Hver ber ábyrgð á ferjuklúðrinu?

Margir hafa eðlilega tjáð sig um Grímseyjarferjuna sem keypt var notuð erlendis frá. Sýnist eðlilega öllum sitt hvað í þessu furðulega máli. Ljóst er að heimildin í fjárlögum er að kaupa fé fyrir andvirði eldri ferju sem að öllum líkindum er enn óseld! Spurning er því hvort heimild til kaupanna sé því ekki bundin þessari eðlilegu forgangsröð: selja eldri ferju fyrst og kaupa fyrir andvirði hennar og auknu framlagi úr ríkissjóði.

Ríkisendurskoðandi hefur í greinargerð sinni gagnrýnt mjög kaupin á faglegan hátt en fjármálaráðherra lætur hafa eftir sér að þetta sé bara venja í stjórnsýslunni!!! Þetta innlegg ráðherra þykir Mosa vera með endemum!! Er sem sagt venja stjórnmálamanna að fara ekki eftir því sem samþykkt er á Alþingi Íslendinga? Spurning er hvort fjármálaráðherra hafi ekki tekið á sig ábyrgð á þessu klúðri. Og ef svo er, þá þarf Alþingi að taka til sinna ráða og ef ástæða er til að kalla saman Landsdóm að taka á þessu máli.

Ljóst er að einhver ókunnur stjórnmálamaður hefur tekið umdeilda ákvörðun sem leiddi til kaupanna á þessu umdeilda skipi. Hann hefur brugðið yfir sig huliðshjálminum og virðist vera horfinn bak við þetta mikla leyndarmál. Spurning hver hann er þessi huldaður. Þá er önnur áleitin spurning hvort einhver hafi haft einhvern fjárhagslegan ávinning á að þessi ákvörðun hafi verið tekin. Ef svo er þá er ekki fjarri að ætla að mútur tengist þessu máli.

Mosi stendur með ríkisendurskoðenda hvers hlutverk er að gæta þess að fjármunir ríkissjóðs sé rétt varið og í fullkomnu samræmi við það sem Alþingi hefur ákveðið og nýtist sem best í þágu þjóðarinnar. Framkvæmdavaldið er bundið ákvörðunum Alþingis og hefur ekki heimild að breyta ákvörðun sem tekin hefur verið af því.

Mosi - alias


mbl.is Ísland vann í lottóinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér eru á ferðinni tæknileg mistök.

Kannski var Mullerinn bara að  leiða huga okkar að þessu til að fela annað.

Annars verður gaman að sjá hver fær að fjúka núna.

Hreyndýrið (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 19:18

2 identicon

Elsku kallanir mínir,  það fær enginn að fjúka,  samtrygging stjórnmálamanna sér um það.

Hvað  eiga menn að gera þegar beiðni frá æðsta yfirmanni kemur um það að ákveðið verk skuli gert og sett í forgang?  Auðvitað,, þú bara setur ferlið af stað,  en svo í þessu tilviki kemst klúðrið upp og þá er byrjað á að  hengja þann lægst setta og svo koll af kolli,  en toppnum ná  þeir  aldrei (þe. raunverulega sökudólgnum).   Hann er falinn á bak við samflokksmenn sína og reyndar alla þáverandi þingmenn,  því,  við skulum ekki gleyma ábyrgð stjórnarandstöðu á þingi,  hún á að veita virkt aðhald (sem hún getur að vísu ekki gert nema hafa upplýsingar).  Þannig að auðsýnt er, að nú vill enginn kenna Sturlu um því það bitnar á þeim sjáfum.  Þetta er í mínum huga enn eitt klúður Sturlu,  hans ferill virðist vera þakinn álíka verkum,  forvitnilegt að vita hvað kæmi út úr stjórnsýsluúttekt á hans verkum.

Í þessu sambandi get ég  ekki gert að því að mér dettur í hug,  þegar sagt var frá því hvað ferjan kostaði hvern Grímseying,  hvað ætli Héðinsfjarðargöngin kosti á hverja ferð eftir þeim? 

Guðjón (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 20:05

3 Smámynd: Skarfurinn

Sökudólgar:

1. Sturla Böðvarsson

2. Vegamálastjóri

3. Árni Mathiesen

í þessari röð og eiga allir að fjúka, það er stórfurðulegt íslenskt fyrirbæri að Sturla geti falið sig á baki við að vera forseti þingsins og þarafleiðandi alveg ósnertanlegur, þetta gæti hvergi gerst nema í BANANALÝÐVELINU Íslandi, þá er ég mjög óánægður með að Kristján Möller sem var duglegur að gagnrýna málið sem óbreyttur þingmaður hefur gjörsamlega tekið U-beygju og gerir allt til að vernda forvera sinn Sturluu Böðvarsson, þetta er skandall !

Skarfurinn, 25.8.2007 kl. 21:00

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Mig langar til að biðja alla sem málið lætur sig varða að gæta hófs í orðum. Við eigum að spara stóru yfirlýsingarnar enda ekki ástæða til annars að gæta hófs í orðum. Enginn er sekur fyrr en sekt er sönnuð og við verðum að treysta á að mikið er umburðarlyndi meðal okkar Íslendinga gagnvart þeim sem breiskir eru. Kannski er sérstök ástæða af þeim ástæðum til varkárni!

En þetta mál er eins og fleiri: góð áminning um að við pólitíska ákvörðun þá þarf sú ákvörðun að byggjast á mjög raunhæfum og  traustum forsendum að hún standist tímans tönn.  Samtíðin er og ekki síst framtíðin getur orðið mjög gagnrýnin á það sem fortíðinni tilheyrir enda eru þá allt aðrar forsendur til staðar. Því er rík ástæða til að landsstjórnendur ígrundi vel og vandlega það sem þá varðar: Að taka ákvörðun sem framtíðin geti ætíð orðið sátt við.

En freistingarnar geta víða komið við sögu og það er ákkúrat sem þarf að staldra við: hafði einhver fjárhagslegan skyndihagnað af því að þessi umdeilda ákvörðun um kaup á þessu vandræðaskipi var tekin?

Mosi - alias 

Guðjón Sigþór Jensson, 25.8.2007 kl. 22:59

5 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Mér finnst við eiga það inni hjá n.v.ráðamönnum að fá að vita í gegn um hvaða skipasala var ferjan keypt og hvað voru sölulaunin.Frumskóatrommurnar dynja sem aldrei fyr og með margar fyrirsagnir.Þess vegna á að leggja öll spil á borðið ,eins og nv ráðherra krafðist í vor þegar málið koms í Fyrirsagnir blaðana þegar hann var"óbreyttur"alþimgismaður

Ólafur Ragnarsson, 26.8.2007 kl. 03:13

6 Smámynd: Skarfurinn

Guðjón minn, hvar var farið yfir mörkin í orðavali að þínu mati ? hef lesið þetta yfir og sé ekkert sem gæti sært blygðunarkennd manna, mér finnst ekkert að því að menn tali hér mannamál Guðjón ..

Skarfurinn, 27.8.2007 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 242837

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband