Oft er kapp meira en fyrirhyggja

Það getur verið gaman að taka þátt í ýmiskonar hasarkeppni. íþróttir geta verið varasamar en sjálfsagt er áhættan að slasast undir þessum kringumstæðum þar sem hasar kringum mótorhjól eru annars vegar mun meiri.

Hvernig eru tryggingarmálin? Skipuleggjendur keppni sem þessarar ber að ganga frá því sem vísu að allir keppendur séu tryggðir fyrir hvers kyns skaða sem þeir kunna að geta valdið öðrum (svonefnd húftrygging eða hlutlæg ábyrgð) sem og að tryggja sjálfa sig fyrir líkamstjóni.  Sjálfsagt mætti sækja fyrirmynd að slíku keppnishaldi erlendis frá.

Slys geta orðið mjög afdrifarík. Þau kunna að draga þann dilk á eftir sér að einn eða fleiri séu öryrkjar að meira og minna leyti. Óhöpp í keppni verða oft og miður að þátttakendur og mótshaldarar gera sér ekki grein fyrir þessum möguleika að oft geta stórslys orðið.

Óskandi er að sá sem slasaðist, sé ekki alvarlega slasaður en þessi mál eru sjálfsagt ekki í nógu góðu máli enda oft er meira kapp en forsjá.

Slys geta haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir einstaklinga sem og allt þjóðfélagið. Það sem er skemmtun augnabliksins getur breyst á örskammstund í kvalarfulla tilveru sem oft sér ekki fyrir endan fyrir stundum með óvissu og verulega fjárhagslega sem sálarlega röskun í för með sér. 

Mosi


mbl.is Slasaðist við mótorkross æfingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjólinn eru skráð og á númerum eins og önnur ökutæki og ber að tryggja þaug sem slík og þar afleiðandi er ökumanstrygging sem tryggir þig sem ökumann

Elli (IP-tala skráð) 6.6.2011 kl. 09:59

2 identicon

Þetta er rétt hjá Ella. Hafi viðkomandi verið með sín tryggingamál eins og til er ætlast var hann tryggður fyrir svona atviki. Þessi hjól má aðeins nota á til þess ætluðum svæðum og Selfoss brautin stórgóða er eitt þeirra svæða.

Sighvatur (IP-tala skráð) 6.6.2011 kl. 10:46

3 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Því miður er slagorðið „Sertu tryggður færðu það bætt“ stundum aðeins lélegur brandari.

En almennt séð er lífið hættulegt. Og slys gera ekki boð á undan sér.

Sigurður Hreiðar, 6.6.2011 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 242923

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband