Þátttaka okkar í Evrópusambandinu

Auðvitað eiga Íslendingar heima í Evrópusambandinu. Við erum tengd ríkjum Evrópu viðskiptalega, menningarlega og sögulega.

Aðild okkar á að vera vel ígrundaða á forsendum okkar þar sem atvinnuhættir og menning skiptir máli. Við eigum að leggja fram skýr skilyrði fyrir inngöngu okkar sem byggjast á sérstöðu okkar sem fámennrar þjóðar sem vart er fjölmennari en íbúar meðalstórrar borgar. Þar reynir á atvinnuvegi okkar og sérstöðu sem gamallrar menningarþjóðar.

Ljóst er, að innan Evrópusambandinsins er kappkostað að uppræta hvers konar spillingu og koma í veg fyrir hana. Hér á Íslandi hefur spilling skotið víða upp kollinum. Við þekkjum hvernig helmingaskiptastjórnir Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks einkenndist oft á einkennilegum ólýðræðislegum ákvörðunum. Kvótakerfið og einkavæðing bankanna var meira og minna gjörspillt þar sem sumir náðu að maka krókinn ótæpilega. Stóriðjan er sérstaklega grunsamleg þar sem um tíma fóru ráðamenn víða um lönd eins og Finnur Ingólfsson sem markaðsetti aðgengi að íslenskri náttúru þar sem á Íslandi stæði álfurstum til boða „Lowest energy price“ í öllum heiminum.

Innan Evrópusambandsins ber allri mengandi starfsemi að útvega og kaupa mengunarkvótu. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa ekki gert minnstu tilraun að koma slíku kerfi á. Mengunin er ókeypis sem bætist við lágt orkuverð.

Víða um heim eru greiddar fúlgur til þeirra stjórnmálamanna sem sýna stórfyrirtækjum einstakan skilning á hagsmunum þeirra. Hér á Íslandi tala þessir aðilar um að „koma hjólum atvinnulífsins af stað“ og eiga þá fyrst og fremst við fleiri álbræðslur.

Ein ástæða til aðildar að Evrópusambandinu er að með því erum við að gera hagsmunapot Kínverja nánast ómögulega. Fyrir þeim er mikils vert að ná ítökum og helst völdum í landi sem Íslandi. Fyrir 60 árum innlimuðu þeir Tíbet og fóru tiltölulega létt með það. Ísland gæti verið jafnvel enn auðveldari bráð enda hafa ýmsir sýnt hagsmunum Kína sérstakan skilning.

Ljóst er að fulltrúar gömlu spillingaraðilanna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vilja ekki að Ísland verði hluti af Evrópusambandinu. Þar með er frelsi þeirra „truflað“. En hvað eigum við að segja um Jón Bjarnason? Hefur þessi góði drengur látið véla sig eða er hann í sakleysi sínu sem afsprengi íslenskrar sveitarómantíkur að reyna að koma í veg fyrir þessa þróun?

Evrópusambandið hefur mjög margar góðar hliðar. Það tryggir okkur betra lýðræði og mannréttindi hvað sem sérvitringarnir í stjórnarandstöðunni segja. Þar er byggt á langri reynslu, settar skynsamar reglur um nánast hvað sem er sem tengist nútíma lífi. Ef Ísland væri í Evrópusambandinu væri t.d. þessi uppákoma með ríkisstyrktan sóðaskap eins og kom fram í fréttum á dögunum þar sem kýr á bæ einum óðu í skít í allt of litlu fjósi. Þar hafði greinilega bóndinn sýnt af sér mikinn glannaskap og reist sér hurarás um öxl.

Þessi tillaga Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er dæmi um þingmál sem þeir vilja sjálfir hafa á sínu forræði og líta á sem sitt einkamál hvort Ísland skuli vera í ESE eða styðja við stríðsátök sem okkur kemur ekki við.

Við erum enn nokkuð fjarri því að vera á leiðinni í ESE. Fyrst þurfum við að fullnægja skilyrðum Maastrickt sáttmálans og sem stendur eigum við töluvert í land.

Góðar stundir.


mbl.is Ómögulegt að kjósa með málið opið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðjón Sigþór; sem oftar !

Auðvitað; eiga Norður- Ameríkumennirnir Íslendingar, ALLS ÖNGVA samleið, með sambandi Þýzku ribbaldanna (ESB), síðuhafi góður.

Þessi söguskýring þín; er hrein fölsun - ekki hvað sízt; í ljósi yfirráða Norðmanna og Dana, hér fyrr á öldum, svo og ránsskap Þjóðverja og Englendinga einnig, hér fyrr á tíð, einnig.

Komdu með; eitthvað skynsamlegra til umfjöllunar, en þetta diktur þitt, Mosfellingur góður.

Með beztu kveðjum; allt að einu, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 21:29

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Nú átta eg mig ekki á þessari samsuðu þinni.

Ætli staðreyndir málsins skipta ekki meira máli en snöggsoðinn sleggjudómur?

Guðjón Sigþór Jensson, 18.12.2012 kl. 21:42

3 identicon

Sæll á ný; Guðjón minn !

Lestu sögu okkar; frá 670/874 - til þessa dags, og þá muntu glöggva þig betur, Guðjón minn.

Og munum; landakortin - sem hnattstöðu, alla.

Að minnsta kosti; er ég ekkert að færa í stílinn, enda engin ástæða, til þess.

Ekki síðri kveðjur; þeim hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 23:23

4 Smámynd: Benedikt V. Warén

Þetta er nú meiri þvælan í þér Mosi. Það er ekki heil brú í þessu. Bendir á þegar Kínverjar innlimuðu Tíbet. Snúðu þessu við. Heldur þú að Tíbetbúar vildu ekki vera í sporum Íslendinga og geta staðið upp í hárinu á stóru ófreskjunni sem herjar á land og þjóð, eins og Brusselhyskið er núna að gera við að innlima Ísland í ESB. Sérðu ekki að þú ert kominn í hring í rökfærslu þinni?

Benedikt V. Warén, 19.12.2012 kl. 00:16

5 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Nú hafa staðreyndir eitthvað hnikað til í huga þínum Benedikt. Hvað áttu við með „Brusselhyskið“?

Hvers vegna heldurðu að Evrópusambandið hafi fengið friðarverðlaun Nóbels í ár? Sennilega er Evrópusambandið eitt best skipulagða ríkjabandalag sem nokkru sinni hefur verið komið á fót frá því Bandaríki Norður-Ameríku voru stofnuð 1776, jafnvel frá dögum Rómaríkis. Evrópusambandið er byggt upp á gríðarlegu laga- og regluverki þar sem kappkostað er að leysa sem flest viðfangsefni á skynsamlegan og sanngjarnan hátt.

Eitt af því merkasta við Evrópusambandið eru mannréttindin og varnir gegnj spillingu. Líklegt er að sumum stjórnmálamönnum finnist fjúka í flest skjól þegar „frelsi“ þeirra kann að verða takmarkað. Ekki verður unnt að sækja gull í hendur stórfyrirtækja eins og Guðlaugur Þór var staðinn að og er ekki einangrað fyrirbæri. Mjög líklegt er að álbræðslurnar hér á landi hafi greitt umtalsvert fé í formi mútna. Slíkt er mjög algengt víða um heim og hvers vegna ekki hér?

Kínversk stjórnvöld sýndu Tíbetum lengi vel mikla óbilgirni og yfirgang, hafa jafnvel verið enn að sýna vígtennurnar. Má t.d. nefna þegar trúarleiðtogi þeirra, Dalai Lama var hérlendis, þá mátti finna smjörþefinn af. Kína hefur barið niður með hervaldi hvers kyns andóf gegn kínverskum yfirráðum í Tíbet sem var sjálfstætt ríki til 1950, um 12 sinnum stærra en Ísland. Íbúafjöldi um 2 milljónir og eru Kínverjar rúmlega 10% íbúa. Við getum því gert okkur betur grein fyrir að Kína væri mjög fljótt að ná undirtökunum hér ef þeim tækist að festa sig í sessi hér. Þá myndi ekki muna að senda hingað 50.000 manns árlega og þess vegna fleiri. Það tæki þá ekki nema örfá ár að tryggja hagsmuni sína og leggja drögin að því að hér verði kínversk nýlenda. Kannski Ísland verði þá stjórnað sem kínversku fylki rétt eins og Xizang sem Kínverjar nefna Tíbet og vilja helst ekkert við það nafn kannast.

Góðar stundir í framtíðinni með öðrum Evrópuþjóðum.

Guðjón Sigþór Jensson, 19.12.2012 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband