Óvenjulegar kröfur í langri greinargerð

Jón Magnússon, lögmaður Björns Bjarnasonar, hefur lagt óvenjulegar kröfur fram í einkamáli gegn Jóni Ásgeir þar sem krafist er auk hárra miskabóta og málskostnaður, að stefndi sæti refsingu og vísað í 234. gr. hegningarlaganna. Greinargerð Jóns er nokkuð löng og verður að vísa í hana þar sem hún er birt á heimasíðu lögmannsins.

Óvenjulegt er margt í málshöfðun þessari. Það er ekki á hverjum degi sem fyrrum dómsmálaráðherra höfðar mál gegn manni sem nánast hefur verið lagður í einelti á undanförnum árum. Þar hefði verið betra að dómsmálaráðherrann fyrrverandi hefði fylgst betur umeð öðru sem var á döfinni meðal íslenskra athafnamanna. Ríkisbankarnir voru í höndunum á mönnum sem jafnvel höfðu meiri áhuga fyrir fótboltasparki á Englandi fremur en að reka banka með sæmd. Þessir aðilar voru meira og minna undir verndarvæng þáverandi stjórnvalda. Þarna var hvorki gætt hófs né jafnræðis meðal þessara útrásarvíkinga. Meðan atferli Jóns Ásgeirs var stöðugt undir árvökulum augum þáverandi stjórnvalda, forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og ríkissaksóknara má fullyrða eftir á að hyggja að sömu aðilar steinsváfu á verðinum gagnvart glórulausri meðferð braskara á bönkunum og fjármálalífi landsmanna.

Þegar eg sótti tíma hjá Sigurði Líndal sem lengi var einn þekktasti prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands kom hann einu sinni sem oftar inn á meiðyrði og þar með hegningarlög. Taldi hann að málaferli ætti hver skynsamur að forðast og þá sérstaklega þeir sem telja sig hafa verið ærumeiddir. Málaferli eru dýr, meira að segja rándýr og þau ættu að forðast sem heitan eldinn. Varðandi málaferli vegna ærumeiðinga sagði Sigurður að þau eru í eðli sínu þannig að yfirleitt megi með góðum og gildum rökum ná einhverjum árangri í málaferlum en oft eru rifjuð upp einhverjar glósur og fullyrðingar sem ef til vill betur væru gleymdar.

Nokkuð einkennilegt er að deiluaðilar reyni ekki til þrautar að ná sáttum. Rýr sátt er kannski skömminni skárri en fyrirhöfnin og fjármunirnir sem til þarf að kosta.

Góðar stundir


mbl.is Krefst álags á málskostnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

GSJ:

Eitthvað hefur þetta snúist í hausnum á þér og út á tún!

Í upphafsorðum greinargerðarinnar stendur skýrum stöfum að hún sé fyrir hönd stefnda (BB) en ekki stefnanda. hefðir betur lesið þetta svolítið hægar.

Það er JÁJ sem stefndi BB fyrir tittlingaskít sem þegar var búið að leiðrétta og biðjast afsökunar á. JÁJ er með því að halda stefnunni til streitu að misnota réttarkerfið í eigin áróðursbrölti. Það á hann ekki að fá að komast upp með og BB á ekki að þurfa að bera kostnað af svoleiðis vitleysu. Um það snýst málið.

Björn (IP-tala skráð) 14.12.2011 kl. 22:54

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hvað áttu við Björn? Skil ekki alveg hvað þú átt við í upphafsmálsgrein þinni.

Auðvitað eru fjölmæli og málaferli þeim tengd ekki það skemmtilegasta sem við getum hugsað okkur. En hvers vegna að magna upp deilurnar sem nægar eru fyrir, fremur en að finna friðsamari og vinsamlegri leiðir?

Einu sinni var ritstjóra stefnt undir lok 19. aldar og krafist 10.000 króna í skaðabætur! Það voru meira en 100 kýrverð! Auðvitað var stefndi sýknaður enda höfðu viðkomandi átt undanfarin misseri í stöðugum erjum sem var hvorugum til vegsauka. Þeir töluðust ekki við í aldarfjórðung en sættust heilum sáttum skömmu áður en ævi beggja var öll.

Þessar deilur milli Björns fyrrum ráðherra og Jóns Ásgeirs athafnamanns og sem sumir vilja nefna braskara, minna einna helst á sumar þekktar langvarandi deilur út af litlu tilefni. Hvorugur getur undir slíkum kringumstæðum nokkurn tíma vænst þess að bera hærri hlut fremur en húsfreyjurnar forðum á Bergþórshvoli og Hlíðarenda í svonefndu „húskarlavígum“. Þó menn kappkosti að brennimerkja hvorn annan sem versta þrjót, þá mun það aldrei takast.

Hvernig væri að þessir tveir þjóðþekktu einstaklingar reyni sættir sem væri þeim báðum til sóma?

Ætli dómsstólarnir séu ekki nægjanlega ásetnir verkefnum að ekki sé verið að auka enn álag á þá, kannski að vitaóþörfu?

Guðjón Sigþór Jensson, 15.12.2011 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband