og staða er nú þegar við sjáum nauðsyn þess að við þurfum á góðum og traustum ríkisfjölmiðil að halda sem ekki verða boiðnir falir á sölutorgum.

Vinstri menn höfðu einhverra hluta vegna séð lengra en Sjálfstæðisflokkurinn sem fyrst og fremst allra íslenskra stjórnmálaflokknum ber ábyrgð á þessu landsins mesta fjármálaklúðri sem tengist einkavæðingu bankanna og allt of mikilli bjartsýni samhliða kæruleysi um byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Sú ákvörðun um byggingu þeirrar virkjunar verður að teljast ein verstu fjármálamistök í Evrópu enda ýtti sú bjartsýni undir „útrásarbrjálæðið“ mikla.

Betra er að vera skuldlítill fátæklingur en skuldugur og ærulaus ævintýramaður hvort sem er í botnlausum fjárglæfrum eða pólitík. Kæruleysið kemur okkur öllum í koll.

Mosi


mbl.is Rosabaugur Jóns Ásgeirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður verður nú að segja að stutt er öfganna í milli vinstri hægri og hver er sekur og saklaus/en velkomin heim/ kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 4.11.2008 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 242896

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband