Þarna hefði mátt spara

Utanríkisþjónusta er rándýr skítblönku 300.000 manna samfélagi sem tæplega getur boðið upp á sómasamlega heilbrigðisþjónustu. Á tímum Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs Oddssonar tútnaði utanríkisþjónustan út enda er hún vettvangur fyrir bitlinga og vildarvini stjórnvalda.

Þremenningarnir, Atli Gíslason, Ásmundur Daði og Lilja Mósesdóttir, vildu byrja á niðurskurði á utanríkisþjónustunni sem eðlilegt framhald af nauðsynlegum aðhaldsaðgerðum vegna hrunsins. Þau töldu að eðlilegra hefði verið að halda uppi samfélagsþjónustu sem kemur öllum að gagni fremur en vissum dekurverkefnum fyrri valdhafa. Því miður uppskáru þau háð og spott þeirra sem litu á þau sem n.k. svikara.

Hvernig má það vera, að ekki sé unnt að hafa aðra skoðun á ríksfjármálum en þeir sem vilja hlut valdhafa sem mestan? Ljóst er, að unnt hefði verið að spara stórfé með því að draga saman seglin í utanríkisþjónustunni á tímum góðra samskipta gegnum tölvur og telex. Smám saman verða sendiherrar og sendiráð óþörf en við getum ekki verið án heilbrigðiskerfis.

Mosi


mbl.is Sendiherraskipti í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

Amen.

Hörður Þórðarson, 23.12.2010 kl. 19:16

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Ef þú hefur seð  SENDIHERRABÚSTAÐ ÍSLANDS í London og víðar- í ránhverfum auðmanna veisti  hvað orðið  BRUÐL SEGIR !

 Það er ekkert ríki sem hefur efni á svona sukki fyrir afdankaða stjórnmálamenn nema ísland ! 

  Miljónaþjóðir hafa það- en við erum bara að mannfjölda eins og ein borg ------------------------------   þvílikt snobbbbbbbbbb !

 og kostar vinnandi fólk bogin bök þrælkunar til að halda þessu uppi !

Kv. Erla M

Erla Magna Alexandersdóttir, 23.12.2010 kl. 19:31

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Satt best að segja eiga þremenningarnir samúð mína. ÞEIR vildu spara á sviðum þar sem auðveldlega mátti draga verulega saman seglin.

Við eigum að leita ódýrustu og hagkvæmustu leiðanna að halda uppi utanríkisþjónustu og láta heilbrigðisgeirann í friði. Þar er fyrir löngu komið að þolmörkum og þar verður ekki meira skorið niður öðru vísi en að þjónustan er í mikillri hættu að hrynja.

Mosi

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 23.12.2010 kl. 20:43

4 Smámynd: Vendetta

Halldór Ásgrímsson er móðgun við mannkynið sem slíkt. Hann var og er sjúkdómseinkenni spillingarinnar í stjórnsýslunni alveg eins og illkynjað æxli er einkenni krabbameins. 

Vendetta, 23.12.2010 kl. 23:52

5 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Auðvitað er Halldór þessi hluti af spillingunni, ekki spurning! Hann vissi eða mátti vita hvaða afleiðingu ákvörðun hans varðandi lögbindingu kvótakerfisins hafði í för með sér. Hann og fjölskylda hans græddi offjár!

M

Guðjón Sigþór Jensson, 26.12.2010 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband