Að beita tilfinningarökum

Rökræðan um afstöðu okkar til Efnahagsbandalagsins byggist oft allt of mikið af tilfinningum. Þannig hafa hagsmunaöfl sem eru alfarið á móti aðild okkar að EBE spilað mikið inn á sjálfstæðismeðvitund og sitthvað sem ekki byggist á sérlega góðum faglegum forsendum.

Afstaða okkar á fyrst og fremst að byggjast á faglegu mati þar sem hagsmunir eru metnir með hliðsjón af gildismati því sem talið er gefa bestu yfirsýn um viðfangsefnið.

Ljóst er, að innganga í Efnahagsbandalagið myndi efla mjög boraralegan rétt okkar t.d. gagnvart mörgum af þeim hagsmunagæsluaðilum sem nú hamast einna mest gegn aðildarviðræðunum.

Þess má einnig geta að það er t.d. kínverskum stjórnvöldum og öðrum hagsmunaaðilum mikill akkur að halda okkur utan við EBE. Ísland er tiltölulega stór en fámenn eyja sem er kjörið markmið fyrir fjölmenna þjóð að koma sér fyrir á, þjóð sem býr við þröng lífsskilyrði heima fyrir og takmarkaðan borgaralegan rétt að koma sér hér fyrir og efla hagsmuni sína.

Ælti mörgum smábændunum á Íslandi þætti ekki nokkuð þröngt fyrir dyrum sínum ef hér yrði fjölmenn kínversk nýlenda sem fyrr en varði yfirtekur landið með manni og mús með aðstoð sporgöngumanna þeirra?

Þýski sendiherranum hefur væntanlega blöskrað tilfinningavaðallinn og séð ástæðu til að vanda fyrir aðalritstjóra Morgunblaðsins sem og öðrum þeim sem hrópað hafa hæst í þessari tilfinningaumræðu. Hann á miklar þakkir skildar fyrir skynsamleg sjónarmið byggð á traustum og góðum gildum.

Mörg skynsamleg rök styðja hugmyndir um að tengjast betur nágrannaríkjum okkar í Evrópu. Þar er unnt að styðjast við atvinnuhætti, efnahagsmál, samgöngur og viðskipti að ekki sé gleymd sameiginlegri menningu og stjórnarhætti sem þróast hafa í aldir.

Góðar stundir!


mbl.is Vilja funda með sendiherra Þýskalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Kæri Guðjón.

 Hér er ekkert tilfinningamál heldur vill íslanska þjóðinn ekki innlimast í ESB. Ferillið var ólöglegur og landráð og er það enþá. Fyrir utan það þá vildi þjóðin fá að kjósa áður en farið var út í að senda inn umsókn. Umsóknin var stjórnarfrumvarp og þurfti undirritun forseta okkar. Þingsályktuninn var ekkert aððan en umboð að ríkisstjórni höndlaði þetta mál samkvæmt lögum. Hún gerði það ekki. Þú ert örugglega skynsamur maður svo lestu kafla X um landráð. Grein 86 plús... http://www.althingi.is/lagas/nuna/1940019.html

Valdimar Samúelsson, 23.5.2012 kl. 22:02

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hver hefur talið þér trú Valdimar að viðræður við EBE séu landráð í skilningi þess kafla hegningarlaganna sem þú tiltekur?

Það mætti æra óstöðugan að telja upp öll þau dæmi sem tæknilega gæti vera einhver möguleiki að færa undir landráð. Hvað með Keflavíkursamninginn 1946? Inngöngu í Nató 1949. Samningar um hersetu 1951, samningar um landhelgina við Breta 1961, afglapasamning við Aluswiss 1966 sem áratugi tók að leiðrétta, Kvótakerfið sem leiddi að mesta fjármálasvindli þjóðarinnar, EES samningna, einkavæðing bankanna sem endaði með ósköpum, Kárahnjúkaafglöpin og eyðing náttúruminja, yfirlýsing tveggja pólitíkusa um stuðning við einkastríð Bush og Blair í Írak 2003, öll afglöðin í aðdragandanum að bankahruninu, sala á HS orku til erlends aðila og sitt hvað fleira.

Þú ert greinilega ekki vel lesinn og ættir að kynna þér söguna betur.

Það dugar skammt að grípa einhverja tuggu upp frá einhverjum íhaldsmönnum sem nú eru fjarri Stjórnarráðinu og fá engu að ráða nema gegnum fremur ómerkilegan hatursáróður gegn ríkisstjórninni. Verðum við ekki að treysta því fólki sem hefur staðið sig nokkuð vel, þó svo margt mætti hafa verið gert betur?

Góðar stundir!

Þó svo að samningur verði gerður við EBE þá er hann með venjulegum fyrirvara um samþykki þings og þjóðar. Þetta er ekki einkamál nokkurra

Guðjón Sigþór Jensson, 23.5.2012 kl. 23:07

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Guðjón

 Taktu daginn í dag en ekki fortíð og lestu lögin aftur.Mundu að þjóðin bað um þjóðarkosningar áður er umsóknin var send inn. Líttu líka á vilja fólksins um að rjúfa þingið en á hálfum sólarhring eru komnar 3000 undirskriftir. Góðar stundir.

Valdimar Samúelsson, 24.5.2012 kl. 00:37

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hér er notað úrelt hugtak. Það er langt síðan eitthvað sem kalla megi "efnahagsbandalag Evrópu" hætti að vera til. Það sem nú er tekið við er fyrst og fremst skuldabandalag. Btw þá er árið núna 2012.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.5.2012 kl. 06:03

5 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Valdimar: um hvað á þjóðaratkvæðagreiðslan að ganga út á: já eða nei við viðræður? Ef NEI er þá verið að útiloka samvinnu og samstarf við nágrannalönd okkar og helstu viðskiptaaðila okkar um aldur og ævi.

Ljóst er að nokkrir fyrirferðamiklir hagsmunaaðilar vilja ekki undir neinum kringumstæðum ganga í EBE.

Hins vegar er mjög eðlilegt að leggja samning sem fyrir liggur eftir umræður þar sem kemur skýrt fram það sem hefur náðst í viðræðunum, hafa faglegar og skynsamar umræður um kosti og galla samningsins og ganga síðan til kosninga um hann.

Efnahagsbandalag eða e-ð annað gengur út á eitt, bæði heitin merkja nánast það sama eins og skammsöfunin EBE. Við sem eldri erum og munum inngöngu okkar í Efta um 1970 munum vel þessa togstreytu sem var milli þessara tveggja blokka.

Góðar stundir!

Guðjón Sigþór Jensson, 24.5.2012 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 242935

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband